Fréttablaðið - 04.01.2006, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 04.01.2006, Qupperneq 28
MARKAÐURINN 4. JANÚAR 2006 MIÐVIKUDAGUR4 F R É T T I R Hólmfríður Helga Sigurðardóttir skrifar Halla Tómasdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands og tekur við af Þór Sigfússyni, sem nýlega var ráðinn forstjóri Sjóvá. Halla hefur víðtæka reynslu af stjórnunarráðgjöf og kennslu. Hún stundaði nám í Bandaríkjunum og lauk BS-gráðu í viðskiptafræði frá Auburn-háskóla í Montgomery í Alabama og MBA-gráðu í alþjóðlegum viðskiptum frá Garvin Graduate School of International Management. Halla varð ung stjórnandi og árin 1994 til 1996 var hún starfsmannastjóri hjá Mars Inc. og 1996 til 1998 gegndi hún starfsmannastjórastöðu hjá Pepsi Cola. Árið 1998 fluttist Halla aftur til Íslands og gerðist starfsmannastjóri Íslenska útvarpsfélagsins þangað til hún gekk til liðs við Háskólann í Reykjavík árið 1999. Þar stýrði hún stjórnendaskólanum frá stofnun og gegndi framkvæmda- stjórastöðu átaksins Auðar í krafti kvenna, auk þess að vera lektor við Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. Þessu til viðbótar hefur Halla setið í stjórn Vistor hf. og Calidris. ehf. frá árinu 2002 og sat í stjórn Sjóvá frá 2004 til 2005. Að mati Höllu hafa tímarnir aldrei verið meira spennandi í íslensku viðskiptalífi en nú. Góð lífskjör hafi skapast í landinu en tryggja þurfi íslenskum sem erlendum fyrirtækjum góð starfsskilyrði hér á landi. Það er eitt af áhersluatriðum Viðskiptaráðs stuðla að því að Ísland verði sveigjanlegur vinnumarkaður til þess að hér verði áframhaldandi atvinnusköpun og hagsæld. Skapa þurfi það umhverfi sem tryggir að íslensk fyrirtæki vilji starfa hér á landi og það sé jafnframt best fyrir þau, meðal annars með því að einfalda og bæta skattkerfið. Auk þess þurfi að auka umræðuna um og leita leiða til að ná fram stöðugleika í gengi krónunnar. Viðskiptaráð er bakhjarl Háskólans í Reykjavík og Verslunarskóla Íslands og Halla vill styðja enn frekar við uppbyggingu á íslensku háskólaumhverfi. Viðskiptaumhverfið sé að að verða flóknara og þörfin fyrir hæfileikaríkt fólk með góða menntun sé að aukast í ljósi þess að verkefnin sem viðskiptalífið stendur frammi fyrir í framtíðinni verða sífellt flóknari. Halla tekur til starfa 1. mars næstkomandi en verður fyrst um sinn búsett í London þar sem hún stundar doktorsnám. Í náminu leggur hún áherslu á leiðtogafræði þar sem hún er sérstaklega að skoða íslenska leiðtoga fyrirtækja í hröðum alþjóðlegum vexti. Nýr framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands Spennandi tímar eru fram undan í íslensku viðskiptalífi að mati Höllu Tómasdóttur, nýráðins framkvæmdastjóra VÍ. HALLA TÓMASDÓTTIR Tekur við starfi framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs Íslands 1. mars. Sérfræðingar telja að hækkanir á gengi krónunnar gangi til baka á árinu. Gengi krónunnar var að meðaltali rúmlega ellefu prósentustigum hærra árið 2005 en árið á undan, segir í Markaðsyfirliti Greiningar Íslandsbanka. Gengið hefur ekki farið hærra frá því í upphafi níunda áratugarins. Dalurinn fór undir sextíu krón- ur, evran í tæpar sjötíu krónur og pundið í rúmar hundrað og fimm krónur. Samkvæmt Íslandsbanka má rekja hækkunina til upp- sveiflu í innlendu efnahagslífi á meðan stöðnun ríkti í mörgum helstu viðskiptalöndum Íslands. Íslandsbanki spáir um ellefu prósenta lækkun krónunnar á komandi ári. Ingvar Arnarson, sérfræðingur í greiningardeild bankans, segir að krónan muni halda styrk sínum framan af ári en lækka þegar líða tekur á: „Við sjáum fram á lækkun stýrivaxta Seðlabankans þegar stóriðjuframkvæmdir hafa náð hápunkti, auk þess sem stór hluti erlendra krónubréfa er á gjalddaga á síðari hluta árs. Þessir þættir munu líklega valda lækkun krónunnar.“ - jsk Ellefu prósenta gengishækkun Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkaði um 64,7 prósent á árinu sem leið og stóð í 5534,39 stigum við lokun á síðasta viðskiptadegi ársins. Vísitalan hefur aldrei hækkað meira á einu ári samkvæmt greiningardeild KB Banka. Úrvalsvísitalan hefur hækkað um rúm þrjú hundruð og níu prósentustig frá ársbyrjun 2003 og til ársloka 2005 og samtals um tæp fjórtán hundruð stig frá því árið 1993. Til samanburðar má nefna að Dow Jones vísitalan bandaríska hefur frá árinu 1993 hækkað um tvö hundruð tuttugu og sjö prósent. Þrjú félög hækkuðu um meira en hundrað prósent á árinu: Landsbankinn félaga mest, um rúm hundrað og tólf prósent, þá Bakkavör með litlu minni hækkun og loks FL Group sem hækkaði um hundrað og tvö prósent. Fimm félög til viðbótar hækkuðu um meira en fimmtíu prósent. Þrjú félög Kauphallarinnar lækkuðu í verði á árinu: Fiskeldi Eyjafjarðar um áttatíu prósent, Flaga Group um 24 prósent og loks SÍF, en bréf í fyrirtækinu lækkuðu um sextán prósent. Bandaríska Dow Jones vísitalan féll um rúm 0,6 prósent á árinu, NASDAQ-tæknivísitalan hækkaði um tæpt 1,4 prósent. Um sautján prósenta hækkun varð á bresku FTSE-vísitölunni, þýska DAX-ið hækkaði um tuttugu og sjö prósent og hin franska CAC- 40 um tæp 24 prósent. Japanska Nikkei-vísitalan hækkaði um rúm fjörutíu prósent. Hvergi varð þó meiri ávöxtun en í egypsku kauphöllinni þar sem bréf hækkuðu að meðaltali um rúm hundrað og þrjátíu prósentustig. - jsk Methækkun úrvalsvísitölunnar Þrjú félög Kauphallarinnar hækkuðu um hundr- að prósent á árinu sem leið. Íslenska kauphöllin stenst þó ekki samanburð við þá egypsku. Tilvalinn fjárfestingarkostur fyrir flá sem vilja binda fé í skamman tíma án mikillar áhættu. Enginn munur er á kaup- og sölugengi og innstæ›an er alltaf laus til útborgunar. 9,1% E N N E M M / S IA P E N I N G A M A R K A ‹ S S J Ó ‹ U R Peningamarka›ssjó›ur er fjárfestingarsjó›ur skv. lögum nr. 30/2003, um ver›bréfasjó›i og fjárfestingarsjó›i. Rekstrarfélag sjó›sins er Rekstrarfélag Kaupflings Búna›arbanka hf. Fjárfestingarsjó›ur telst vera áhættusamari fjárfesting en ver›bréfasjó›ur skv. lögunum. Meiri áhætta fjárfestingarsjó›s er fólgin í r‡mri fjárfestingarheimildum sem geta m.a. leitt til minni áhættudreifingar en í ver›bréfasjó›i. Nánari uppl‡singar um framangreint má nálgast í útbo›sl‡singu e›a útdrætti úr útbo›sl‡singu sjó›sins í útibúum KB banka e›a á www.kbbanki.is. *Nafnávöxtun á ársgrundvelli mi›a› vi› tímabili› 30.06 - 30.12 2005 – kraftur til flín! * Lokun á NMT- kerfinu frestað Póst- og fjarskiptastofnun hefur tilkynnt Símanum um heimild til að fresta lokun NMT- farsímakerfisins til 31. desember 2008. Ákvörðun PFS byggir á umsögnum frá aðilum sem hafa hagsmuna að gæta um hvort NMT- kerfinu verður lokað en meðal þeirra eru Neyðarlínan, LÍÚ og Samtök um ferðaþjónustu. Einnig hafa nokkrir aðilar sýnt því áhuga að byggja upp nýtt fjarskiptanet fyrir NMT-þjónustuna. Í bréfi frá Póst- og fjarskipta- stofnun segir að stefnt sé að því að ný stafræn farsímaþjónusta verði í boði frá lokum árs 2007 en ekki sé hægt að segja með vissu hvort þjónustan verði tilbúin þá. Einnig segir að hugsanlegt sé að til lokunar muni koma fyrr en í lok árs 2008 en ávörðun um það verði ekki tekin fyrr en öruggar heimildir liggi fyrir því hvenær ný farsímaþjónusta verði tekin í gagnið. H E L S T U V Í S I T Ö L U R Á R I Ð 2 0 0 5 Dow Jones (BNA) -0,61% NASDAQ (BNA) 1,37% FTSE (BRE) 16,7% DAX (ÞÝS) 27,1% CAC-40 (FRA) 23,8% Nikkei (JAP) 40,2% Icex-15 (ÍSL) 64,7% B R E Y T I N G A R Á H E L S T U G J A L D M I Ð L U M Gjaldmiðill 31. des. 2004 30. des. 2005 Breyting Bandaríkjadalur 61,190 63,130 - 3,17 % Evra 83,510 74,700 -10,55 % Sterlingspund 118,150 108,850 - 7,87 % Dönsk króna 11,225 10,014 - 10,79 % Norsk króna 10,135 9,344 - 7,80 % Sænsk króna 9,258 7,945 - 14,18 % Svissneskur franki 54,100 48,030 - 11,22 % Japanskt jen 0,597 0,538 - 9,93 % Heimild: Seðlabanki Íslands.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.