Fréttablaðið - 04.01.2006, Side 6
6 4. janúar 2006 MIÐVIKUDAGUR
Beint flug til hinnar fögru miðaldaborgar
Beint flug: Pétursborg í Rússlandi eða Tallinn í Eistlandi. Páskar í apríl 2006.
Frá Akureyri og Keflavík. Hin stórkostlega Pétursborg í Rússlandi eða miðaldaborgin
Tallinn í Eistlandi. Flogið beint til Tallinn og keyrt þaðan til Pétursborgar.
Tallinn
Tallinn hefur breyst í nútímaborg með alþjóðlegu yfirbragði á síðustu 10 árum.
Þrátt fyrir það eru íbúarnir stoltastir af gamla bæjarhlutanum. Þar eru götur steini lagðar
og við þær standa vel varðveittar stórkostlegar byggingar frá 11-15 öld. Þá setja
markaðirnir mikinn svip á borgina. Tallinn hefur verið bætt við á heimsminjalista
UNESCO sem ein best varðveitta miðaldarborg N-Evrópu. Í Tallinn er hægt að gera
góð kaup. Þar er ódýrt að versla og matur á veitingahúsum er ódýr. Þá er, næturlífið
fjörugt, barir, skemmtistaðir og kaffihús á hverju götuhorni
Pétursborg
Pétursborg er borg mikilfengleika og glæsileika, borg með glæsta fortíð, einskonar
minnismerki um liðna tíð. Borgin hefur verið kölluð Feneyjar norðursins vegna
margra síkja sem í henni eru. Rúmlega þrjá aldir eru liðnar síðan Pétur mikli byrjaði
á því að reisa þessa stórkostlegu borg. Borgin hefur einhverjar fallegustu byggingar
Evrópu. Fyrir áhugafólk um sögu og menningu er Pétursborg gullnáma.
Frá Keflavík: Pétursborg Tallinn
8-15. apríl uppselt uppselt
15-20. apríl 59.050 kr. 57.500 kr.
Pétursborg eða Tallinn
Páskar í apríl - 5 nætur, einungis 59500 kr.
til Pétursborgar og 57500 kr. til Tallinn
Beint flug:
Frá Akureyri: Pétursborg Tallinn
12-16. apríl 57.700 kr. 55.500 kr.
13-17. apríl uppselt uppselt
Innifalið: Flug, skattar, hótel, rúta og íslenskur fararstjóri
Öll hótel eru 4 stjörnur og morgunmatur innifalinn
MUZAFFARABAD, AP Hundruð fórn-
arlamba jarðskjálftans í Kasmír
urðu í gær að leita sér lækninga
við lungnabólgu og öðrum skyld-
um sjúkdómum eftir mikla snjó-
komu síðustu daga.
Um sextíu sentimetra snjór er
víða í Kasmír en stærstur hluti
þeirra 3,5 milljóna sem misstu
heimili sín býr enn í tjöldum.
Í gær hafði veður skánað nokk-
uð og þá gátu þyrlur sætt lagi og
flogið með hjálpargögn til bág-
staddra. Að sögn starfsmanna
Matvælahjálpar Sameinuðu þjóð-
anna eiga allir að hafa nóg að bíta
og brenna næsta hálfa mánuðinn
hið minnsta. ■
Vetur á skjálftasvæðunum:
Vosbúð hrjáir
fórnarlömbin
VOSBÚÐ Khurasida Bibi hélt á dóttur sinni
fyrir utan tjald þeirra mæðgna í þorpinu
Charruta í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FISKVEIÐAR Landhelgisgæslan
hyggst auka eftirlit á þessu ári
með ólöglegum og óábyrgum veið-
um á úthafskarfa á Reykjanes-
hrygg.
Veiðarnar eru einkum stundað-
ar af hentifánaskipum og ráðgera
íslensk stjórnvöld meðal annars
að koma í veg fyrir viðskipti með
afla þeirra.
Stjórn veiðanna á
Reykjaneshrygg utan íslensku
lögsögunnar er í höndum Norð-
austur-Atlantshafsfiskveiðinefnd-
arinnar NEAFC og hafa nokkur
ríki rétt til að stunda þar veiðar.
Einar K. Guðfinnsson sjáv-
arútvegsráðherra sagði á blaða-
mannafundi í gær að reynt yrði
með tiltækum ráðum að sigrast
á þessum ólöglegu veiðum. Við-
skipti skipanna yrðu kortlögð og
efnt til samvinnu við önnur ríki
og fyrirtæki um að torvelda við-
skipti við umræddar útgerðir,
bæði varðandi kaup á olíu og vist-
um og slíkri þjónustu en einnig að
því er varðar sölu á afurðum.
„Þannig getum við stuðlað að því
að kostnaður við veiðarnar aukist
svo að þær verði óarðbærar og að
okkur takist þannig að hrekjaa
þessa sjóræningja af miðunum,“
sagði Einar á fundinum í gær.
Liður í herferðinni gegn ólög-
legum veiðum á Reykjaneshrygg
verður fólginn í því að senda bréf
til stjórnvalda og sjávarútvegs-
fyrirtækja víða um heim þar sem
vakin verður athygli á vandanum
og óskað eftir samvinnu um að
koma í veg fyrir veiðarnar. Í bréf-
inu er listi yfir 18 hentifánaskip
sem staðin hafa verið að ólögmæt-
um veiðum á Reykjaneshrygg.
Á fundinum í gær kom fram að
tekist hefði í fyrra að hrekja skip,
lestað afurðum af Reykjanes-
hrygg, til hafnar í Afríku þegar
það fékk ekki afgreiðslu í höfnum
í Evrópu að undirlagi Íslendinga.
Georg Lárusson, forstjóri
Landhelgisgæslunnar, segir að
einna best gefist að fylgjast með
umskipun á afla á miðunum. „Við
ætlum að auka eftirlit flugvéla og
jafnframt höfum við verið í sam-
bandi við strandgæslu í nágranna-
löndum okkar um einhvers konar
skipulag á viðveru skipa. Það
eigum við eftir að útfæra nánar.“
Georg telur að með góðu skipu-
lagi og hagkvæmni geti aukin eft-
irlitsstörf rúmast innan fjárhags
Landhelgisgæslunnar.
johannh@frettabladid.is
EINAR K. GUÐFINNSSON OG GEORG LÁRUS-
SON Sjávarútvegsráðherra segir þýðingar-
laust að bíða með hendur í skauti en eftir
sé að sjá hver árangur aðgerðanna verður.
SJÓRÆNINGJASKIP Á REYKJANESHRYGG Togarinn Okhotino, skráður í Dómíníska lýðveld-
inu, lestar fiski af Reykjaneshrygg í maí síðastliðnum um borð í hentifánaskipið Sunny Jane
frá Belize.
Hrekja sjóræningja á brott
Sjávarútvegsráðherra og Landhelgisgæslan taka höndum saman um að gera sjóræningjum veiðar á Reykja-
neshrygg óbærilegar. Eftirlit flugvéla verður aukið og efnt til samstarfs við nágrannaþjóðir um eftirlit á sjó.
KJÖRKASSINN
Eru starfslokagreiðslur til fyrrum
forstjóra FL Group ásættanlegar?
Já 20%
Nei 80%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Á hluti hækkana á niðurgreiðsl-
um til dagforeldra að renna til
foreldranna sjálfra?
Segðu skoðun þína á
ÞÝSKALAND, AP Björgunarsveit-
armenn unnu enn að því í gær að
grafa snjó og brak ofan af fólki sem
grófst undir er þak á skautahöll í
bænum Bad Reichenhall syðst í
Þýskalandi hrundi í fyrradag. Að
minnsta kosti ellefu manns biðu
bana, þar af sex börn. Átján manns
slösuðust og nokkurra til viðbótar
var saknað.
Hlé þurfti að gera á björgunar-
starfinu í gærkvöld vegna hættu á
frekara hruni. Um 50 manns voru
í húsinu þegar ósköpin dundu yfir.
Svo virðist sem þakið hafi brostið
undan snjóþunga. ■
Þakið sem brast í Þýskalandi:
Á annan tug
manna fórst
ERFITT BJÖRGUNARSTARF Björgunarsveitar-
menn bera einn hinna látnu út úr rústum
skautahallarinnar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BANDARÍKIN Óttast er að þrett-
án verkamenn hafi farist þegar
sprenging varð í kolanámu nærri
Tallmansville í Vestur-Virginíuríki
í Bandaríkjunum í fyrradag.
Að sögn CNN er ekki vitað
hvað olli sprengingunni en þá
voru verkamennirnir rúma þrjá
kílómetra inni í námunni, hundr-
að metra undir yfirborði jarðar.
Í gærmorgun tókst
björgunarmönnum að bora niður
í námuna og var þá útbúnaður
látinn síga niður til að greina
andrúmsloftið. Sú athugun leiddi í
ljós að magn eitraðs kolmónoxíðs
var margfalt meira en óhætt
gat talist. „Við erum því mjög
vonlítil eftir að hafa fengið þessar
niðurstöður,“ sagði Ben Hatfield,
forstjóri fyrirtækisins sem á og
rekur námuna. Engu að síður var
aðgerðum haldið áfram, loftop voru
boruð og lítið könnunarvélmenni
látið síga niður í göngin. Engar
ályktanir var hægt að draga af
myndum þess.
Ættingjar verkamannanna
söfnuðust saman í gær í kirkju
nærri námunni og báðu fyrir ást-
vinum sínum. Þeir voru örvilnað-
ir en sögðust vona það besta. - shg
Þrettán verkamenn fastir í námu í Vestur-Virginíu:
Veik von um björgun
TÍMINN ER NAUMUR Borað var niður í námugöngin og loftskynjarar sendir niður. Sú
athugun varð ekki til að auka bjartsýni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SAMFÉLAGSMÁL „Aldrei hafa komur,
það er að segja viðtöl og dvöl í
athvarfinu, verið jafn margar á
og á nýafstöðnu ári,“ segir Drífa
Snædal, fræðslu- og framkvæmda-
stýra Kvennaathvarfsins.
Alls voru komurnar 557 á síð-
asta ári. Einnig dvöldu mun fleiri
konur og börn í athvarfinu á síð-
asta ári en árið þar á undan. Þær
voru 92 en 88 árið þar á undan.
Þá voru börnin 74 sem komu til
dvalar á síðasta ári en 55 árið
2004.
Dvalardögum hefur einnig
fjölgað á milli þessara ára því
árið 2005 voru þeir 2.422 en 1.568
árið þar á undan.
Drífa segir að þessi aukna
aðsókn í athvarfið sé líklegast til-
komin vegna þess að umræða um
ofbeldi gagnvart konum og börn-
um hafi verið fyrirferðarmikil
að undanförnu. Einnig telur hún
að konur séu nú meðvitaðri um
það úrræði sem kvennaathvarfið
sé.
Kvennaathvarfið var stofnað
árið 1982. Ársskýrsla samtak-
anna mun liggja fyrir í febrúar
eða mars en þar verður gerð ítar-
leg grein fyrir tölfræðinni. - jse
Drífa Snædal segir konur meðvitaðri en áður um þjónustu Kvennaathvarfsins:
Aldrei hafa fleiri sótt athvarfið
DRÍFA SNÆDAL Drífa segir að komur í
Kvennaathvarfið hafi aldrei verið fleiri en
á síðasta ári. Kvennaathvarfið var opnað
árið 1982.
LÍFEYRISSPARNAÐUR Hrafn Magnús-
son, framkvæmdastjóri Lands-
samtaka lífeyrissjóða, segir að
allar greiðslur vegna viðbótalíf-
eyrissparnaðar skerði ekki grunn-
lífeyri almannatrygginga, en af
fréttum fjölmiðla að undanförnu
hefði mátt skilja hið gagnstæða.
Hann segir að samkvæmt upp-
lýsingum frá Tryggingastofnun
ríkisins séu allar greiðslur vegna
viðbótar lífeyrissparnaðar með-
höndlaðar með sama hætti og
greiðslur úr lífeyrissjóðum við
útreikning bóta og því skerða þær
ekki grunnlífeyri almannatrygg-
inga. - jse
Viðbótarlífeyrissparnaður:
Skerðir ekki
grunnlífeyri
Bílvelta við Reykjanesbraut Öku-
maður missti stjórn á bifreið sinni þegar
hann var að beygja af Reykjanesbraut
og inn á Fífuhvammsveg í Kópavogi
um klukkan níu í gærkvöldi með þeim
afleiðingum að bifreiðin valt utan vegar.
Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild en
meiðsl hans eru ekki talin alvarleg.
BÍLSLYS