Tíminn - 28.11.1976, Side 3
Sunnudagur 28. nóvember 1976
3
ÍSLAND
Uppdráttur Ferðafélags Islands
VEGAKORT
Vegalemiíltr Vepmimer
Austurland:
UIA hvetur fólk
til útivistar
— gefur út kort yfir skemmtilegar
gönguleiðir
Mó-Reykjavik. — Ahugi á al-
menningsiþróttum er mjög
mikill hjá forráðamönnum Ung-
menna- og iþróttasambands
Austurlands og hefur samband-
ið nú m.a. beitt sér fyrir útgáfu
á kortum yfir skemmtilegar
gönguleiðir á Austurlandi. Til-
gangur með útgáfu kortanna er
margþætturog m.a. sá að stuðla
að aukinni útivist fólks og
hvetja það til að kynnast landi
sinu og náttúru þess betur. Þá
getur útgáfa slikra korta stuðl-
að að söfnun örnefna og þar með
bjargað þeim frá glötun.
Ungmenna- og iþróttasam-
band Austurlands eru samtök 20
ungmenna- og iþróttafélaga á
Austurlandi. í sambandinu eru
um 1200 félagar, 16 ára og eldri,
og iðkendur iþrótta eru um
2.500. Nýlega setti sambandið á
fót skrifstofu á Egilsstöðum og
ýmsar nýjungar eru á döfinni
hjá sambandsstjórn.
Aformað er að halda 10 fé-
laesmálanámskeið á sam-
bandssvæðinu i vetur og verða
þau haldin á vegum Félags-
málaskóla UMFl. Þá eru nú i
gangi þrjú iþróttanámskeið á
vegum Grunnskóla ÍSÍ. Meö þvi
stefnir sambandið að þvi að
koma sér upp eigin iþróttaþ jálf-
urum, en aðkeyptir þjálfarar
hafa þótt nokkuð dýrir, auk þess
sem þeir hafa verið misjaf nir að
gæðum, segir i frétt frá
sambandinu.
Mótahald er komið i nokkuð
fastar skorður hjá sambandinu
og eru Austurlandsmót haldin i
sjö iþróttagreinum árlega.
Stærsti iþróttaviðburðurinn ár
hvert er Sumarhátið OIA, sem
haldin er að Eiðum.
Samskipti sambandsins og
skólanna hafa farið vaxandi hin
siðari ár, og UÍA hefur skipu-
lagt nokkur mót, sem ætluð eru
nemendum skólanna. Nú eru
iþróttakennarar skólanna að
stofna með sér samtök, og er
ætlunin með þeim að tryggja, að
allir skólarnir geti verið með i
þessum mótum.
Nokkrar gönguleiðir á Austurlandi.
wmmmmmmmKmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmrnmmmmmmmmm
Nýtt íslandskort frá Ferðafélaginu
ÚT ER KOMIÐ nýtt Islandskort
F.l. Kortið er i mælikvarða 1:750
þús. og er þetta 17. útgáfa af upp-
drætti íslands, sem F.l. gefur út.
A þessu korti eru ýmsar upplýs-
ingatöflur, sem ekki hafa verið á
kortum áður, svo sem nokkrar
vegalengdir á milli fjarlægra
staða, t.d. er hringvegurinn 1416
km langur. Ennfremur er tafla
um hæð nokkurra fjallvega yfir
sjó. Þá er og skrá yfir helztu virk-
ar eldstöðvar á Islandi og þekkt
gos i þeim eftir að land byggðist.
Eins og á undanförnum útgáf-
um er vegakort á bakhlið Islands-
kortsins, þetta vegakort er nú i
mælikvarða 1:600 þús., en það er
nýjung, áðurhafa vegakortin ver-
ið i sama mælikvarða og Islands-
kortin. A þessu korti eru allir
aðalvegir númeraðir samkvæmt
núgildandi vegamerkingum.
Vegakortið er yfirfarið af
Vegamálaskrifsofunni, segir i
frétt frá Ferðafélaginu, en Is-
landskortið hafa Landmælingar
Islands endurskoðað. Agúst
Böðvarsson frv. forstöðumaður
Landmælinga hafði yfirumsjón
með útgáfu á kortinu.
Kortið er prentað i Grafik hf.
eftir uppdráttum Geodætisk
Institut. Kápan er gerð i Offsett-
myndun sf., forsiðuna á henni
prýðir mynd af Eystrahorni og
Hvalnesi, en myndina tók Páll
Jónsson.
Siressless-stóllinn
Framleiöandi
grindar:
Stálhúsgögn
Skúlagötu 61
Bólstrun:
Bæjarbólstrun
Skeif uhúsinu
Akranes:
ísafjöröur:
Sauðárkrókur:
Akureyri:
Neskaupstaður:
Seyðisf jörður:
Reykjavík:
Sölustaðir:
Verzlunin Bjarg h.f.
Húsgagnaverzlun ísafjarðar
Verzlunin Hátún
Vörubær h.f.
Höskuldur Stefánsson
Höröur Hjartarson
Hibýlaprýði, Hallarmúla.
k
Hvíídarstóll fiúSkéjumi er vegleg gjöfog vönduÓ.
SMIDJUVEGI6 SÍMI44544
IUÖRGARDI SÍMI16975
Slappió af í
ressless stólnum
og látió þreytuna
íóa úr sál og
líkama.
í hvaóa
stöóu sem
er-Stressless
er alltaf jafn þægilegur. Þaó er engin tilviljun aó
Stressless er vinsælasti hvíldarstóllinn á Noróur-
löndum.
Stresslesserstílhreinn stóll meó ekta leóri eóa
áklæói aó yóar vali. Meó eóa án skemils.
Þeir, sem ætla aó velja góóa og vandaóa vinar-
gjöf, ættu aó staldra vió hjá okkur
í Skeifunni og sannprófa gæói
Stressless hvíldarstólsins.