Fréttablaðið - 04.01.2006, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 4. janúar 2006
Í Öldungadeild eru nokkrir áfangar kenndir í dreifmennt. Dreifnám er sambland af fjarnámi
og staðbundinni kennslu. Þannig aukast möguleikar á að stunda nám í fleiri áföngum í
sama stokki. Áfangar sem eru kenndir í dreifnámi eru: UPP103, LAN103, SAG200,
SAG393, ÍSL303, og SPÆ603.
Innritun fer fram 4.-6. janúar nk. Sjá nánar www.mh.is. Sími 595-5200.
Vorönn 2006
Viltu rifja upp grunnskólafögin?
Í prófadeild Námsflokkanna er kennd enska, danska, íslenska og stærðfræði á grunn-
skólastigi. Grunnnám samsvarar 8. og 9. bekk og fornám samsvarar 10. bekk. Námið er
ætlað þeim sem ekki hafa lokið grunnskólaprófi eða vilja upprifjun frá grunni.
Vantar þig áfanga í heilbrigðisgreinum?
Nokkrir áfangar í heilbrigðisgreinum verða kenndir á vorönn;
NÆR 103 • LYF 113 • ASU 104 • ÖLD 105 • SÁL 123
Áfangar á grunn- og framhaldsskólastigi eru kenndir er í Mjódd frá 16. jan. Skólagjöld miðast við
kennslustundafjölda. Innritun fer fram frá 6. jan. kl. 9:00-16:00 í Mjódd, Þönglabakka 4 og í síma
567 7050.
Viltu bæta lestrar- og skriftarkunnáttu þína?
Námsflokkarnir veita greiningu í lestri og sérkennslu í lestri, ritun og stafsetningu þar sem hverjum
og einum er mætt þar sem hann er staddur.
Upplýsingar veitir María I. Hannesdóttir lestarsérkennari í síma 551 2889 og Björg Árnadóttir for-
stöðumaður Námsflokkanna í síma 411 7000.
Þarftu náms- og starfsráðgjöf?
Um þessar mundir eru að taka til starfa náms- og starfsráðgjafar á vegum Námsflokkanna, en þeir
verða staðsettir í þjónustumiðstöðvum Reykjavíkurborgar. Þjónusta þeirra stendur Reykvíkingum
eldri en sextán ára til boða, sem ekki eru þegar í námi þar sem námsráðgjöf býðst.
Upplýsingar veitir Björg Árnadóttir forstöðumaður Námsflokkanna í síma 411 7000.
www.namsflokkar.is • nfr@namsflokkar.is
British Embassy
Reykjavík
STYRKIR TIL NÁMS
Breska sendiráðið býður íslenskum námsmönnum að
sækja um Chevening skólastyrkinn til framhaldsnáms
við breska háskóla skólaárið 2006-2007.
Umsækjendur þurfa annað hvort að hafa tryggt sér
skólavist eða hyggja á Masters- eða Doktorsnám við
breskan háskóla. Styrkirnir eru eingöngu veittir til
greiðslu á hluta af skólagjöldum.
Í samvinnu við sendiráðið mun fyrirtækið GlaxoSmithKline
á Íslandi einnig bjóða styrk til náms í einhverri
heilbrigðisgrein og KB banki býður tvo styrki.
Umsóknareyðublöð fást í breska sendiráðinu, Laufásvegi
31, 101 Reykjavík, sími 550-5100, virka daga frá
9.00-12.00. Eyðublöðin fást einnig á vefsíðunni
www.britishembassy.is.
Umsóknum ber að skila í sendiráðið
ekki seinna en 10.febrúar 2006.
Umsóknir sem berast eftir þann dag fá ekki afgreiðslu.
Umsóknarfrestur um
diplómanám í alþjóða-
samskiptum og opinberri
stjórnsýslu á vorönn rennur út
8. janúar hjá Háskóla Íslands.
Kennsla hefst 17. janúar.
Þetta er ræða fimmtán eininga
nám á meistarastigi og forkrafa
er BA-próf í einhverri grein.
Báðar námsleiðirnar eru hluti
meistaranáms við stjórnmála-
fræðiskor skólans. Meistara- og
diplómanámið í alþjóðasamskiptum
hófst síðastliðið haust og stunda
það tæplega fimmtíu manns,
en meistaranámið í opinberri
stjórnsýslu á sér lengri sögu
og stunda það um 150 manns.
Reynt er að haga kennslu þannig
að auðvelt sé að stunda námið
samhliða starfi. Diplómanámið í
opinberri stjórnsýslu er einnig í
boði sem fjarnám og stunda það
um 30 nemendur víðs vegar um
landið. Diplómanemar geta sótt
um fullt meistaranám og fengið
einingar sínar metnar inn í það.
Einnig geta nemendur tekið hluta
meistaranámsins við erlenda
háskóla sem bjóða meistaranám á
þessum sviðum.
Markmið alþjóðasamskipta-
námsins er að mæta vaxandi þörf
fyrir menntað starfsfólk með
þekkingu á alþjóðasamskiptum.
Í tímum er meðal annars fjallað
um utanríkismál Íslands, hlutverk
alþjóðastofnana og skipulag og
samningatækni í alþjóðasamskiptum,
fjölmenningu og margt fleira.
Meistaranám í opinberri
stjórnsýslu býr fólk undir fjöl-
breytt störf á vettvangi ríkis,
sveitarfélaga, sjálfseignarstofnana,
ráðgjafarfyrirtækja og einkafyrir-
tækja sem starfa náið með opinberum
aðilum. Nemendur fræðast um
sérstöðu opinbera geirans, hvernig
lagaumhverfi er háttað og um áhrif
nálægðarinnar við hið pólitíska
vald. Nánari upplýsingar má fá á
heimasíðu félagsvísindadeildar
http://www. hi.is/ undir stjórn-
málafræðiskor, en auk þess er hægt
að fá upplýsingar hjá Margréti S.
Björnsdóttur forstöðumanni í síma
525-4928 og Kolbrúnu Eggertsdóttur
deildarstjóra framhaldsnáms fél-
agsvísindadeildar í síma 525-4253.
Býr fólk undir
fjölbreytt störf
Margrét S. Björnsdóttir er forstöðumaður Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við
Háskóla Íslands.