Fréttablaðið - 22.12.2005, Blaðsíða 85
Leikarinn Michael J. Fox er í
viðræðum um að leika í fjórðu
og síðustu Back to the Future-
myndinni. Fox, sem er 44 ára,
ætlar þó ekki að vera með nema
hann fái að leika persónu sem er
á svipuðum aldri og hann.
„Eina leiðin til að þetta gangi
upp er að ég fái að leika Doc [vís-
indamanninn sem Christopher
Lloyd lék í myndunum]. Ég er
orðinn 44 ára og hef ekki áhuga
á að hlaupa um og leika mér á
hjólabrettum,“ sagði Fox. „Eftir
fyrstu þrjár myndirnar héld-
um við að þetta væri orðið gott.
Ef þeir myndu gera nýja mynd
þyrftu þeir að nota yngri leik-
ara og prófa nýja hluti. Það gæti
komið vel út.“
Myndirnar Back to the Future
nutu mikilla vinsælda á síðari
hluta níunda áratugarins. Fjöll-
uðu þær um framhaldsskólanem-
ann Marty sem fór bæði fram og
aftur í tímann með aðstoð tíma-
vélar sem vinur hans, vísinda-
maðurinn Doc, hannaði.
Fox vill leika Doc
MICHAEL J. FOX Fox sló í gegn í Back to the
Future-myndunum.
Popparinn Elton John og
ástmaður hans til margra
ára, David Furnish, gengu
í hjónaband í London í gær.
Talið er að atburðurinn
verði samkynhneigðum
mikil hvatning í
framtíðinni.
Athöfn Elton John, sem er 58 ára,
og David Furnish, sem er 43 ára,
fór fram í borgarráðshúsinu í
Windsor, þar sem Karl Bretaprins
og Camilla Parker Bowles gengu
að eiga hvort annað í apríl.
John og Furnish eru þekktasta
parið af þeim hundruðum sam-
kynhneigðra para sem gengu í
það heilaga á borgaralegan máta
í Englandi og Wales í gær en þá
voru slíkar vígslur leyfðar þar í
fyrsta sinn.
Þeir sem hafa barist fyrir rétt-
indum samkynhneigðra telja að
hjónaband Elton John og Furnish
eigi eftir að hvetja marga til að
fylgja þeirra fordæmi. „Það verða
fréttir af þessu samkynhneigða
hjónabandi þeirra úti um allan
heim, þar á meðal í löndum þar
sem venjulega er aldrei fjallað
um samkynhneigð,“ sagði Peter
Tatchell, talsmaður hreyfingar
samkynhneiðra, OutRage! „Þetta
mun gefa milljónum homma og
lesbía sem hafa verið einangruð
og átt erfitt uppdráttar nýja von.“
John og Furnish, sem er kan-
adískur kvikmyndagerðarmaður,
hafa verið saman í tólf ár. Athöfn-
in þeirra í gær var látlaus og voru
aðeins móðir John og stjúpfaðir
ásamt foreldrum Furnish við-
stödd. Aftur á móti var öllu til
tjaldað í brúðkaupsveislunni, sem
kostaði um 110 milljónir króna.
Sett voru upp tvö risastór tjöld á
lóð Elton John í Windsor og var
fjölda stjarna boðið í veisluna, þar
á meðal hjónunum Ozzy og Sharon
Osbourne, Victoriu Beckham og
Elizabeth Hurley.
John og Furnish vita að gift-
ing þeirra á eftir að vekja mikla
athygli. „Elton er sú manneskja
sem ég vil eyða ævinni með. Þess
vegna veit ég að sterkt samband
okkar á ekki eftir að breytast,“
sagði Furnish. „En frá félagslegu
sjónarhorni er þetta hjónaband
mjög mikilvægt. Það er til merkis
um gríðarlegar breytingar og er
einn af þeim atburðum sem fólk á
eftir að tala um lengi.“
Elton John og Furnish
gengu í hjónaband
BROSANDI ÚT AÐ EYRUM Elton John og David Furnish brostu út að eyrum eftir hjónavígsluna í London í gær. AP/MYND
Rétt nafn: Reginald
Kenneth Dwight.
Fæðingardagur: 25.
mars 1947.
Þekkt lög: Your Song,
Goodbye Yellow Brick
Road, Don‘t Let the Sun
Go Down on Me, Sad
Songs (Say So Much),
Nikita og Candle in the
Wind.
1974: Samdi Whatever
Gets You Through the
Night með John Lennon.
1976: Sagðist vera tví-
kynhneigður í viðtali við
Rolling Stone.
Áttundi og níundi ára-
tugurinn: Háður kókaíni
og áfengi.
1994: Samdi lögin fyrir
Disney-myndina The
Lion King. Tim Rice sá
um textagerð.
Staðreyndir um Elton John
Söngkonan Pink, sem hélt tón-
leika hér á landi í fyrra, ætlar
að vera stelpuleg og klæðast kjól
þegar hún gengur að eiga unnusta
sinn Carey Hart.
Pink og mótorhjólakappinn
Hart hittust fyrst 2001 og í sumar
bar Pink fram bónorðið. Pink vill
ekki segja hvenær athöfnin fer
fram en vangaveltur hafa verið
uppi um að hún verði á gamlárs-
kvöld. Pink neitar því jafnframt
að vera ófrísk. „Ég hef verið
ófrísk í lengri tíma en nokkur
áður í sögunni,“ sagði hún í léttu
gríni. „Við erum hamingjusöm
og mjög spennt og ég elska hann
mikið.“
Pink, sem heitir réttu nafni
Alecia Moore, hefur lítið verið í
sviðsljósinu að undanförnu því
hún hefur verið upptekin við að
taka upp sína fjórðu plötu, auk
þess sem hún er að leika í sinni
fyrstu kvikmynd, Catacombs.
Pink giftir sig í kjól
PINK Söngkonan Pink ætlar að gifta sig
í kjól, en hún klæðist ekki kjól á hverjum
degi. FRÉTTABLAÐIÐ/PÁLL
Hljómsveitin Á móti sól fékk á dög-
unum afhenta gullplötu fyrir meira
en 5000 eintaka sölu hljómplöt-
unnar Hin 12 topplögin sem kom
út í sumar. Afhendingin fór fram
í hléi á sýningunni Nína og Geiri
á skemmtistaðnum Broadway, en
þar hefur hljómsveitin séð um að
skemmta sýningargestum í allt
haust að sýningu lokinni.
Á næsta ári stefnir Á móti sól
síðan að því að taka upp nýja plötu
í Bretlandi, sem mun koma út fyrir
jólin 2006.
Á móti sól fékk gullplötu
GULLPLATAN AFHENT Útvarpsmaðurinn
Ívar Guðmundsson frá Bylgjunni afhenti
liðsmönnum Á móti sól gullplötuna.