Fréttablaðið - 04.01.2006, Page 25
Concert
Tapaði á
Alice Cooper
18
Kínverjar í ferðahug
Kapphlaup til
tunglsins
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 4. janúar 2006 – 40. tölublað – 2. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Stórir starfslokasamningar |
Sigurður Helgason, fyrrverandi
forstjóri Flugleiða, og Ragnhildur
Geirsdóttir, sem gegndi starfi for-
stjóra FL Group í rúma fimm
mánuði á síðasta ári, gerðu starfs-
lokasamninga. Sigurður fær
161 milljón króna í sinn hlut en
Ragnhildur 130 milljónir.
Icex yfir 5500 stig | Úrvalsvísitala
Kauphallarinnar hækkaði um tæp
65 prósent á árinu sem leið og end-
aði í 5.534,39 stigum. Frá ársbyrjun
1993 hefur Úrvalsvísitalan hækkað
samtals um 1391,3 prósent.
Hundrað prósenta hækkun |
Þrjú félög Kauphallarinnar hækk-
uðu um meira en hundrað prósent
á árinu. Landsbankinn um rúm
hundrað og tólf prósent, Bakkavör
rúm hundrað og tíu og FL Group
um tæp hundrað og tvö prósent.
Fons selur farmiða | Fons, sem
er í eigu Pálma Haraldssonar og
Jóhannesar Kristinssonar, keypti
tólf prósenta hlut í farmiðasölu-
fyrirtækinu Ticket sem er með
sölunet í Svíþjóð og Noregi.
Avion bætir við | Avion Group
staðfesti kaup á fjórum Boeing
777 fraktvélum til viðbótar við
þær fjórar sem félagið keypti fyrr
á árinu. Heildarfjárfesting í þess-
um átta vélum nemur hátt í tveim-
ur milljörðum Bandaríkjadala.
Sigurjón í víking | Sigurjón
Sighvatsson keypti sjötíu og
fimm prósenta hlut í norræna
kvikmyndadreifingarfyrirtækinu
Scanbox Entertainment Group.
Það sem eftir stendur er í eigu
fyrri aðaleiganda, Verner Bach
Pedersen, og stjórnenda fyrir-
tækisins.
Veðja á veðbanka | Íslenska
fjárfestingarfélagið RedSquare,
sem er í eigu Húsasmiðjubræðra,
keypti sjötíu prósenta hlut í
breska veðbankanum Falconforce.
Um þrjátíu prósenta hlutur er í
eigu breska fjárfestingafélagsins
Metro Racing Limited.
F R É T T I R V I K U N N A R
True North Holding Group, félag
í eigu lykilstjórnenda í Avion
Group, hefur keypt fimmtán
milljónir hluta í félaginu á geng-
inu 38,3. Kaupverðið er um 574
milljónir króna. Meðal eigenda
félagsins er Hafþór Hafsteinsson,
forstjóri Atlanta.
Arngrímur Jóhannsson,
stofnandi Atlanta, hefur selt um
fimmtán milljónir hluta á sama
gengi.
Jafnframt hafa Baldur
Guðnason, forstjóri Eimskips, og
Steingrímur Pétursson, fjármála-
stjóri Avion Group, fært um 51
milljón hluta í Avion Group á
milli eignarhaldsfélaga sem eru í
þeirra eigu. Topos Holding selur
Fjárfestingarfélaginu Sjöfn bréf-
in. - eþa
Stjórnendur
kaupa í Avion
Goðsögnin
Greenspan
Dýrkeypt
orð 12-1319
Í lok þriðja ársfjórðungs á síðasta ári var KB
banki með meira en eitt þúsund milljarða króna í
eignastýringu. Það þýðir að starfsmenn bankans taka
ákvörðun um hvernig eigi að ávaxta þessa fjárhæð
fyrir einstaklinga, fyrirtæki, lítil eignarhaldsfélög
og lífeyrissjóði. Allar fjárfestingarákvarðanir
varðandi þessar eignir eru í höndum bankans.
Til samanburðar kom fram í ársfjórðungsriti
Seðlabankans, Peningamálum, í desember
síðastliðnum að heildareignir íslensku
lífeyrissjóðanna í byrjun árs 2005 væru rétt tæplega
þúsund milljarðar króna.
Þórarinn Sveinsson, framkvæmdastjóri eigna-
stýringar KB banka, segir að árið 2001 hafi bank-
inn verið með 154 milljarða króna í eignastýringu.
Síðan þá hafi sú upphæð hækkað um 381 milljarð
vegna innri vaxtar, um 392 milljarða þegar breski
bankinn Singer & Friedlander var keyptur og um
109 milljarða vegna yfirtöku á öðrum fyrirtækjum.
Þetta sé því umtalsverður vöxtur á skömmum tíma.
Innri vöxtur sé sérstaklega mikilvægur í þessu
sambandi.
Þórarinn segir að 37 prósent þessara eigna
séu í Bretlandi, 35 prósent á Íslandi, 14 prósent
í Finnlandi en minna í öðrum löndum eins og í
Svíþjóð og Lúxemborg. Fjársterkir einstaklingar og
lítil eignarhaldsfélög eigi tæp 40 prósent af þessari
upphæð, lífeyrissjóðir og fyrirtæki um 36 prósent
og sjóðir 25 prósent.
Í þessum tölum eru sjóðir og sérgreind eigna-
söfn, sem KB banki stýrir, talin með segir Þórarinn.
- bg
Stýra yfir þúsund milljörðum
Eignastýring KB banka hefur vaxið mikið á fjórum árum. Fjársterkir ein-
staklingar láta bankann ávaxta um 400 milljarða króna fyrir sig.
Eggert Þór Aðalsteinsson
skrifar
Hagnaður Exista á árinu 2005 verður vart undir
þrjátíu milljörðum króna. Það gæti þýtt að félagið
hafi hagnast meira en Íslandsbanki, Landsbankinn
og Straumur - Burðarás á síðasta ári. Þessi
gríðarlegi hagnaður er fyrst og fremst tilkominn
vegna mikillar hækkunar hlutabréfa í KB banka
á árinu 2005 en einnig tvöfaldaðist í virði stór
eignarhlutur Exista í Bakkavör.
Exista festi kaup á fjögurra prósenta hlut í KB
banka í nóvember sem margir telja að hafi losað
um töluverða sölupressu á bréfum í bankanum
og jafnframt styrkt stöðu félagsins sem stærsta
hluthafans.
Voru öll sölutilboð á verðbilinu 600-650 „hreinsuð
upp“ en fleiri fjárfestar voru á ferðinni um þetta
leyti, þar á meðal Norvestia sem er í eigu Jóns
Helga Guðmundssonar í BYKO.
Félagið gaf út nýtt hlutafé að upphæð tuttugu
milljarðar í desember og munu hluthafar hafa
fengið mjög skamman tíma til að ganga frá
innborgun, sem var notuð meðal annars til að
fjármagna hlutafjárkaupin í KB banka.
Eigið fé Exista, sem stóð í tæpum þrjátíu millj-
örðum í byrjun síðasta árs, ætti að vera að nálgast
áttatíu milljarðana.
Lokagengi KB banka í árslok stóð í 746 krónum
á hlut. Óinnleystur gengishagnaður af 21 prósenta
hlut Exista í KB banka er því kominn yfir þrettán
milljarða króna frá kaupunum í nóvember.
Samþjöppun á eignarhaldi hefur einnig valdið
því að Sigurður Einarsson, stjórnarformaður KB
banka, er kominn í hóp tuttugu stærstu hluthafa
bankans. Hlutur hans er 2,7 milljarðar að mark-
aðsvirði.
SIGURÐUR EINARSSON, STJÓRNARFORMAÐUR KB BANKA
Kominn í hóp tuttugu stærstu hluthafa bankans.
Þrettán milljarða hagnað-
ur af kaupum í KB banka
Hlutafé Exista fjárfestingarfélags undir stjórn bræðranna
í Bakkavör var aukið um tuttugu milljarða á dögunum.
Hagnaður síðasta árs verður vart undir þrjátíu milljörðum.
Finnska fjarskiptafyrirtækið
Saunalahti, sem er í meirihlutaeigu
Novator, eignarhaldsfélags
Björgólfs Thors Björgólfssonar,
hefur komist að samkomulagi við
símarisann Sonera. Saunalahti
var síðastliðið sumar tekið yfir af
næststærsta fjarskiptafyrirtæki
Finnlands, Elisa, og eru
Björgólfur Thor og félagar í
Novator nú þar stærstir hluthafa
með rúm tíu prósent.
Eftir yfirtökuna sagði Sonera upp
samningi Saunalahti um aðgang
að dreifingarkerfi Sonera.
Samkvæmt samkomulaginu
mun Sonera greiða Saunalahti
rúmar hundrað milljónir króna
og Saunalahti í staðinn hætta við
málsókn á hendur Sonera. - jsk
Saunalahti og
Sonera semja
BJÖRGÓLFUR THOR BJÖRGÓLFSSON
Eignarhaldsfélag Björgólfs, Novator, er
umsvifamikið á finnskum fjarskiptamark-
aði.
Gott til síðasta dropa