Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.12.2005, Qupperneq 86

Fréttablaðið - 12.12.2005, Qupperneq 86
 12. desember 2005 MÁNUDAGUR50 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÁRÉTT 2 spjall 6 í röð 8 hamfletta 9 umhyggja 11 belti 12 hljóð í ketti 14 svipað 16 rás 17 fum 18 óðagot 20 kusk 21 auma. LÓÐRÉTT 1 eymd 3 frá 4 matjurt 5 eldur 7 slitinn 10 til sauma 13 tilvist 15 frumeind 16 þjálfa 19 tveir eins. LAUSN Anna Gunnarsdóttir, hönnuður frá Akur- eyri, fékk heiðursverðlaun á Wearable Art Expressions hönnunarsamkeppninni sem haldin var í Palos Verdes Art Center skammt frá Los Angeles í byrjun desember. „Ég hef aðallega fengist við að hanna aukahluti á borð við töskur en ákvað að senda myndir af alklæðnaði á þrjár manneskjur í þessa keppni,“ sagði Anna þegar Fréttablað- ið náði tali af henni á vinnustofunni Svartföt og hvítspóa í blíðviðrinu norðan heiða. Dóm- nefndinni leist svo vel á það sem Anna hafði upp á að bjóða að allt þrennt var valið en það telst til tíðinda því hundruð hönnuða sóttu um en aðeins 72 búningar voru valdir. Anne Sheikh fékk aðalverðlaun keppninnar en átta aðrir hönnuðir fengu sérstaka heiðursviður- kenningu og var Anna í þeim hópi. Hún fékk viðurkenningu fyrir jakka úr þæfðri ull og silki með laxaroð á bryddingum, topp úr lax- aroði og pils úr ull og silki. Það gekk ekki þrautalaust að koma klæðn- aðinum inn í Bandaríkin því náttúruvernd- arsamtök vildu fullvissa sig um að laxaroðið sem var notað væri ekki af laxi í útrýming- arhættu eða að fötin hefðu verið unnin upp úr hvalsolíu. „Það voru allir rosalega ánægð- ir þegar pakkinn komst loks til skila,“ segir Anna og hlær. Þá voru einnig einhverjir sem efuðust um að hægt væri að búa til föt úr þessu efnum og héldu að roðið hefði verið límt eða saumað á fötin. „Þetta er mjög vand- að og það er mjög sérstakt að búa til fatnað úr þessum efnum,“ útskýrir hönnuðurinn. Alklæðnaðurinn seldist strax en er enn til sýnis í Palos Verdes Art Center. Anna hélt enn fremur kynningu á öðrum verkum sínum og heimalandi. Þar kom í ljós að Ísland er ekki alveg jafn stórt á heimskortinu og við höldum gjarnan. „Það voru einhverjir gestanna sem höfðu gert sér það í hugarlund að við byggjum enn í torf- kofum,“ segir hún og skellir upp úr en tekur þó fram að aðrir hafi kannast vel við land og þjóð. Anna hitti argentíska hönnuðinn Sean á sýningunni, en hann er mjög frægur meðal stjarnanna í Hollywood og hefur búið til föt á frægustu leikkonur heims. „Það var mjög gaman að spjalla við hann og Sean þykir mér fær á sínu sviði,“ segir Anna en sjálf hitti hún enga stórstjörnu. „Mér skilst reyndar að ein- hver sápuóperustjarna hafi keypt sjal eftir mér en ég horfi svo lítið á sjónvarp að ég veit ekkert hver það var,“ segir hún og hlær. freyrgigja@frettabladid ANNA GUNNARSDÓTTIR: FÉKK HEIÐURSVERÐLAUN Í LOS ANGELES Sápustjarna keypti af henni sjal VERÐLAUNA KLÆÐNAÐURINN Auður Ómarsdóttir, bróðurdóttir Önnu, sýnir hér alklæðnað sem vakti mikla athygli á hönnun- arsýningu í L.A og var einn átta búninga sem fékk heiðursviðurkennningu. AÐSEND MYND/FINNBOGI LÁRÉTT: 2 rabb, 6 rs, 8 flá, 9 önn, 11 ól, 12 mjálm, 14 álíka, 16 æð, 17 fát, 18 fum, 20 ló, 21 arma. LÓÐRÉTT: 1 kröm, 3 af, 4 blómkál, 5 bál, 7 snjáður, 10 nál, 13 líf, 15 atóm, 16 æfa, 19 mm. Ólafur Geir Jónsson, sem hefur vakið athygli fyrir fagra ásjónu sína og bar sigur úr býtum í keppn- inni um Herra Ísland á dögunum. er margt til lista lagt og heldur meðal annars úti sjónvarpsstöð- inni splash.is á netinu. Nú ber svo við að að Ólafur Geir færir út kvíarnar því sjón- varpsstöðin Sirkus hefur keypt átta þætti af honum og verða þeir á dagskrá í janúar og febrúar. „Þeir á Sirkus höfðu samband við mig og höfðu áhuga á að kíkja á þetta,“ segir Ólafur Geir. „Í fram- haldinu keyptu þeir tvo þætti og sýndu til að kanna viðtökurnar og þetta virðist hafa fallið í kramið hjá mörgum fyrst þeir keyptu átta þætti í viðbót.“ Ólafur býr í Keflavík og gerði áður þætti fyrir litla sjónvarpsstöð þar í bæ, en hætti til að stofna sína eigin stöð á netinu í ágúst. Honum til halds og trausts er bróðir hans, Jóhann Þór, og saman hófu þeir að gera skemmtanalífinu suður með sjó skil. „Við byrjuðum á því að kíkja á djammið hérna þegar við vorum að koma okkur af stað og rugluðum eitthvað sjálfir. Þetta vatt hins vegar fljótlega upp á sig og við bættum við undirfatasýn- ingum frá Adam og Evu, kynning- ar á hjálpartækjum ástarlífsins og svo erum við alltaf með pipar- svein vikunnar. Og fyrst við erum komnir á Sirkus þá verðum við að kíkja meira á djammið í Reykja- vík.“ Þeir á splash.is þykja hispurs- lausir, svo ekki sé fastar að orði kveðið, og hætt við að einhverjir muni súpa hveljur þegar þeir sjá þættina, en Ólafur metur stöðuna með raunsæisgleraugum mark- aðarins. „Stundum eru stelpur að flassa og svona í þættinum og við látum það auðvitað fylgja með því það selur. Hvort Sirkus eigi eftir að ritskoða eitthvað af þessu verð- ur bara að koma í ljós.“ Ólafur sinnir þáttagerðinni meðfram námi og segir það vissu- lega taka sinn toll. Hann óttast hins vegar ekkert að fólk komi til með að stimpla hann sem sætabrauð. „Ég hef mörg járn í eldinum og fólk á eftir að sjá afraksturinn af því.“ -bs ÓLAFUR GEIR JÓNSSON Hefur haldið úti sjónvarpsstöð á netinu síðan í ágúst en færir nú út kvíarnar í ljósvakamiðlum. Herra Ísland djammar á sjón- varpsstöðinni Sirkus í vetur Í morgun vöknuðu prúðir, ungir Íslend- ingar við óvæntan glaðning í skóm sínum, enda kom Stekkjastaur, sá fyrsti af jólasveinunum þrettán til byggða í nótt. Nokkurs misræmis gætir þegar kemur að fjölda íslensku jólasveinanna þar sem þeir eru ýmist taldir þrettán eða einn og átta, en Ágúst Georgsson sérfræðingur hjá Þjóðminjasafni Íslands segir þess háttar mismun algengan þegar kemur að þjóðtrú, sem oft ber ekki saman jafnvel í sama landi. „Í dag eru jólasveinarnir taldir níu eða þrettán, en heimildir eru um mun fleiri jólasveina og hefur tala þeirra verið nokk- uð mismunandi,“ segir Ágúst og nefnir tölurnar átján og tuttugu og tvo. „Í heimildum finnast um áttatíu nöfn jólasveina, en skýringin er meðal annars sú að heiti og fjöldi jólasveina voru nokk- uð mismunandi eftir landshlutum. Þegar sögur um jólasveina fóru að birtast á prenti um 1860 varð það til þess að mismunandi hugmyndir sem áður voru til víðs vegar um landið hurfu, en um 1930 myndaðist eins- konar „þjóðarsátt“ um íslensku jólasvein- ana fyrir áhrif Ríkisútvarpsins og bókarinn- ar Jólin koma eftir Jóhannes úr Kötlum,“ segir Ágúst, en í vísnakveri Jóhannesar eru birt nöfn þrettán jólasveina sem fest hafa sig í sessi meðal þjóðarinnar; mörg hver sem bundin voru æskuslóðum Jóhannesar í Dalasýslu. „Dæmi um önnur jólasveinanöfn eru til dæmis Bandaleysir, Klettaskora, Bagga- lútur og Rjómasleikir. Þessi mikli fjöldi jólasveina er séríslenskt fyrirbæri. Erlendis á einn alþjóðlegur jólasveinn, Santa Claus, rætur að rekja til heilags Nikulásar. Sú mynd sem við þekkjum af honum í dag hefur borist frá Ameríku og kom til Íslands í lok 19. aldar, en fyrir áhrif hans breytt- ist ímynd íslenskra jólasveina hvað varðar útlit, klæðaburð og innræti. Jólasveinar urðu smáskrítnir vinir barnanna í stað þess að vera barnafælur, en á Austurlandi voru jólasveinar sagðir koma af hafi; ýmist dökkir yfirlitum og klofnir upp í herðar,“ segir Ágúst og nefnir annað séríslenskt við jólaþjóðtrú; nefnilega foreldra jólasvein- anna, Grýlu og Leppalúða. „Upphaflega var Grýla ekki tengd jólum sérstaklega, fyrr en á 17. öld þegar varð til heil jólasveinafjölskylda. Og jólakött- inn þekkja flestir en hann tengist líklega svipuðum erlendum hugmyndum um jólapúka, jólageit og jólahafur.“ ÁGÚST GEORGSSON SÉRFRÆÐINGURINN ÁGÚST GEORGSSON Á ÞJÓÐMINJASAFNI VEIT UM 80 ÍSLENSKA JÓLASVEINA Jólasveinar einn og átta plús fjórir HRÓSIÐ ...fær Samúel Kristjánsson hjá 2112 fyrir að selja hugmyndina að Frostrósum til erlendra sjón- varpsstöðva. Ofurtala 1 2 3 8 18 6 23 30 37 39 45 8 9 35 4 5 2 8 2 0 3 1 3 3 10. 12. 2005 07. 12. 2005 Tvöfaldur 1. vinningur næsta laugardag Einfaldur 1. vinningur næsta miðvikudag Fyrsti vinningur gekk ekki út. Fyrsti vinningur gekk ekki út. 22 [ VEISTU SVARIÐ ] 1 Ungfrú Mexíkó 2 Valgerður H. Bjarnadóttir 3 Tíu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.