Fréttablaðið - 22.12.2005, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 22.12.2005, Blaðsíða 50
 22. desember 2005 FIMMTUDAGUR Fáar verslanir bjóða upp á jafn fjölbreytt úrval jólasería og ljósa. Verslunin Glóey í Ármúlanum er mörgum að góðu kunn. Jólin eru háannatími hjá verslun- inni en þar er geysilega gott úrval jólasería og ýmiss konar jólaskrauts. Elín Hannesdóttir, verslunarstjóri Glóeyjar, segir að sala jólaljósa aukist með hverju árinu sem líður. Hún segir að nýrri og fínni jólaseríur seljist ekkert endilega betur. ,,Mér finnst mjög mikið af fólki sem heldur í gömlu seríurnar og við erum með aukaperur sem margir stórmarkaðir eru ekki að bjóða upp á. Það er líka mjög góð sala í skrautseríum og útiseríur er líka mjög vinsælar. Það má eiginlega segja að það sé góð sala á öllum gerðum sería, ekkert eitt sem sker sig úr.“ Elín segir að fólk byrji að streyma í búðina í lok nóvember og í byrjun desember. Straumnum linnir svo ekki fyrr en eftir jólin og er verslunin alltaf troðfull af fólki. Fólk kemur ekki í Glóey ein- ungis til þess að finna jólaljós. ,,Við erum með ýmiskonar raf- tæki og mikið úrval af hlutum sem hægt er að gefa. Svo erum við með ofboðslega mikið úrval af lömpum og ljósum. Við höfum eitthvað fyrir alla, ekki bara eitt- hvað nýtískulegt heldur mikið af gamaldags hlutum.“ Elín segir að mikill jólaandi ríki í versluninni, bæði á meðal starfsmanna og viðskiptavina. ,,Fólkið sem kemur hingað er ánægt og virðist hafa gaman af því að koma. Við erum nefnilega öll svo spennt og alltaf á hlaup- um. Fólk hlær því bæði að okkur og með okkur. Við fáum líka mikið hrós frá kúnnunum. Við erum fjölskyldufyrirtæki og fólk kemur hingað aftur og aftur.“ segir Elín að lokum í góðu jóla- skapi. ■ Persónuleg ljósadýrð Ljósadýrðin ræður svo sannarlega ríkjum í Glóey. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Fjölbreytt úrval ýmissa vara má finna í Glóey. Ketkrókur, sá tólfti, kunni á ýmsu lag. – Hann þrammaði í sveitina á Þorláksmessudag. Höf. Jóhannes úr Kötlum Í kvöld er það Ketkrókur sem leggur leið sína til byggða til að gefa börnunum í skóinn. Hann eyðir svo Þorláksmessudegi í að ráfa um mannabyggðir og krækir sér í tutlu hér og þar. Karlinn er sólginn í ket og í gamla daga rak hann langan krók - staf niður um eldhússtrompinn og krækti sér í hangiketslæri sem héngu uppi í rjáfrinu eða hangiketsbita upp úr pottinum, en í þá daga var hangiketið soðið á Þorláksmessu. Í dag reynir hann hins vegar að sitja um hús í bænum í von um að einhver láti hangikjötið út á stétt til kælingar. Um leið og það er gert er Ketkrókur horfinn með það á braut. jólasveinar } Ketkrókur Jón Stefán Sigurðsson, leiklistarnemi í London, er nýkominn heim til að eyða jólunum með fjölskyldunni. Hann segist geta þakkað heimkomuna óvæntum jólaengli. ,,Ég fékk nýtt debetkort sent frá bankanum mínum á Íslandi og hélt að pin-númerið væri það sama,“ segir Jón. „Það kom á daginn að svo var ekki þannig að ég gat ekki tekið pening út neins staðar.“ Jón örvænti ekki því hann var á leið heim og þar gæti hann fengið númerið sem hann vantaði. „Svo þegar ég ætlaði að borga lestar- miðann út á flugvöll fékk ég þau svör að þeir tækju ekki við svona kortum,“ segir Jón. Nú voru góð ráð dýr og Jón ekki með neinn pening til að borga. „Þarna stóð ég með kortið í hönd- unum en enga leið til að nota það. Þá skyndilega kom að mér kona sem bauðst til að borga miðann fyrir mig,“ segir Jón. Þessi vernd- arengill hafði þá heyrt hvað fram fór og bauðst til þess, í tilefni jólanna, að borga miðann svo Jón kæmist heim. ,,Hún lét mig fá símanúmer og tölvupóstfang og sagði mér bara að borga sér seinna,“ segir Jón. Það er gott að vita að hin marg- rómaða breska kurteisi er ekki útdauð, en betra er að vita að þegar við lendum í vandræðum fjarri heimahögum sé fólk, sem af einskærri góðsemi, er boðið og búið til að hjálpa fátækum Íslend- ingum að komast heim í hangikjöt og uppstúf. ■ Jólaengill kom mér heim fyrir jólin Jón í jólaskapi með miðann góða. MYND/ÞJÓÐMINJASAFNIÐ Laugavegi 2 - 101 Reykjavík - Sími 552 1103 - www.jurtaapotek.is Gullfaxi Saltskrúbb Náttúrulegt saltskrúbb sem hreinsar húðina og gefur fallegan gljáa og mýkt. OPIÐ TIL KL. 22 Sölustaðir Penninn Mál og menning Bókabúðin Hlemmi Skífan Iða 305 verslanir Næg bílastæði MIÐBORGIN JÓLALEGA ���������������� �������������������������������� ����������������������������������������������� ������������������������������������������������������������� �������������������� ��������������������������������� �� �� �� ��� �� �� �� �� C M Y CM MY CY CMY K Kokk2x10DAGBLAUGL011205.pdf 6.12.2005 23:07:45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.