Fréttablaðið - 04.01.2006, Qupperneq 2
2 4. janúar 2006 MIÐVIKUDAGUR
STJÓRNMÁL Björk Vilhelmsdóttir,
borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans
hefur sagt skilið við Vinstri hreyf-
inguna - grænt framboð og ákveðið
að gefa kost á sér í prófkjöri Sam-
fylkingarinnar 11. og 12. febrúar
næstkomandi í nafni óháðra.
„Ti lkynni ng
Bjarkar um að
segja skilið við
vinstri græna
kemur vissulega
á óvart, enda
hafði hún áður
sagt á félagsfundi
í Reykjavík að hún
myndi virða nið-
urstöðu félagsins í
framboðsmálum,“
segir Árni Þór Sig-
urðsson, borgarfull-
trúi Reykjavíkurlistans. Árni Þór er í
öðru sæti á lista vinstri grænna fyrir
borgarstjórnarkosningarnar í vor, en
Svandís Svavarsdóttir er í því fyrsta.
„Þetta er hennar ákvörðun sem
ég virði, þótt ég harmi hana að
sjálfsögðu,“ segir Árni Þór.
Björk var á sínum tíma ósátt við
þann hátt sem hafður var á við val
í efstu sæti lista vinstri grænna og
lýsti því yfir að hún tæki ekki þátt
í valinu.
Hún keppir nú
um fjórða sætið
á lista Sam-
fylkingarinn-
ar við Andrés
Jónsson, Stefán
Jóhann Stef-
ánsson og Þóri
Karl Jónasson
sem stefnir
á fjórða til
fimmta sæti. Kjartan Valgarðsson
gefur einnig kost á sér í eitthvert
efstu sætanna.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir
borgarstjóri kveðst ánægð með
að Björk skuli gefa kost á sér og
býður hana velkomna á listann.
„Það styrkir okkur að hún
skuli koma inn óflokksbundin
en sem yfirlýst R-listamann-
eskja,“ segir Steinunn Val dís,
sem gefur kost á sér í
efsta sætið.
„Það er fagnaðarefni að Björk
gefur áfram kost á sér til borgar-
stjórnar. Hún hefur reynst traust-
ur liðsmaður Reykjavíkurlistans
og ég á ekki von á öðru en að sam-
starf innan hans verði áfram gott
til vors,“ segir Stefán Jón
Hafstein sem stefnir á efsta
sæti listans.
„Lykillinn að sigri í vor
er listi með góðu fólki með
breiða skírskotun. Þess
vegna er mikill feng-
ur að Björk því hún
er bæði góður liðs-
maður og eykur auk
þess breiddina,“ segir
Dagur B. Eggertsson,
en hann gekk nýverið
í Samfylkinguna og
gefur kost á sér í efsta
sæti listans í prófkjör-
inu í febrúar.
johannh@frettabladid.is
Viltu hætta að reykja?
Ókeypis aðstoð
ÆTTUM
SAMAN
800 6030
Reyksíminn
������ ��������� ���� ������
��������� �� ���������� ������ ��
������������������������������
������������������������������
���� ������ ������ ������ �����
�����������������������������
�������� ���� ��������� �������
��� ������� ��� ������� ������ ����
���� ����� �������� �������� ���
���������������������� �����
������������������������������
��� ��� ������ ����������� ������
������� �������������� ��� ����
����������������������������������
�������� ��� ���������� ���� ����
���������������������������������
������������������������������
�� ����� ��������� �����������
����� ������ �������������� �����
������������������ ����� ����
��������
���������
Banvæn flugeldahríð Lögreglustjóri
í Búkarest hefur hvatt til að sala á flug-
eldum til almennings verði bönnuð eftir
að tveir létust og hundruð slösuðust í
flugeldaslysum á gamlárskvöld. Kona
á sextugsaldri beið bana þegar raketta
flaug upp í munn hennar og sprakk þar
og þrítugur maður dó eftir að heimatil-
búinn kínverji sprakk í höndum hans.
RÚMENÍA
RAFORKA Söluhluti raforkureikn-
ings heimilanna lækkar mest hjá
Orkuveitu Húsavíkur, nú þegar
heimilin geta valið sér þann raf-
orkusala sem þau kjósa að eiga
viðskipti við.
Samkvæmt töflu sem birtist
á vef Alþýðusambandsins lækka
gjaldskrár fyrir raforkusölu hjá
öllum veitum nema hjá Orkuveitu
Reykjavíkur og Orkubúi Vest-
fjarða.
Þar má jafnframt sjá að fyrir
meðalheimili sem notar um 400
kílóvattsstundir af raforku á ári,
er ódýrast að kaupa raforkuna
af Orkuveitu Húsavíkur þar sem
kostnaðurinn á ári er rétt rúmlega
sextán þúsund krónur. Dýrust er
raforkan hjá Norðurorku eða á
17.699 krónur fyrir sama magn.
Ótalinn er kostnaður vegna
flutnings og dreifingar á raforku
sem er háð sérleyfissamningi
dreifiveitunnar á landsvæði við-
komandi heimilis. - æþe
Nýju raforkulögin:
Húsvíkingar
bjóða best
ORKUVEITA REYKJAVÍKUR Eina veitan
ásamt Orkuveitu Vestfjarða sem ekki
lækkar raforkuverð að svo stöddu.
SPURNING DAGSINS
Geir Jón, eru þetta skotheld
kaup?
„Það ætla ég að vona.“
Lögreglan í Reykjavík nýtti 25 milljóna króna
tekjuafgang til að kaupa tæki og búnað, þar
á meðal skotheld vesti. Geir Jón Þórisson er
yfirlögregluþjónn.
FLUGÖRYGGISMÁL Flugvirki um
borð í Boeing 767 farþegaþotu
Air Atlanta Icelandic varð fyrir
eitrun vegna reyks sem upp kom
í flugstjórnarklefa vélarinnar 14.
desember síðastliðinn. Nauðlenda
varð vélinni í Dubai í Sameinuðu
arabísku furstadæmunum, en hún
var á leið til Indónesíu frá Jeddah
í Sádi-Arabíu.
Dögg Hjaltalín, upplýsing-
a fulltrúi Avion Group, segir að
vélin, sem tekur um 300 farþega
í sæti, hafi verið tóm, utan áhafn-
ar. „Verið var að ferja hana til
Indónesíu vegna pílagrímaflugs
og ákveðið að lenda henni í Dubai
vegna þess að þar erum við með
starfsstöð og hentugast að lenda
þar.“ Hún segir flugvirkjann, sem
fékk snert af reykeitrun, hafa náð
fullri heilsu eftir atvikið en hann
naut aðhlynningar á sjúkrastöð
flugvallarins. Dögg taldi ekki að
atvikið kallaði á mikil viðbrögð
eða skoðun á öðrum vélum í flug-
flota fyrirtækisins enda hafi um
minniháttar bilun verið að ræða.
Upptök reyksins voru í spennu-
breyti sem staðsettur er undir
flugstjórnarklefanum, svoköll-
uðu static inverter-boxi, en hann
brann yfir. Þorkell Ágústs son,
for stöðu maður rann sóknar nefnd-
ar flug slysa, segir atvikið sem
leiddi til nauðlendingar Atlanta-
vélarinnar í Dubai mjög hliðstætt
öðru sem varð um borð í Flugleiða-
vél síðasta sumar. Þeirri vél var
snúið aftur til Keflavíkur vegna
reyks í flugstjórnarklefanum, en
sama tæki hafði brunnið yfir.
„Við höfum verið í sambandi við
bæði Sádana, Boeing og Atlanta
vegna málsins,“ segir Þorkell, en
strax í kjölfar atviksins voru til-
nefndir fulltrúar beggja ríkja sem
koma skyldu að rannsókn málsins.
Rannsóknin er þó í höndum rann-
sóknarnefndar flugslysa í Sádi-
Arabíu. „Þeir eru með rannsókn í
gangi og við aðstoðum meðal ann-
ars við öflun gagna.“
olikr@frettabladid.is
Nauðlending flugvélar Atlanta rannsökuð í Sádi-Arabíu:
Flugvirki varð fyrir reykeitrun
ALÞJÓÐAFLUGVÖLLURINN Í DUBAI Far þeg-
a vél Atlanta nauðlenti á þessum velli hinn
14. síð asta mánaðar. MYND/AFP
DAGUR B.
Harmar að Björk fari
yfir í Samfylkinguna
Árni Þór Sigurðsson hjá vinstri grænum harmar að Björk Vilhelmsdóttir hafi
ákveðið að yfirgefa hreyfinguna en kveðst virða ákvörðun hennar. Björk keppir
við að minnsta kosti þrjá karla um fjórða sætið á lista Samfylkingarinnar.
ÁRNI ÞÓR SIGURÐS-
SON BORGARFULL-
TRÚI R-LISTANS
Harmar brotthvarf
Bjarkar en virðir
ákvörðun hennar.
ÚKRAÍNA, AP Fulltrúar orkumálayfir-
valda í Úkraínu og Rússlandi hugðust
í gær hefja á ný viðræður um lausn
á deilunni um verð á jarðgasi sem
Úkraínumenn kaupa af Rússum.
Rússnesku fulltrúarnir gáfu þó skýrt
til kynna að viljinn til málamiðlunar
væri lítill af þeirra hálfu.
Rússneska gasútflutnings-einok-
unarfyrirtækið Gazprom skrúfaði
fyrir gasflutninga til Úkraínu um
áramótin þar sem úkraínsk yfirvöld
féllust ekki á að greiða hátt í fimm-
falt hærra verð eftir áramótin en það
var á síðasta ári. Talsmenn Gazprom
segja hækkunina nauðsynlega til að
færa verðið að heimsmarkaðsverði
en Úkraínumenn telja eðlilegt að hún
komi til framkvæmda í minni áföng-
um.
Deilan hefur valdið áhyggjum um
alla Evrópu þar sem mörg lönd álf-
unnar eru háð gaskaupum frá Rúss-
landi og um 80 prósent þess gass er
flutt um leiðslur sem liggja um Úkr-
aínu. Gaskaupendur í Evrópusam-
bandslöndum sögðu á mánudag að
mun minna gas bærist um leiðslurn-
ar að austan en áður. Eftir það jók
Gazprom aftur gasstreymið um Úkr-
aínuleiðslurnar og virtist það ætla að
duga til að fullnægjandi magn bær-
ist vestur. Talsmenn Gazprom halda
því fram að Úkraínumenn steli gasi
úr leiðslunum. Úkraínskir ráðamenn
neita því hins vegar staðfastlega.
Talsmenn Evrópusambandsins
skoruðu á deiluaðila að ná sáttum
sem allra fyrst. Júststjenkó
Úkraínuforseti og kollegi
hans frá Moldóvu, Alexander
Voronin, föluðust eftir því að
fulltrúar ESB reyndu að gegna
sáttasemjarahlutverki í deilunni. - aa
SKRÚFAÐ FYRIR Úkraínskur verkamaður að störfum í gasdælustöð í Boyarka utan við Kíev í gær.
Gasdeila Rússa og Úkraínumanna enn í hnút:
Lítill sáttavilji af hálfu Rússa
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
BJÖRK VILHELMSDÓTTIR
BORGARFULLTRÚI R-LISTANS Var ósátt
við slit R-listans og framboðsmál VG.
ANDLÁT Íslendingur lést þegar
svifvængur sem hann flaug féll til
jarðar í Kólumbíu á gamlársdag.
Maðurinn hét Rúnar V. Jensson
og var 32 ára
Kópavogs búi.
Hann var
ókvæntur og
barnlaus.
Hann var
á ferð ásamt
fimm öðrum
f é l ö g u m
sínum úr
F i s f é l a g i
Reykjavíkur.
Slysið bar
að með þeim
hætti að vængurinn féll saman þar
sem ókyrrð var í lofti. Svo virðist
sem hann hafi hvorki náð að setja
út varafallhlíf né ná stjórn á
vængnum aftur áður en hann lenti.
Hann lést samstundis.
Tveir ferðafélagar hans eru
komnir heim en þrír eru enn úti í
Kólumbíu og er kistunar að vænta
hingað til lands á næstu dögum.
Fisfélags Reykjavíkur var
stofnað árið 1978 og er þetta fyrsta
banaslysið í sögu þess. - jse
Íslendingur lést í Kólumbíu:
Lést í svifflugi
RÚNAR V. JENSSON
STEFÁN JÓN STEINUNN VALDÍS