Fréttablaðið - 04.01.2006, Page 62
4. janúar 2006 MIÐVIKUDAGUR22
menning@frettabladid.is
!
������������������������������������������
�������������������������������
���������������������������������������������������������������������������������������������
��������� ���������������������������������������������������������������
����������������������������� �������������������������������������������������
��� ��������� ������������������� ������������������������������������ ���������������
������������ �����������������������������������������
�
������������ �������������� �� �����������
��������������������������������� ��������������������������������������������������
�
�� �������������������������������������� ���������� ��������������������������
Stóra svið
SALKA VALKA
Su 8/1 kl. 20 Su 22/1 kl. 20
Fi 26/1 kl. 20 SÝNINGUM FER FÆKKANDI
WOYZECK
Lau 7/1 kl. 20 Su 15/1 kl. 20
Lau 21/1 kl. 20 Su 29/1 kl. 20
KALLI Á ÞAKINU
Su 8/1 kl. 14 Su 15/1 kl. 14
Lau 21/1 kl. 14 Su 22/1 kl. 14
CARMEN
Fi 12/1 kl. 20 FORS. miðav. 2.000- kr
Fö 13/1 kl. 20 FORS. miðav. 2.000- kr
Lau 14/1 kl. 20 FRUMSÝNING UPPSELT
Fi 19/1 kl. 20 Gul kort
Fö 20/1 kl. 20 Rauð kort
Fö 27/1 kl. 20 Græn Kort
Lau 28/1 kl. 20 Blá kort
Nýja svið/Litla svið
MANNTAFL
Su 8/1 kl. 20 Lau 14/1 kl. 20
SÍÐUSTU SÝNINGAR!
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
SÝNINGAR HEFJAST AÐ NÝJU Í FEBRÚAR!
BELGÍSKA KONGÓ
Lau 7/1 kl. 20 Su 15/1 kl. 20
Fö 20/1 kl. 20 Lau 28/1 kl. 20
GLÆPUR GEGN DISKÓINU
EFTIR GARY OWEN.
Í SAMSTARFI VIÐ STEYPIBAÐSFÉLAGIÐ STÚT
Fi 12/1 kl. 20 FRUMS. UPPS. Fö 13/1 kl. 20
Lau 21/1 kl. 20 Su 22/1 kl. 20
Naglinn
e. Jón Gnarr í samstarfi við 540 Gólf leikhús
Fö 20/1 kl. 20 FRUMSÝNING UPPSELT
Lau 21 /1 kl. 20 Fö 27/1 kl. 20
Lau 28/1 kl. 20
Færri komast að en vilja á
hina árlegu Vínartónleika
Sinfóníunnar, þrátt fyrir
að tónleikarnir verða
haldnir fjórum sinnum
þetta árið. Mörgum finnst
jafn ómissandi að fara á
Vínartónleika til að fagna
nýju ári og að skjóta upp
flugeldum.
„Johann Strauss var álíka heitur og
Snoop Dog eða Eminem í dag, nú eða
Bubbi. Nýrra tónsmíða frá Strauss
var beðið með eftirvæntingu og
konurnar kiknuðu í hnjánum yfir
yfirvaraskegginu.“
Þetta segir Eggert Pálsson,
slagverksleikari í Sinfóníuhljómsveit
Íslands. Eggert stundaði á sínum
tíma nám í Vínarborg og fékk þar
Vínartónlistina beint í æð.
„Þeir sem hafa verið í námi í
Austurríki komast ekki hjá því að
kynnast þessari tónlist, rétt eins
og þeir sem hafa verið í Skotlandi
kynnast sekkjapípum. Það er bara
svoleiðis.“
Eggert stígur á sviðið í
Háskólabíói í kvöld ásamt félögum
sínum í Sinfóníuhljómsveitinni
til þess að flytja glæsilega Vínar-
dagskrá fyrir prúðbúna gesti.
Stjórnandi á tónleikunum er
Austurríkismaðurinn Peter Guth,
sem er að koma hingað til lands
í tíunda sinn til þess að stjórna
Vínartónleikum Sinfóníunnar.
Einsöngvari tónleikanna verður
karlmaður í þetta sinn, Anton
Scharinger, sem einnig er
Austurríkismaður.
Eggert segir miklu muna að fá
til liðs við hljómsveitina menn sem
þekkja vel til Vínartónlistarinnar
því það er engan veginn sama
hvernig hún er flutt.
„Þótt þessi tónlist sé í eðli sínu
mjög einföld er ákaflega snúið
að spila hana vegna þess að hún
krefst mikils léttleika og natni
hljóðfæraleikaranna.“
Þótt hljóðfæraleikarar í
Sinfóníuhljómsveit séu þaulvanir
nótnalestri dugar jafnvel það ekki til
þegar flytja þarf Vínartónlistina.
„Maður þarf að lesa þetta með
allt öðrum augum. Til dæmis eru
allar nótur styttar og ekki endilega
alltaf jafnt í takti og þá þurfa líka
allir að vera sammála um hvernig
þetta á að vera.“
Til eru ógrynnin öll af tónlist sem
flokka má til Vínartónlistar og á
tónleikum Sinfóníunnar í ár verður
boðið upp á fjölmarga gullmola
eftir tónskáld á borð við Offenbach,
Adolph Müller, Emmerich Kálmán,
Ludvig Gruber og fleiri, að
ógleymdum feðgunum Strauss.
„Mikið af þeim anda sem
einkennir tónlistina er að finna
í samfélaginu í Vín. Það gengur
mjög mikið út á elegans og svo
snerpu í húmor og öðru. Þetta voru
líka umbrotatímar og það kemur
svolítið fram í tónlistinni. Menn
voru að skrifa polka og valsa af
öllu möguleg tilefni,“ segir Eggert
og nefnir sem dæmi komu símans
eða þegar lestirnar voru að ryðja
sér til rúms. „Það má finna polka
eða valsa fyrir nánast hvaða
tilefni sem er. Svo geta komið
krassandi innskot eins og oft má
sjá á Vínartónleikum, því við erum
með grín og gaman sem oft kemur
mjög á óvart. Slegið er í steðja eða
skotið af haglabyssu og guð má vita
hvað. Þetta gerir tónlistina svolítið
óvænta og sjarmerandi.“
Tónleikarnir í kvöld hefjast
klukkan 19.30 og verða þeir
endurteknir á sama tíma á
fimmtudags- og föstudagskvöld.
Fjórðu og síðustu tónleikarnir í ár
verða svo á laugardaginn kemur
klukkan 17.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITIN Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands er sannkölluð flugeldasýning þar sem búast má við óvæntum
innskotum hvenær sem er.
Vínartónlist er vandasöm
Ásgerður Júníusdóttir verður hin blóðheita Carmen í
sýningu Borgarleikhússins á söngleik, sem byggður
er á hinni frægu óperu Bizets. Söngleikurinn verður
frumsýndur 14. janúar á stóra sviði leikhússins.
Þetta verður sannkölluð stórsýning sem sett er
upp í samvinnu við Íslenska dansflokkinn. Á sviðinu
verða tíu leikarar, átta dansarar og sex manna
hljómsveit.
Sveinn Geirsson mun leika Don José, Erlendur
Eiríksson leikur Excamillo og með önnur hlutverk fara
Bergur Þór Ingólfsson, Birna Hafstein, Guðmundur
Ólafsson, Marta Nordal, Kristjana Skúladóttir, Pétur
Einarsson og Theódór Júlíusson. Leikstjóri er Guðjón
Pedersen.
Önnur stór persóna mætir á stóra sviðið tólfta
febrúar, en þar er á ferðinni sjálf Ronja ræningjadóttir
sem Arnbjörg Hlíf Valsdóttir ætlar að leika. Í þessari
sýningu, sem byggð er á síðustu bók Astrid Lindgren,
fer Friðrik Friðriksson með hlutverk Birka Borkasonar,
en foreldra Ronju leika Þórhallur Sigurðsson og Sóley
Elíasdóttir. Eggert Þorleifsson leikur Skalla-Pétur.
Hjómsveitina skipa þeir Agnar Már Magnússon
á harmoniku. Ólafur Jónsson og Óskar Guðjónsson
á saxófóna, Ásgeir Ásgeirsson á gítar-tambura, Erik
Qvick á trommur og slagverk, Eiríkur Orri Ólafsson
á trompet, Róbert Þórhallsson og Valdimar Kolbeinn
Sigurjónsson á bassa.
Leikstjóri er Sigrún Edda Björnsdóttir.
Carmen og Ronja koma > Ekki missa af ...
... stórtónleikum Náttúrufélags Íslands
í Laugardalshöll á laugardaginn
þar sem Ham, Trabant, Magga
Stína, Múm, Sigur Rós, Hjálmar,
KK, Rass, Björk, Zeena Parkins,
Ghostigital, Damon Albarn, Egó og
fleiri sýna í verki hug sinn til náttúru
Íslands.
... hádegistónleikum Hlífar Péturs-
dóttur sópransöngkonu og Antoniu
Hevesi píanóleikara í Hafnarborg á
fimmtudaginn, þar sem þær ætla að
flytja franska og freistandi dagskrá.
... lokahófi í sýningarýminu Suðsuð-
vestur í Keflavík á þrettándanum. Þar
hefur hljómsveitin Hellvar gert sig
heimakomna með allar sínar græjur
og tekið upp nýja tónlist.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
JANÚAR
1 2 3 4 5 6 7
Miðvikudagur
■ ■ TÓNLEIKAR
19.30 Austurríski bassabaritón-
söngvarinn Anton Scharinger
syngur á Vínartónleikum
Sinfóníuhljómsveitar Íslands í
Háskólabíói. Stjórnandi verður Peter
Guth. Þetta eru fyrstu tónleikarnir af
fernum.
■ ■ SAMKOMUR
17.30 Fyrsta hláturæfing
Hláturkætiklúbbsins á nýju ári
verður í fundarsal heilsumiðstöðvar-
innar Maður lifandi, Borgartúni 24.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
Kl. 17.30
Hvað er betra en að fagna nýju ári
með hressilegum hlátri. Fyrsta
hláturæfing Hláturkætiklúbbsins
á nýju ári verður í dag í fundarsal
heilsumiðstöðvarinnar Maður lif-
andi, Borgartúni 24. Hláturæfingar
eru haldnar vikulega og standa í
hálfa klukkustund. Ekki þarf að skrá
sig sérstaklega í klúbbinn né heldur
að skuldbinda sig til að mæta á
æfingar.