Fréttablaðið - 12.12.2005, Page 68

Fréttablaðið - 12.12.2005, Page 68
 12. desember 2005 MÁNUDAGUR32 Stóra svið Salka Valka Mi 28/12 kl. 20 Su 8/1 kl. 20 Woyzeck Fi 29/12 kl. 21 Fö 30/12 kl. 21 Lau 7/1 kl. 20 Su 15/1 kl. 21 Kalli á þakinu Má 26/12 kl. 14 Su 8/1 kl. 14 Su 15/1 kl. 14 Carmen Fi 12/1 kl. 20 FORSÝNING miðav. 2.000- kr Fö 13/1 kl. 20 FORSÝNING miðav. 2.000- kr Lau 14/1 kl. 20 FRUMSÝNING Nýja svið/Litla svið Þrjár systur e. Tsjekhov Nemendaleikhúsið Aðeins sýnt í desember Þr 13/12 kl. 20 Fö 16/12 kl. 20 Lau 17/12 kl. 20 Su 18/12 kl. 20 Manntafl Mi 28/12 kl. 20 Alveg brilljant skilnaður Fi 29/12 kl. 20 AUKASÝNING Fö 30/12 kl. 20 AUKASÝNING Síðustu sýningar GJAFAKORT GEFÐU EFTIRMINNILEGA UPPLIFUN GJAFAKORT Í BORGARLEIKHÚSIÐ GILDA ENDALAUST Miðasala á netinu Borgarleikhúsið hefur opnað miðasölu á netinu Einfalt og þægilegt á vefsíðunni www.borgarleikhus.is Það var margt góðra gesta við opnun sýningarinnar „Allir fá þá eitthvað fal- legt“, í Gallery Turpintine á dögunum en val listamanna á sýningunni var í höndum Hall- gríms Helgasonar rithöfundar og myndlistarmanns. „Hallgrímur er mikið í umræð- unni og ég vissi sem var að hann myndi velja góð og djörf verk,“ segir Sveinn Þormóðsson eigandi Gallery Turpintine, spurður hvers vegna hann leitaði á náðir Hall- gríms. Sveinn er hæstánægður með hvernig til tókst og kveðst stefna á að halda sýningu sem þessa árlega. Sýningin stendur fram á Þor- láksmessu og en á henni eru verk eftir Húbert Nóa, Kristínu Gunn- laugsdóttur, Jón Sæmund Auð- arsson, Georg Guðna, Aron Reyr, Hildi Ásgeirsdóttur, Kristján Dav- íðsson, Sigurð Árna Sigurðsson og Hallgrím sjálfan. SKÁL Í BOÐINU Ólöf Thorlacius, Ragnheiður Agnarsdóttir og Þröstur Þórhallsson létu vel af sýningunni og leiddist ekki að Hallgrímur skyldi lesa úr bók sinni, Rokland, við sama tækifæri. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Allir sáu eitthvað fallegt SMEKKVÍSI Þetta málverk Hlaðgerðar Írisar Björnsdóttur vakti hrifningu margra og þótti bera smekkvísi Hallgríms gott vitni. METSÖLUVERK Tómas Jónsson, grafískur hönnuður, virti verkin fyrir sér af stakri andakt. LISTFENGUR HÓPUR Hallgrímur ásamt nokkrum af þeim listamönnum hverra verk hann valdi á sýninguna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN TVEIR Á TOPPNUM Þorleifur Kamban, grafískur hönnuður, og Guðjón Bjarnason, myndlistarmaður og arkitekt, voru meðal þeirra 300 sem létu sjá sig við opnunina. STOLTUR LISTAMAÐUR Þórdís Gissurardóttir og Hlaðgerður Íris Björnsdóttir skemmtu sér vel, en verk hinnar síðarnefndu var meðal þeirra mynda sem Hallgrímur valdi á sýninguna. VOPNIN KVÖDD Hallgrímur Helgason og Kári Stefánsson stóðu í bleki drifinni ritdeilu í upphafi árs. Þeir virðast hafa slíðrað pennann, í bili að minnsta kosti, og ræddu saman í mesta vinfengi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.