Fréttablaðið - 12.12.2005, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
MÁNUDAGUR
12. desember 2005 — 336. tölublað — 5. árgangur
12
DAGAR
TIL JÓLA
S Ö N G B Ó K B J Ö R G V I N S H A L L D Ó R S S O N A R
1 9 7 0 - 2 0 0 5
Stórkostleg safnplata
í næstu verslun
3CD
ÓLAFUR HJÁLMARSSON
Hljóðvist í húsum er
heilsufarsmál
fasteignir • hús
Í MIÐJU BLAÐSINS
GALLERY TURPENTINE
Allir fá þá eitthvað
fallegt
Hallgrímur Helgason velur listamenn á sýningu
FÓLK 68
ENGLAND, AP 43 manneskjur slös-
uðust, þar af tvær alvarlega, eftir
að gífurlegar sprengingar urðu í
einni af stærstu olíubirgðastöð
Bretlands í London snemma í
gærmorgun. Birgðastöðin nefn-
ist Buncefield og er staðsett rétt
fyrir utan bæinn Hemel Hemp-
stead norður af London.
Svo virðist sem slys hafi
valdið sprengingunum en ekki
hryðjuverk eins og einhverjir
héldu í fyrstu. Lögreglan í Bret-
landi bjóst
við því að
sprenging-
ar á svæð-
inu myndu
halda áfram
í langan
tíma í gær, en 16 milljónir lítra
af olíu voru geymdir þar.
Rúður í nágrenninu brotnuðu
og hús voru umkringd miklum
reykjarmekki. Náði reykjar-
strókurinn við birgðastöðina
allt að 3000 metra upp í loftið.
„Þetta er mjög stór geymsla og
hún á eftir að brenna í töluverð-
an tíma,“ sagði Frank Whitel-
ey, yfirmaður hjá lögreglunni í
Hertfordskíri í gær. „En þetta er
allt undir fullri stjórn.“
Ekkert benti til þess að
hryðjuverkamenn hefðu vald-
ið sprengingunum þrátt fyrir
að al-Kaída samtökin hafi lengi
hótað því að eyðileggja eldsneyt-
isbirgðir vestrænna ríkja. Bret-
ar hafa verið mjög á varðbergi
gagnvart hryðjuverkamönnum
síðan sprengingar urðu í lestar-
kerfi landsins í júlí af völdum
sjálfsmorðsárása. Þá fórust 56,
þar á meðal fjórir sjálfsmorðsár-
ásarmenn.
„Allt bendir til þess að þetta
hafi verið slys,“ sagði Whiteley.
„Samt sem áður verðum við að
halda öllum möguleikum opnum
þar til við vitum fyrir víst hvað
gerðist.“
Mannskæðasta olíuslys Bret-
lands til þessa varð 6. júlí 1988
þegar 167 verkamenn fórust í
miklum eldsvoða á olíuborpall-
inum Piper Alpha undan strönd-
um Skotlands. Árið 1994 kvikn-
aði í olíugeymslustöð í Milford
Haven í Wales. 26 verkamenn
slösuðust og milljarðatjón varð.
Olíufyrirtækin Texaco og Gulf
voru í framhaldinu sektuð fyrir
að brjóta heilbrigðis- og öryggis-
reglur.
Buncefield er fimmta stærsta
olíubirgðastöð Bretlands en þær
eru um fimmtíu talsins. Sér
hún um 5% af allri olíunotkun
Breta. - fb
Tugir særðust í sprengingu
í olíubirgðastöð við London
Mesta sprenging sem orðið hefur í Evrópu síðan í seinni heimsstyrjöldinni varð í olíubirgðastöð skammt
frá London. Mildi þykir að enginn skyldi farast. Rúmlega 40 slösuðust þar af tveir alvarlega. Ekki er talið
að hryðjuverkamenn hafi staðið fyrir sprengingunni þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar þess efnis.
REYKJARSTRÓKUR Mikill reykjarstrókur myndaðist þegar olían brann í Buncefield-birgðastöð-
inni norður af London í gær. 43 manneskjur slösuðust í sprengingunum sem urðu snemma í
gærmorgun. MYND/AP
Brynhildur Birgisdóttir kvik-
myndaframleiðandi býr í
Hackney-hverfinu í austur-
hluta London og sá þykkan
reykjarmökk leggja yfir borg-
ina í gær.
„Það var sól og blíða en svo
sá maður allt einu þegar grái
reykurinn var að koma yfir.
Ég og vinkona mín litum upp
og sáum hvernig olíureykurinn
kom upp,“ segir Brynhildur,
sem varð ekki vör við spreng-
ingarnar í olíubirgðastöðinni.
Hún segir að vond mengunar-
lykt hafi verið í borginni en þó
hafi hún ekki átt erfitt með að
anda loftinu að sér.
Íslensk kona í London:
Reykurinn
skyggði á sólina
Verður alltaf frískari
Gísli S. Einarsson, fyrrverandi alþingis-
maður, heldur upp á sextugsafmælið í
kóngsins Kaupmannahöfn.
TÍMAMÓT 26
ÞAÐ VERÐUR STÍF vestanátt í dag
með rigningu sunnan- og vestanlands.
Þurrt annars og bjartviðri á Austurlandi.
Hiti 0-5 stig en vægt frost í innsveitum.
VEÐUR 4
VEÐRIÐ Í DAG
Jólabókaflóðið
Hljóta það ekki að teljast ein helstu
tíðindi þessa bókmenntaárs
að Þórarinn Eldjárn skuli
nú senda frá sér ljóðabók
handa fullorðnu fólki?
Segir Guðmundur
Andri Thorsson.
Í DAG 22
Vilhjálmur rotaðist
Hrakfallabálkurinn
Vilhjálmur Halldórsson
rotaðist í Evrópuleik
með Skjern í gær.
Hann er væntan-
lega nefbrotinn
en ætlar þrátt
fyrir það að spila
handbolta um
næstu helgi.
ÍÞRÓTTIR 40
FEGURÐARSAMKEPPNIR „Ég gjör-
samlega missti andlitið,“ segir
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir um
sín fyrstu viðbrögð við sigrinum
í fegurðarsamkeppninni Ungfrú
heimur í Kína um helgina.
Hún segist hafa verið mjög
hissa á að komast í sex stúlkna
úrslit og í raun hætt að hugsa
um sigur í keppninni, þannig að
þegar úrslitin urðu ljós hafi allt
orðið þokukennt. „Ég man varla
eftir því að hafa staðið þarna og
veifað.“
Nú tekur við mikill annatími
hjá Unni Birnu. Sem dæmi má
nefna mikla heimsreisu en hún
er farin í því skyni að safna pen-
ingum til góðgerðamála. „Ég mun
heimsækja allar heimsálfurnar og
kem ábyggilega til svona hundr-
að borga,“ segir hún, en áður en
af þessu verður fær hún þó að
skreppa heim til að halda jól.
Þá segist Unnur Birna ekki
ætla að láta keppnina raska öllum
framtíðaráætlunum. Til dæmis
ætlar hún að halda áfram lög-
fræðinámi sínu við Háskólann í
Reykjavík. „Miss World samtök-
in hvetja mig til að halda áfram
námi og borga til að mynda öll
skólagjöld fyrir mig. Ég ætla því
að reyna að sinna skólanum eitt-
hvað.“ - þg/óká / sjá síðu 6
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir segist alls ekki hafa átt von á að sigra á laugardaginn:
Missti gjörsamlega andlitið
UNNUR BIRNA VILHJÁLMSDÓTTIR
Unnur Birna hafði betur en 101 önnur
stúlka í slagnum um hver yrði valin Ung-
frú heimur á laugardag.
MYND/AP
„Allt bendir til
þess að þetta
hafi verið slys.“