Fréttablaðið - 12.12.2005, Blaðsíða 73
MÁNUDAGUR 12. desember 2005 37
Sienna Miller og Leonardo
DiCaprio hafa átt leynilega ástar-
fundi undanfarna tvo mánuði að
sögn breska slúðurdálkahöfund-
arins Rav Singh en þetta kemur
fram í götublaðinu News of the
World sem kom út í gær. Leonardo
sleit nýverið samvistum við ofur-
fyrirsætuna Gisele Bundchen en
hann er víst sagður í sárum eftir
skilnaðinn. Sienna hefur því verið
ákaflega hjálpleg við að lina þján-
ingar hjartaknúsarans ef marka
má fréttir blaðsins. Þessi ástamál
eru þó langt frá því að vera einföld
því Miller hefur ekki sagt skilið
við Jude Law.
Miller og DiCaprio hittust fyrst
á Bafta-verðlaunahátíðinni í fyrra
og endurnýjuðu þau kynni fyrir
tveimur mánuðum. Þau hafa sést
úti á lífinu í New York og Holly-
wood en samkvæmt heimildum
blaðsins þá njóta þau samvista
hvors annars þannig að í uppsigl-
ingu gæti verið nýtt og glæsilegt
frægðarpar.
Leonardo og
Sienna nýtt par?
DICAPRIO Er að sögn breska blaðsins News
of the World nýja ástin í lífi Siennu Miller.
Uppistandarinn og gamanmynda-
leikarinn Richard Pryor féll frá
á laugardag eftir áralanga bar-
áttu við veikindi, 65 ára gamall.
Pryor var frumkvöðull á sínum
tíma og varð þekktur fyrir að láta
allt flakka, þó það kunni ekki að
virðast sérkennilegt í dag. Einnig
var hann einn af fyrstu þeldökku
leikurum Hollywood til að öðlast
nægar vinsældir og umsvif til að
slíta af sér stjórnartauma stóru
kvikmyndaveranna og stýra ferli
sínum sjálfur.
Pryor þótti mikill sóðakjaftur
en hafði einnig skarpan skilning
á hversdagslegum málefnum
og samskiptum ólíkra kynþátta.
Hann hafði áhrif á menn eins og
Robin Williams, Eddie Murphy,
Chris Rock og David Letterman
svo dæmi séu tekin. Hann lék í
fjölda kvikmynda allt til 1991,
en frægðarsól hans reis hæst
snemma á níunda áratugnum.
Pryor átti lengi við áfengis-
og fíkniefnavandamál að stríða,
kvæntist sex sinnum og eignaðist
5 börn.
Sóðakjaftur og frumkvöðull:
Richard Pryor allur
RICHARD PRYOR „Ég átti
frábærar stundir og
ég átti slæmar stundir,
Þær bestu og verstu,
með öðrum orðum: ég
átti mér líf.“
Leikarinn Mel Gibson
hefur verið nefndur sem
líklegur arftaki Arnolds
Schwarzenegger sem
næsti fylkisstjóri Kali-
forníu. Leikarinn og leik-
stjórinn margfrægi, sem
meðal annars leikstýrði
og lék aðalhlutverk-
ið í óskarsverðlauna-
myndinni Braveheart,
hefur sérstaklega verið
nefndur til sögunnar af
repúblikönum, sem eru
ósáttir við störf Schwarzeneggers.
Nú er svo komið að búið er að setja
upp vefsíðu þar sem hægt er að
skrifa nafn sitt því til stuðnings að
Gibson fari í framboð þrátt fyrir
að hann hafi sjálfur aldrei sagst
vilja gegna opinberu embætti.
Stuðningur við Schwarz-
enegger hefur minnkað
mikið á undanförnum
vikum eftir að hann
útnefndi demókrata
sem starfsmannastjóra
sinn. Mike Spence, tals-
maður vefsíðunnar sem
vill Gibson í stjórnmál-
in, segir að kominn sé
tími fyrir nýjan mann í
brúnni. ,,Við verðum að
fara að leita að öðrum
möguleikum þar sem
Schwarzenegger er byrjaður að
haga sér eins og einhver sem vill
ólmur komast aftur til Hollywood.
Við vonumst til þess að setjast
niður með Gibson í allra nánustu
framtíð og fara yfir þennan mögu-
leika með honum.“
Gibson næsti fylkisstjóri?
FRÉTTIR AF FÓLKI
Orðrómur er uppi um að söngkonan og
ofurskvísan Mariah Carey
sé trúlofuð. Talið er að
kærasti hennar, Mark
Sudack, hafi beðið
hennar í síðustu viku
og Carey hafi sagt já.
Þetta yrði í annað sinn
sem Carey gengur upp
að altarinu.
Tónlistarmaðurinn Prince hefur gert
útgáfu-
samn-
ing við
Uni-
versal
vegna næstu
plötu sinnar,
3121. Síðasta
plata Prince,
Musicology, kom út
í fyrra og náði hún að
endurvekja vinsældir
kappans svo um
munaði.