Fréttablaðið - 12.12.2005, Page 4
ÁLIT Umboðsmaður alþingis hefur
skilað af sér áliti vegna ákvörðun-
ar stjórnvalda um að setja komu-
bann á meðlimi Falun Gong meðan
á opinberri heimsókn Kínaforseta
stóð sumarið 2002. Þar kemur
fram að íslensk stjórnvöld hafi
ekki haft fullnægjandi lagaheim-
ild til þess að meina meðlimum
Falun Gong fyrirfram landgöngu
og fela einkaréttarlegum aðila,
Flugleiðum hf., að framkvæma
þá ákvörðun með því að meina
iðkendum Falun Gong að ganga
um borð í vélar flugfélagsins.
Meðan á heimsókn forseta
Kína stóð hugðust fjölmargir
meðlimir Falun Gong koma til
landsins til þess að mótmæla
meðferð kínverskra stjórnvalda
á meðlimum Falun Gong hreyf-
ingarinnar í Kína. Mótmælin áttu
að fara fram á friðsamlegan hátt
enda boðar hreyfingin umburð-
arlyndi, umhyggju og sannleika.
Nokkuð margir iðkendur Falung
Gong komu til landsins og höfðu
stjórnvöld áhyggjur af því að lög-
reglan í landinu hefði ekki mann-
afl til að takast á við hugsanleg
vandamál. Fjölmargir meðlimir
hreyfingarinnar voru stöðvaðir
á Keflavíkurflugvelli og snúið
heim. Þá voru 26 mótmælendur
fluttir í Njarðvíkurskóla þar sem
þeim var haldið þar til þeir voru
sendir til síns heima. Að auki
fengu íslensk stjórnvöld í hend-
ur lista yfir meðlimi Falun Gong
víðs vegar í heiminum og eftir
þessum lista var farið þegar með-
limum Falun Gong var meinað að
ganga um borð í flugvélar Flug-
leiða á um 10 flugvöllum í Evrópu
og Norður-Ameríku.
Ákvörðun stjórnvalda var harð-
lega gagnrýnd á sínum tíma enda
var Ísland fyrsta vestræna ríkið
sem meinaði meðlimum hreyf-
ingarinnar að koma til landsins.
Tveir einstaklingar kvörtuðu
undan aðgerðum stjórnvalda við
umboðsmann alþingis. Beindist
kvörtunin meðal annars að þeirri
ákvörðun stjórnvalda að neita
mönnum, sem höfðu gilda farseðla
og fullnægjandi ferðaheimildir,
að ganga um borð í flugvélar á leið
til landsins. Samkvæmt upplýs-
ingum frá dómsmálaráðuneytinu
á þeim tíma var tilgangurinn sá
að „spara umstang við landgöngu-
synjun og sendingu viðkomandi til
baka“. Það er mat umboðsmanns
alþingis að þær ástæður hafi ekki
dugað til þess að setja komubann
á mótmælendurna.
Umboðsmaður alþingis bendir
á að í gögnum dóms- og kirkju-
málaráðuneytisins sé ekki hægt
að lesa með skýrum hætti hver
lagalegur grundvöllur ákvörð-
unar ráðuneytisins hafi verið. Í
gögnunum er vísað til laga um
eftirlit með útlendingum sem að
mati umboðsmanns fela ekki í sér
fullnægjandi heimilir til að setja
slíkt bann. Að mati umboðsmanns
var réttur farþeganna jafnframt
brotinn þar sem þeir áttu ekki
kost á að fá ákvörðun lögreglu-
stjóra eða útlendingaeftirlits end-
urskoðaða hjá æðra stjórnvaldi
þar eð dómsmálaráðuneytið hafði
þegar komið með beinum hætti að
málinu.
Þótt umboðsmaður gagnrýni
ákvörðun stjórnvalda telur hann
ekki ástæðu til þess að stjórnvöld
taki ákvörðun sína til baka. Hann
beinir hins vegar þeim tilmælum
til ráðuneytisins að taka mið af
álitinu ef íslensk stjórnvöld standa
í framtíðinni frammi fyrir sam-
bærilegum aðstæðum. Þá segir
umboðsmaður ennfremur að það
verði að vera verkefni dómstóla
að skera úr um hvort íslenska
ríkið hafi með ákvörðunum sínum
bakað sér skaðabótaskyldu gagn-
vart þeim sem hlut áttu að máli.
thorgunnur@frettabladid.is
������������������������ ����������
w w w . l e t t s v e i t . i s d r e i f i n g s e n a
SVEITARSTJÓRNARMÁL Nýju sveit-
arfélagi í Austur-Húnavatnssýslu
á að gefa nafnið Húnavatnshrepp-
ur, samkvæmt niðurstöðu sveit-
arstjórnarkosninga sem fram
fóru á laugardag, en þá var kosið
um nýtt nafn á hreppinn.
Hreppurinn varð til við sam-
einingu Bólstaðarhlíðarhrepps,
Sveinsstaðahrepps, Svínavatns-
hrepps og Torfalækjarhrepps er
samþykkt var 20. nóvember í fyrra
og tekur gildi nú um áramót.
Kosin var sjö manna sveit-
arstjórn og fékk A-listi, listi
Framtíðar, sem Björn Magnús-
son á Hólabaki leiðir, fjóra menn
kjörna, en E-listi, Nýtt afl, sem
Ólöf Birna Björnsdóttir á Hæli
leiðir, fékk þrjá.
Íbúar hreppsins eru um 400
talsins og situr ný sveitarstjórn
bara fram á vor, en þá fara
fram lögbundnar sveitarstjórn-
arkosningar.
Ólöf Birna segir helstu verkefn-
in sem framundan eru að koma á
upplýstu samfélagi, sinna atvinnu-
málum, vinnu að aðalskipulagi
og fleira. Varðandi frekari sam-
einingu þá segir hún hana ekki
á döfinni næstu árin, enda hafi
íbúar hreppanna kosið þá samein-
ingu sem nú sé komin á. Nýtt afl
segir hún hins vegar helst vilja sjá
sameiningu Húnavatnshrepps og
Áshrepps sem fyrst. „En auðvitað
veit enginn hvað framtíðin ber í
skauti sér,“ segir hún. - óká
Ný sveitarstjórn situr frá áramótum fram að sveitarstjórnarkosningum vor:
Húnavatnshreppur orðinn til
LANDBÚNAÐUR Fyrstu tölur benda til
að afurðir sláturtíðarinnar í haust
séu talsvert meiri en í fyrra.
Fyrstu yfirlitstöflur um niður-
stöður úr fjárræktarfélögunum
haustið 2005 eru nú aðgengilegar
á vef Bændasamtakanna, www.
bondi.is. Þar kemur fram að
uppgjöri sé lokið fyrir rúmlega 66
þúsund ær frá haustinu.
„Fullorðnu ærnar í uppgjör-
inu eru orðnar yfir 303 þúsund og
þær veturgömlu rúm 55 þúsund,“
segja Bændasamtökin, en sam-
kvæmt uppgjörinu nemur fjölgun
á ám nær 30 prósentum frá fyrra
ári. „Skýringin á þessari gífur-
lega miklu fjölgun er að sjálfsögðu
gæðastýringin í sauðfjárræktinni
sem hófst árið 2004,“ segja Bænda-
samtök Íslands. - óká
Uppgjör sláturtíðarinnar:
Afurðir virðast
meiri en í fyrra
ÍRAK, AP Yfirvöld í Írak segjast
ekki hafa neinar upplýsingar um
þá sjö vestrænu gísla sem hafa
verið í haldi í landinu undanfarið.
Í síðasta mánuði var þýskum forn-
leifafræðingi rænt í Bagdad og
nokkrum dögum síðar var fjór-
um kristnum friðarsinnum rænt
í borginni. Samtökin sem rændu
friðarsinnunum hótuðu því að
drepa þá í síðasta lagi á laugardag.
Tveimur mönnum til viðbótar,
Frakka og Bandaríkjamanni, var
einnig rænt í þessum mánuði. - fb
Vestrænir gíslar í Írak:
Ekkert vitað
um afdrif gísla
KVEIKT Á KERTUM Meðlimir í samtökum
kristinna friðarsinna kveiktu á kertum er
þeir báðu fyrir félögum sínum sem var
rænt í Írak. AP/MYND
MÓTMÆLI Iðkendur Falun Gong mótmæla
á friðsaman hátt fyrir framan Stjórnarráðið
í júní 2002.
Stjórnvöld höfðu
ekki lagaheimildir
Umboðsmaður alþingis telur að íslenska ríkið hafi ekki haft lagalega heimild til
þess að setja komubann á iðkendur Falung Gong sumarið 2002. Hann segir það
íslenskra dómstóla að skera úr um hvort ríkið hafi bakað sér skaðabótaskyldu.
ÓLÖF BIRNA BJÖRNSDÓTTIR Ólöf Birna var
efsti maður á lista Nýs afls í Húnavatns-
hreppi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÁSTRALÍA, AP Þúsundir hvítra
ungmenna efndu til mótmæla í
Sydney í Ástralíu í gær og þurfti
lögreglan að hafa hendur í hári þó
nokkurra ólátabelga.
Mótmælin áttu sér stað á
ströndinni Cronulla og höfðu mót-
mælendurnir flestir áfengi um
hönd.
Hrópuðu þeir ókvæðisorð gegn
öðrum kynþáttum og réðust á fólk
af mið-austurlenskum uppruna.
Að minnsta kosti tólf voru hand-
teknir fyrir líkamsárásir og eign-
aspjöll. -fb
Kynþáttaóeirðir í Sydney:
Tólf handteknir
ÓLÁTABELGIR Margir mótmælendanna
höfðu áfengi um hönd á Conulla-strönd,
þar á meðal þessi sem ætlaði að kasta
bjórflösku í lögreglumann.
NOREGUR Lög sem skylda skráð
hlutafélög til að hafa að minnsta
kosti fjórar af hverjum tíu stjórn-
armönnum konur ganga í gildi um
áramótin í Noregi.
Félögin fá tvö ár til að auka
hlutfallið þannig að í ársbyrjun
2008 eiga konur að sitja í öðru
hverju stjórnarsæti, annars geta
félögin misst starfsleyfi.
Sænska dagblaðið Dagens
Nyheter segir að frestinn fái ekki
félög sem verði stofnuð eftir ára-
mótin. Þegar norska ríkisstjórn-
in lét skoða hlutfall kynjanna í
stjórnum félaga í sumar kom í ljós
að konur voru aðeins sextán pró-
sent stjórnarmanna.
Norðmenn setja ný lög:
Kynjakvóti í
stjórnum
WASHINGTON, AP Öldungadeild
Bandaríkjaþings og Hvíta húsið
munu á næstunni samþykkja til-
lögu um að banna pyntingar til
að fá mikilvægar upplýsingar hjá
grunuðum hryðjuverkamönnum.
Þessu heldur Bill Frist, leiðtogi
repúblikana í öldungadeildinni,
fram. Þingmaðurinn John McCain
er stuðningsmaður tillögunnar,
sem var nýlega samþykkt í öld-
ungadeildinni með níutíu atkvæð-
um gegn níu.
McCain krafðist þess að ríkis-
stjórn George W. Bush, forseta,
samþykki tillöguna án tafar. - fb
Tillaga Bandaríkjaþings:
Pyntingar
verði bannaðar
4 12. desember 2005 MÁNUDAGUR
������
��������������������������
������������������������
���������������� ���� ������ ������
�������������� ���� ������� �������
����� ���� ������ ������
������������ ���� ������ ������
������������ ���� ����� �����
������������ ���� ������ ������
������������� ���� ������� ������
� ���� ������ �����
��� �����������������������
���� ����
������