Fréttablaðið - 12.12.2005, Qupperneq 66
HALLDÓR GUÐMUNDSSON
> SKRIFAR UM BÓKMENNTIR
12. desember 2005 MÁNUDAGUR30
menning@frettabladid.is
Da
gat
al S
par
isjóð
sins 2006 er komið!
... og bjóðum upp á ilmandi kaffi og piparkökur.
Verið velkomin í jólastemninguna.
www.spar.is
Verst við bókmenntaverðlaun er að fá þau ekki. Alltaf þótti mér erfitt sem útgef-
anda að þurfa að tilkynna höfundum góðra fagurbókmenntaverka að þeir væru
ekki tilnefndir til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Það gerðist jafnan á við-
kvæmasta tíma vertíðarinnar og ósanngjarnt að ætlast til þess að höfundar líti
á þetta ferli í einhverju „stærra samhengi“ - þegar verið var að ganga framhjá
þeim. Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna eru alltaf í aðra röndina
eins konar leikur, sem ekki má taka of alvarlega, en að sjálfsögðu bera verð-
launin þess merki að þau eru stofnsett og borguð af útgefendum. Tilnefningar
taka mið af markaðsaðstæðum og þeim er beinlínis ætlað að vera söluhvetj-
andi.
Því til varnar er hægt að benda á að oft hafa tilnefningarnar vakið athygli
á bókum sem ella hefði ekki farið mikið fyrir og að þessu leyti ekki bara lotið
markaðslögmálum. Aldrei hefur verið sýnt fram á að það hafi beinlínis skaðað
bók á markaðnum að vera ekki tilnefnd; og oft hefur lokanefnd tekist vel upp
við val verðlaunahafa (af sjálfsagðri smekkvísi er rétt að ítreka að hér er rætt
um fagurbókmenntirnar). En það er erfitt að koma sér upp svona mikilli víðsýni
í hasarnum miðjum, þegar taugarnar eru þandar til hins ítrasta. Þess vegna er
líka rétt að minna á að um langa hríð hafa verið til önnur bókmenntaverð-
laun, DV verðlaunin, sem góðir menn kalla Jónasar-Nóbelinn, þar sem bæði
tilnefningar og verðlaunaveitingar snemma vors hafa oftar en ekki heppnast
vel. Vandinn er bara sá að fyrir utan heiðurinn og hráan fisk á Hótel Holti hefur
höfundurinn ekki borið annað úr býtum en listrænan öskubakka eða annan
góðan grip - en það sem rithöfundar á hinum dvergvaxna íslenska markaði
þurfa öðru fremur á að halda til að sinna starfi sínu eru peningar, og þar með
talin peningaverðlaun.
Það er sameiginlegt þessum verðlaunum að vekja oft athygli á vönduðum
bókum og góðum höfundum, en valið er auðvitað mannanna verk og það á sér
stað áður en nokkur leið er að öðlast gagnrýna fjarlægð. Þess vegna er líka rétt
að vekja athygli á þeim ágætu höfundum sem aldrei hafa hlotið Íslensku bók-
menntaverðlaunin. Ég nefni af handahófi Einar Má Guðmundsson, Braga Ólafs-
son, Sjón, Kristínu Ómarsdóttur, Jón úr Vör, Pétur Gunnarsson, Ólaf Jóhann
Ólafsson, Vilborgu Dagbjartsdóttur, Álfrúnu Gunnlaugsdóttur, Einar Kárason,
Kristínu Helgu Gunnarsdóttur, Arnald Indriðason og Guðrúnu Helgadóttur. Og
sumir hafa aldrei viljað láta tilnefna sig (Matthías Johannessen).
Það sem skiptir máli er að listi þeirra sem hafa ekki hlotið verðlaunin er
að minnsta kosti jafn sterkur og listi þeirra sem hafa hlotið þau. Sem senni-
lega verður að teljast viðunandi árangur hjá Islensku bókmenntaverðlaunun-
um, hvernig svosem það mun líta út síðar úr bókmenntasögulegri fjarlægð.
Því þegar reynt hefur verið að stilla upp hliðstæðum samanburði með Nóbels-
verðlaunin hallar yfirleitt á þau. Sé spurt er um merka höfunda á 19. öld sem
lifðu fram á þá 20. og hefðu því getað hlotið verðlaunin, en gerðu það ekki,
koma upp nöfn eins og Leo Tolstoj, Henrik Ibsen, August Strindberg og Joseph
Conrad. Sem eru líklega áhrifameiri höfundar en Rudolf Eucken, Giosue Car-
ducci, Jose Echegaray og Sully Prudhomme, sem voru meðal þeirra sem fengu
Nóbelsverðlaun á fyrsta áratug 20. aldar.
Og listinn yfir höfunda 20. aldar sem gengið hefur verið framhjá er óralang-
ur, frá Virginiu Woolf, Sylviu Plath og Simone de Beauvoir til Ezra Pound, Bertolt
Brecht og Graham Greene.
Samt mun vandfundinn sá höfundur sem þykir betra að hafa ekki fengið
bókmenntaverðlaun.
Um bókmenntaverðlaun
> Ekki missa af ...
... sýningu Tilraunaeldhússins í
Nýlistasafninu með fjölskrúðugum
uppákomum á þriðjudags- og fimmtu-
dagskvöldum.
... aðventutónleikum Óperukórs Hafn-
arfjarðar sem haldnir verða í kvöld
klukkan 20 í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði.
... sýningu
Daníels
Björnssonar,
Inngarður,
í galleríinu
Bananananas
að Laugavegi
80. Sýningin
stendur til 17.
desember og
er opin frá
klukkan 18
til 20.
Kl. 20.00
Upplestur gegn ofbeldi. Skáldin
Þorsteinn frá Hamri, Þórarinn Eld-
járn, Thor Vilhjálmsson, Sigurður
Pálsson, Stefán Máni, Guðrún Eva
Mínervudóttir, Einar Kárason,
Linda Vilhjálmsdottir, Vigdís
Grímsdóttir, Þráinn Bertelsson og
Ólafur Gunnarsson lesa úr verk-
um sínum í Neskirkju í minningu
Ragnars Björnssonar, sem lést 12.
desember í fyrra af völdum áverka
í kjölfar árásar sem hann varð fyrir.
Séra Örn Bárður Jónsson les ritning-
arlestra og stýrir dagskránni, sem er
öllum opin.
Sannkallað gjörningakvöld
verður í Loftkastalanum í
kvöld þegar myndlistarkon-
urnar Ingibjörg Magnadótt-
ir og Kristín Eiríksdóttir
gera áhorfendur orðlausa
og ráðvillta.
„Fyrsti gjörningurinn heitir
Afríkanskur kvenprestur og var
fluttur í Norræna húsinu í tengsl-
um við Norrænu ráðherranefnd-
ina og sýninguna Föðurmorð
og nornatími,“ segir Ingibjörg
Magnadóttir, sem ætlar að fremja
þrjá gjörninga í Loftkastalanum í
kvöld ásamt Kristínu Eiríksdótt-
ur. „Þessi kvenprestur er tveir og
hálfur metri á hæð og hún er með
mikilvæg skilaboð.“
Næsti gjörningur sem þær
flytja heitir Blindar sýn og var
fyrst fluttur í Nýlistasafninu
fyrir stuttu.
„Þar hittum við tvær systur
sem brunnu illa. Þær sofa í sama
rúmi og rúmið þeirra brann, en
þær eru rosalega þakklátar fyrir
að hafa hug og hjarta þó þær séu
ekki mikið fyrir augað. Þetta
verður svolítil helgiathöfn.“
Þriðja gjörninginn, sem fluttur
verður í fyrsta sinn í kvöld, nefna
þær Kynlífsgjörninginn.
„Þetta er náttúrlega eilífðar-
mál, kynlífið,“ segir Ingibjörg.
„Við ætluðum að hafa Sverri
Stormsker með okkur í þeim
gjörningi af því hann samdi svo
æðislegt ástarlag, en eftir langa
leit komumst við að því að hann er
því miður á Taílandi.“
Þótt Sverrir hafi verið utan seil-
ingar taka ýmsir þátt í að fremja
gjörningana auk þeirra Ingibjarg-
ar og Kristínar. Til dæmis tekur
Guðrún Eva Mínervudóttir rithöf-
undur þátt í Kynlífsgjörningnum
og Hörður Bragason organisti
tekur þátt í gjörningnum Blind-
ar sýn. Kynnir kvöldsins verður
síðan fréttamaðurinn G. Pétur
Matthíasson.
„Við vildum fá einhvern virðu-
legan eldri gaur í jakkafötum til
að flytja texta eftir okkur, svona
sem mótvægi af því hitt er allt svo
litríkt,“ segir Ingibjörg.
„Við erum báðar löngu hættar
að pæla af einhverju viti, enda er
konseptið náttúrlega dautt,“ segir
Ingibjörg þegar hún er spurð
hvert þær séu að fara í gjörning-
um sínum. „Konseptið er í dag
eitthvað sem er gert á auglýsinga-
stofum þar sem menn eru alltaf að
fá góðar hugmyndir, og í hópum
þar sem verið er að vinna hug-
myndavinnu. Þetta sem við erum
að gera er eitthvað annað. Það er
kannski ekki fyrr en seinna sem
maður fattar hvað maður var að
segja eða gera.“
Átta sig fyrst eftir á
Tólf glæpasöguhöfundar
ætla að leggja leið sína í
Þjóðmenningarhúsið fram
að jólum, einn á dag rétt
eins og jólasveinarnir, til
þess að lesa upp úr bókum
sínum í hádeginu.
Það er Súsanna Svavars-
dóttir sem ríður á vaðið í dag
og les úr erótískri spennu-
sögu sinni, Dætrum hafsins.
Einn af öðrum skjóta þeir
síðan áhlýðendum skelk í bringu með hrollvekj-
andi upplestri úr nýjum verkum sínum, sem sum
eru reyndar lífsreynslusögur frekar en skáldskap-
ur.
Árni Þórarinsson kemur á morgun og les úr Tíma
nornarinnar, á miðvikudaginn les Yrsa Sigurðar-
dóttir úr Þriðja tákninu og á fimmtudaginn les
Ævar Örn Jósepsson úr Blóðbergi.
Á föstudaginn er röðin
komin að Þráni Bertels-
syni sem les úr Valkyrjum
sínum, þá kemur Hreinn
Vilhjálmsson á laugardag-
inn og les úr bók sinni,
Bæjarins verstu, þar sem
hann greinir frá reynslu
sinni af utangarðs-
mennsku í Reykjavík, og
síðan taka þau við hvert
af öðru, Guðrún Eva Mín-
ervudóttir sunnudaginn 18. desember, Viktor Arnar
Ingólfsson mánudaginn 19., Stefán Máni hinn 20.,
Reynir Traustason hinn 21. og Jón Hallur Stefánsson
mætir á svæðið 22. desember.
Loks er það Arnaldur Indriðason sem rekur
lestina á sjálfa Þorláksmessu með bók sína Vetrar-
borgina, sem Ingvar E. Sigurðsson leikari ætlar að
lesa úr valda kafla.
Jólahrollur í hádeginu
SÚSANNA SVAVARSDÓTTIR RITHÖFUNDUR
BLINDAR SÝNA Úr gjörningi þeirra Ingibjargar Magnadóttur og Kristínar Eiríksdóttur í
Nýlistasafninu í síðustu viku. Bakatil er Hörður Bragason.
!