Fréttablaðið - 12.12.2005, Qupperneq 30
12. desember 2005 MÁNUDAGUR4
Enn fleiri sniðugar og ódýrar
hugmyndir verða sýndar í
þættinum Veggfóðri í kvöld. Í
þættinum verður sýnt hvernig
Anna Karen Hauksdóttir hefur
breytt gólfdúk í borðdúk og
hvernig hún notar fataskápinn
sinn undir þvottavélina og
þurrkarann sinn.
Anna Karen er formaður starfs-
mannafélagas Íslandsbanka og á
sæti í stjórn samtaka starfsmanna
fjármálafyrirtækja. Í íbúðinni sinni
hefur hún bryddað upp á nokkrum
sniðugum lausnum. Þar á meðal
hefur hún hálfgert þvottahús inni
í fataskáp í svefnherberginu sínu.
,,Þetta var hugmynd frá bróður
mínum, Einari, sem er húsasmíða-
meistari. Skápurinn snýr nefnilega
að baðherberginu þannig að það var
mjög stutt í allar pípulagnir. Einar
smíðaði skápinn þess vegna djúpan
þannig að þvottavélin kæmist fyrir
í honum. Annars hefði þvottvélin
tekið svo mikið pláss inni á baðher-
bergi. Ég hefði þurft að breyta því
öllu og til dæmis þurft að henda
baðkarinu út,“ segir Anna.
Hún segir jafnframt að þvotta-
vélin og þurrkarinn taki ekki of
mikið pláss frá henni inni í svefn-
herbergi. ,,Ég var alveg tilbúin
að fórna þessu skápaplássi fyrir
þvottahús, því maður er með
stráka sem eru í íþróttum og þarf
að þvo af á hverjum degi.“
Þurrkarinn er barkalaus og
segir Anna að það lofti ágætlega
í gegnum skápinn og síðan pass-
ar hún bara upp á að hafa glugga
opinn í herberginu. ,,Svo er þetta
líka ágætt fyrir fötin sem eru inni
í skápnum. Þegar fötin fá smá hita
verða þau bara drellifín, þannig
að þurrkarinn virkar sem gufu-
straujárn í leiðinni,“ segir Anna
og hlær.
Aðra hugmynd sem Anna
Karen sýnir í þættinum má finna
í eldhúsinu hennar. ,,Ég fékk dúka-
lagningamann til þess að leggja
línóleumdúk yfir plastborðplötu
sem var fyrir. Þessi hugmynd kom
einnig frá bróður mínum,“ segir
Anna Karen. Að sögn Önnu Karen-
ar er efnið mjög sterkt og end-
ingargott. Það má setja allt ofan
á dúkinn, jafnvel heita pönnu eða
potta. Þar að auki er mjög auðvelt
að þrífa dúkinn.
Vala Matt segist vera ánægð
með þessar hugmyndir því þær
séu enn ein viðbótin við allar þær
frumlegu og einföldu lausnir sem
litið hafa dagsins ljós í þáttunum.
Hönnunar- og lífsstílsþátturinn
Veggfóður verður á dagskrá sjón-
varpsstöðvarinnar Sirkus í kvöld
klukkan 21. steinthor@frettabladid.is
Þvottahús í fataskápnum
Anna Karen sýnir Völu inn í þvottahúsið sitt. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Gólfdúkurinn fellur vel að eldhúsinnréttingunni og er auk þess mjög fallegur.
Línóleumdúkurinn nýtist vel í eldhúsinu hjá Önnu. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
VEGGFÓÐUR