Fréttablaðið - 12.12.2005, Page 88
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
3
03
96
12
/0
5
Jólagjöfin í ár!
LEIKIR - TÓNLIST - KVIKMYNDIR - NETIÐ
BAKÞANKAR
ÞRÁINS BERTELSSONAR
Frá Kína berast þau gleðitíðindi að mjallhvít íslensk stúlka hafi
hlotið heimsmeistaratitil í fegurð í
kvennaflokki. Heimsmeistaratign
er stórkostlegur árangur hjá ekki
eldri manneskju, og full ástæða til
að taka undir árnaðaróskir forseta
Íslands og forsætisráðherra til
Unnar Birnu Vilhjálmsdóttur. For-
setahjónin tóku fram í sínu skeyti
að Unnur Birna hafi orðið landi og
þjóð til sóma og þau ættu nú aldeil-
is að hafa vit á því.
ÍSLAND kemur vel út í alþjóðleg-
um afreksmælingum um þessar
mundir. Við erum í sjöunda sæti
hvað varðar þjóðartekjur á mann
og í sjöunda sæti í lífsgæðum. Við
höfum líka sjöunda mesta olnboga-
rými á hvern íbúa í ferkílómetr-
um talið. Aðeins tíu þjóðir stunda
hvílubrögð af meira kappi en við
Íslendingar. Við erum í þriðja
sæti í jafnréttismálum, í áttunda
sæti varðandi lífslíkur, í níunda
sæti vegna hreinleika og í sjöunda
sæti síðast þegar alþjóðleg fegurð
kvenna var mæld - þótt við hljót-
um augljóslega að færast ofar á
þann lista eftir afreksverk Unnar
Birnu.
ALLT er þetta harla gott og þá er
ótalmargt ótalið sem er fagurt og
jákvætt. Hér hafa hlutabréf þá
náttúru að þau hækka stöðugt í
verði svo að fjárfestar geti sofið
áhyggjulausir. Kærleikurinn í
viðskiptalífinu er slíkur að hér
kaupa fyrirtækin hluti í hvert
öðru þannig að þau hafa sameig-
inlega blóðrás og eru öll stálheil-
brigð meðan hlutabréfamarkaðir
í öðrum löndum eru sannkölluð
pestarbæli þar sem enginn veit
hver annan grefur. Til að gull-
tryggja að menn skaðist ekki á því
að eiga peninga eru íslenskar krón-
ur meira að segja verðtryggðar til
eilífðar, þannig að þótt deyi orðstír
og frændur deyr féð aldregi, svo
að vitnað sé í Hávamál.
ÞRÁTT fyrir þessa dásamlegu vel-
gengni á öllum sviðum er sífelld
heimtufrekja í gamalmennum,
öryrkjum, láglaunafólki og nei-
kvætt og niðurdrepandi tuð í jafn-
réttissinnum, kvenréttindakonum,
kvótaleysingjum og afturhalds-
kommatittum. Kverúlantar með
kröfuspjöld umkringja Alþingis-
húsið svo að þingheimur kemst
varla í jólafrí. Hvenær skyldu
Íslendingar átta sig á því að hér
ríkir fegurðin ein ofar hverri
kröfu?
Miss Ísafold