Fréttablaðið - 04.01.2006, Síða 12
4. janúar 2006 MIÐVIKUDAGUR
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
19
8
3
3
25
1001. vinningur
125milljónir
Bónus-vinningur
3,5
milljónir
Alltaf á mi›vikudögum!
lotto.is
Vertu me› fyrir kl.17.
N‡tt ár
tvöfalt tækifæri
Fyrsti vinningurinn í fyrsta potti ársins er tvöfaldur
og stefnir í 100 milljónir. Ofurpotturinn stefnir í 25
milljónir og bónusvinningurinn í 3,5 milljónir.
Tvöf
aldu
r
pottu
r2 FERÐAMÁL Ferðamálastofa tók til starfa um áramótin í samræmi við
lög sem samþykkt voru á Alþingi í
maí síðastliðnum.
Ferðamálastofa tekur við
verkefnum og rekstri skrifstofu
sem áður var í höndum
Ferðamálaráðs Íslands. Auk
þess færast leyfisveitingar
innan ferðaþjónustunnar
frá samgönguráðuneytinu
til Ferðamálastofu. Þar er
meðal annars um að ræða
leyfi sem ferðaskrifstofur og
ferðaskipuleggjendur eru háðir.
Þeir sem hafa gild leyfi til reksturs
ferðaskrifstofu eiga að sækja um
leyfi á ný til Ferðamálastofu fyrir
30. júní á þessu ári. Einnig er gert
ráð fyrir að Ferðamálastofa sinni
skráningu bókunarmiðstöðva og
upplýsingamiðstöðva sem skylt er
að skrá samkvæmt nýju lögunum.
Ferðamálastofu er ennfremur
ætlað að hafa umsjón með fram-
kvæmd ferðamálastefnu.
Einar Oddur Kristjánsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
hefur verið skipaður formaður
Ferðamálaráðs, en samgöngu-
ráðherra skipaði nýtt ráð nú um
áramótin til næstu fjögurra ára.
Dagný Jónsdóttir, þingmaður
Framsóknarflokksins, verður
varaformaður, en tíu eiga sæti í
ráðinu auk þeirra tveggja. - jh
EINAR ODDUR KRISTJÁNSSON Alþingismað-
urinn Einar Oddur hefur verið skipaður
formaður Ferðamálastofu.
Hlutverk ferðamálaráðs breytist um áramót og ný stofnun fær aukið hlutverk:
Ferðamálastofa hefur störf
BYGGÐAMÁL Þótt Súðvíkingar
hafi ekki farið varhluta af
þrengingunum í sjávarútvegi á
síðasta ári og fólksfækkuninni
á Vestfjörðum á undanförnum
árum er bær-
inn í mikilli
sókn að sögn
sveitarstjórans
Ómars Más
Jónssonar.
„Nú er íbúða-
skortur helsta
vandamálið í
bænum,“ segir
hann en bætir
við að það standi til bóta.
Á síðasta ári misstu um 20
manns vinnuna þegar rækjuverk-
smiðjan Frosti lagði niður starf-
semi sína. „Hér eru farin af stað
eða eru að fara af stað ýmis verk-
efni sem munu hafa mikil áhrif á
atvinnulífið. Má þar nefna vinnslu
á afskurði sem fellur til af frysti-
togurum víða af landinu, þorsk-
eldi, beituverksmiðju og niðursuðu
á þorsklifur. Svo er bílasprautun
að hefja starfsemi hér í bæ þannig
að á þessu ári má eiga von á því að
30 til 40 ný störf hafi skapast frá
því að við misstum þessi tuttugu á
síðasta ári,“ segir sveitarstjórinn.
„Hvað fólksfjölgun áhrærir
virðist hún ekki svo mikil af tölum
Hagstofu að dæma enda held ég að
það hafi fækkað í sveitum við Ísa-
fjarðardjúp sem tilheyra hreppn-
um. En íbúum hefur fjölgað hér í
Súðavíkurbæ, það er alveg klárt,“
segir hann að lokum. - jse
Sveitarstjórinn í Súðavík segir bæinn í mikilli sókn:
Vantar íbúðir í Súðavík
ÓMAR MÁR JÓNS-
SON SVEITARSTJÓRI
SÚÐAVÍK Átak sveitarfélagsins um að fjölga íbúum og atvinnutækifærum hefur borið tilætl-
aðan árangur þrátt fyrir viss bakslög á síðasta ári segir Ómar Már sveitarstjóri.