Fréttablaðið - 27.11.2005, Qupperneq 61
SUNNUDAGUR 27. nóvember 2005 29
FRÉTTIR AF FÓLKI
Framleiðendur þáttanna The Simpsons munu bjóða
aðdáendum upp á sérstakan
jólaþátt í ár og er vonandi að
við hér á landi fáum að sjá
hann. Jólaþátturinn mun vera
þannig uppbyggður að Bart
mun leika Jesúbarnið, Lísa
mun leika Gabríel erkiengil
og Hómer og Marge verða
Jósep og María mey.
Kyle sonur Clint Eastwood er að skilja við konu sína til fjórtán ára, Lauru
Gomez. Kyle var sjálfur miður
sín þegar faðir hans skildi
við móður hans Maggie
Johnson þegar hann var
einungis tíu ára. Honum
brá því ansi mikið
þegar eiginkona
hans tjáði honum
þær fréttir fyrr í
mánuðinum að
hún vildi skilnað.
Rokkararnir í Strokes áttu erfiða tíma þegar þeir tóku upp nýju plötuna
sína undir stjórn framleiðandans David
Khane. Þeir höfðu hlakkað mikið til að
vinna með kappanum þar sem hann
vann með Paul McCartney og
Tony Bennett en Khane
var harðari en þeir
bjuggust við. „Hann
var frekar harður.
Stundum þegar ég
gerði gítarsóló þá
horfði hann á mig og
sagði: „Þetta var mjög
hallærislegt, þú þarft
að endurhugsa
þetta,“ sagði
Nick Valensi
gítarleikari.
KVIKMYNDIR
[UMFJÖLLUN]
Árið 1973 kom sr. Merrin út úr
þokunni og frelsaði Regan Mac-
Neil undan andsetningu hins illa.
Heimsbyggðin varð aldrei söm á
eftir en fjöldi fólks beit það í sig
að illir andar gætu setið um líkama
þeirra. Ekki dygðu einhver geðlyf
heldur þyrftu kaþólskir prestar að
beita fornum aðferðum til að reka
út illa anda.
Í kvikmyndinni The Exorcism
of Emily Rose er stuðst við raun-
verulega atburði sem áttu sér stað
í Þýskalandi við upphaf áttunda
áratugarins. Atburðirnir eru
heimfærðir upp á bandarískan
raunveruleika og teygðir í átt að
þarlendri kvikmyndagerð. Hand-
ritshöfundarnir fá hrós fyrir hug-
mynd sína að búa til réttardrama
og láta andsetninguna svífa í
kring.
Hin metnaðargjarna Erin
Bruner er fengin til að taka að
sér mál sr. Moore sem á yfir höfði
sér langa fangelsisvist eftir að
hafa verið kærður fyrir morð af
gáleysi. Hann var fenginn til að
hjálpa Rose en fjölskylda henn-
ar réð ekkert við dóttur sína og
grunaði að hún gæti verið and-
setin. Moore beitir því særing-
arritúali en hefur ekki sigur því
Emily Rose lætur lífið. Erin er
hins vegar lögfræðingur af Guðs
náð og ætlar að beita öllum brögð-
um til að fá prestinn sýknaðan
en þegar líður á réttarhöldin fer
hana að gruna að ekki sé allt með
felldu.
Í fyrstu lítur myndin ágæt-
lega út. Það skemmir ekki fyrir
að gæðaleikararnir Laura Linney
og Tom Wilkinson standa sig sem
lögfræðingurinn og presturinn.
Sorglegri mynd er brugðið upp af
Emily en hún var stúlka í blóma
lífsins þegar hún veikist. Mynd-
in er því í góðum gír framan af.
Síðan kemur útúrdúr sem nær
engri átt. Hinir illu andar fara að
herja á lögfræðinginn og prestur-
inn sér skrattann í hverju horni.
Kannski hafa framleiðendur
myndarinnar óttast að hún væri
ekki nógu hryllileg og ákveðið
að skella þessari smásögu inn í
miðja mynd til að hrista eitthvað
frekar upp í áhorfendum. Þetta
misheppnast algjörlega og dregur
myndina niður í svaðið. Leikstjór-
inn Scott Derrickson hefði ekki
annað en þurft að vera trúr við-
fangsefni sínu og hefði þá verið
með prýðilega hrollvekju í hönd-
unum en stendur í staðinn uppi
með meðalgóða B-mynd.
The Exorcism of Emily Rose
hafði allt til brunns að bera til
að geta orðið frambærileg mynd
þó að vissulega hefði hún aldrei
getað orðið það stórvirki sem The
Exorcist er. Miðkaflinn eyðilegg-
ur of mikið fyrir henni og á köfl-
um er eins og hún viti ekki alveg
að hverju er stefnt. The Exorcism
of Emily Rose var ekki hryllilegri
en svo að ég svaf við opinn glugga
og ljósin slökkt.
Freyr Gígja Gunnarsson
Í mesta lagi B-mynd
THE EXORCISM OF EMILY ROSE
Leikstjóri: Scott Derrickson
Aðalhlutverk: Laura Linney, Tom Wilkinson og
Jennifer Carpenter
Niðurstaða: Útúrdúrinn frá eiginlegum söguþræði
eyðileggur mikið fyrir The Exorcism of Emily Rose
og veldur því að hún er ekki nema í mesta lagi
B-mynd.
Akureyri 25.nóvember.
Ég sofnaði um leið og við vorum búnir
að rusla öllu draslinu í bílinn í morgun.
Ekkert skrítið þar sem ég svaf ekki mikið
í gær.
Ég svaf framí kengboginn eftir að vera
búinn að reyna að finna mér stellingu
sem gerði mig ekki að krypplingi til
æviloka. Ég svaf vært fyrir utan að ég
rumskaði aðeins þegar strákarnir stopp-
uðu í Brú til að fá sér pUlsu og franskar.
Eða eins og Ragnar sinnep og smá pUlsu,
mig hafði aldrei órað fyrir því að á einni
pUlsu væri hægt að sprauta heilli túpu af
SS pUlsu sinnepi, en Ragnar fær bara ekki
nóg af þessu gumsi. Ekki misskilja, ég
elska sinnep en ég meina... Það er ekkert
skrítið að drengurinn rekur við eins og
hvalur allan daginn... sem sagt Sinneps-
gas. Ég er viss um að það hafa einhverjir
mælar farið í gang hjá Almannavörnum
ríkisins á ákveðnum tímapunkti.
Ég vaknaði við þvílíkan hlátur í strák-
unum að ég vissi ekki hvort þetta væri
hlátur eða grátur fyrr en ég leit aftur í. Við
vorum að keyra í gegnum ónefnt
bæjarfélag, Addi G. var
allsber búinn að opna
gluggann hjá sér og
slengja rananum út.
Á fleygiferð keyrðum
við stoltir með
„hafnabolta kylfuna“
hans Adda út um
gluggann og í þessu
frosti... Fólk gapti á okkur undrunaraug-
um. Ástæðurnar örugglega margþættar.
Í fyrsta lagi: Það er enginn að flassa í
þessu bæjarfélagi. Í öðru lagi: Það var
svo kalt, af hverju er drengurinn ekki í
kraftgalla og í þriðja lagi: Sjá stærðina á
kvikindinu!!!
Þegar við komum á Akureyri var okkur
komið fyrir á fínu gisti-heimili með öllum
græjum, meira að segja rafmagnsstillan-
legum rúmum. Við Silli erum búnir að
sjá út ótal möguleika og er stefnt að því
að reyna á þetta við hátíðlega athöfn.
EÐALLLLL.
„Giggið“ gekk eins og best var ákosið fullt
af fólki sem var tilbúið að gefa okkur allt
sitt eins og við vorum tilbúnir að gefa
okkar síðasta blóðdropa til þeirra. Eina
sem kom uppá var að mér tókst að brjóta
fetil sem slær á bassatrommuna, sem er
alls ekki algengt þar sem þetta er búið
til úr járni... En svona er að vera í rokk
grúbbu... Það er allt óöruggt. Akureyri við
elskum ykkur!!!
Eftir að við vorum búnir að spila niðri í
Sjalla fórum ég og Silli upp á Dáta að DJ-
ast... Magnað hvað stelpur
eru tilbúnar að gera fyrir
óskalög. Við fengum
allavega eitt par af
brjóstum beint í „grím-
una“ bara af því að
við erum svo töff....
Nei, nei við spiluðum
óskalag.
SIGN BLOGGAR
Eitt par af brjóstum í „grímuna“