Tíminn - 28.11.1976, Blaðsíða 37

Tíminn - 28.11.1976, Blaðsíða 37
Sunnudagur 28. nóvember 1976 37 N Hjaltlenzk stjórn? tBOAR Hjaltlands hyggjast fara sinar eigin leiðir i sjálfstjórnar- málum. A meðan fólk i öðrum hlutum Stóra-Bretlands getur ekki komið sér saman um hvernig kosningum um sjálfstjórn Wales og Skotlandi til handa skuli vera háttað, ætla yfirvöld á Hjalt- landseyjum að efna til almennra kosninga þar. Núna eru ibúar eyj- anna um fjórtán þúsund talsins. Hjaltland er venjulega talið til- heyra Skotlandi, og það er einmitt það, sem Hjaltlendingar vilja ekki sætta sig við. Markmiðið með kosningunum er að leggja á- herzlu á þá kröfu, að Hjaltland verði aftur tengt Englandi, og hafi London sem höfuðborg, i stað Skotlands með Edinborg sem höfuðborg, burtséð frá þvi hvað gerist i baráttu Skota fyrir sjálf- stjórn. Hvað Skotana áhrærir, þá leggja hörðustu þjóðernissinn- amir á það rika áherzlu að fá fullt sjálfstæði. Þeir vilja stofna skozkt riki óháð Englandi i öllum málum. Þeir þykjast fullfærir um það efnahagslega séð, vegna olí- unnar i Norðursjónum, sem þeir telja sig eiga tilkall til. Skozku þjóðernissinnarnir hafa alltaf tekið það sem sjálfsagðan hlut, að Hjaltlandseyjar fylgi Skotlandi, en eyjaskeggjar vilja ekki viður- kenna það. Þeir telja hagsmuna sinna betur gætt undir stjórn i London. Til viðbótar þeim föstu styrkjum sem Hjaltland hefur um árabil fengið frá rikinu, hafa þeim einnig verið tryggðar álit- legar tekjur af oliunni i Norður- sjónum og þeim framkvæmdum, sem þar fara fram. I skoðanakönnun, sem gerð var fyrir skömmu, kemur i ljós, að langflestir kjósendur i Skotlandi vilja, að þessi landshluti verði enn um sinn óaðskiljanlegur hluti af konungsrikinu, eins og hann er i dag. En þeir vilja jafnframt fá langtum meiri sjálfstjórn heldur en nú er. Flestir eru lika fylgjandi þvi, að þjóðaratkvæðagreiðsla verði haldin um málið. En ósam- komulag er um það, hvort at- kvæðagreiðslan skuli aðeins fara fram meðal Skota, eða um gjör- vallt landið. Það verður neðri málstofa brezka þingsins, sem á að skera úr um það, hvort Skotar fái sjálf- stjórn og hvernig snúast eigi við þessu vandamáli, sem er bæði flókið og mjög umdeilt. Stefnurn- ar eru óskýrar og ganga þversum i gegnum alla flokka. Það eina, sem er öruggt er, að þegar f jallað verður um þetta mál á þingi, verða harðar og skarpar sennur, þannig að það getur orðið til að taka allan tima þingsins, svo að ekki verði timi til að taka önnur stórmál til umræðu þann vetur- inn. (Þýtt J.B.) s jálf- H jaltlandseyjar voru uppruna- lega norskt land og finnast fjöl- margar minjar þar frá norska timanum. A skjaldarmerki eyj- anna stendur t.d. skrifað „med logum skal land byggja". Ný ævintýraskáld- saga: Með báli og brandi gébé Rvik — - MEÐ BALI OG BRANDI nefnist skáldsaga eftir Joe Poy- er, sem bókaútgáfan Orn og örlygur hefur gefið út. Þetta er ævintýraskáldsaga, en höfundurinn er kunnur fyrir bækur sinar. Hann hefur á sið- ustu árum verið að ryðja sér til rúms á erlendum skáldsagna- markaði, og má til marks um það nefna sem dæmi, að hinn kunni Alistair Maclean sagði um fyrstu bók Poyers, North Cape, að hún væri bezta ævin- týraskáldsaga, sem hann hefði lesið um árabil. Bókin segir frá fyrrverandi flugmanni i bandariska flug- hernum, sem rekur flutninga- fyrirtæki i smáum stil. Hann gerist aðstoðarmaöur Interpol jg tekst að hafa upp á aðal- tekjulind nýnasista i Mið Evrópu. Bókin er geysispennandi frá upphafi til enda. Hún er sett i Prentstofu G. Benediktssonar., prentuð i Prentsmiðjunni Viðey hf. og bundin i Arnarfelli. Kápu- teikningu gerði Hilmar Þ. Helgason. Ný bók: Ljós mér skein — á dimmum dögum gébé Rvik— LJÖS MÉR SKEIN á dimmum dögum, nefnist endurminningar Sabinu Wurm- brand i þýðingu Sigurlaugar Arnadóttur sem bókaútgáfan örn og örlygur hefur nýverið sent frá sér. í bók sinni greinir Sabina Wurmbrand frá þvi, hvernig bjargföst trú á guð lega handleislu veitti henni styrk til þess að lifa af ómann- úðlega meðferð i fangelsum kommúnista i Rúmeniu. A bókarkápu segir m.a.: Höfundurþessararbókarer um margt frábær. Arum saman verður hún að sæta hinni hrak- smánarlegustu meðferð i fanga- búðum kommúnista i heima- landi sinu, Rúmeniu. Pyndingar og hvers konar harðrétti eru megineinkenni i daganna þraut. Þjakandi áhyggjur'vegna eigin- manns og sonar leggjast þungt á hug og hjarta. En bugast lætur hún aldrei. Bókin er sett i Prehtstofu G. Benediktssonar, prentuð i Prentsmiðjunni Viðey og bundin i Arnarfelli. Kápumynd gerði Hilmar Þ. Helgason. Fjallað um tilverurétt sálarfræði SUNNUDAGINN 28. nóv. verður fluttur á vegum Félags áhuga- manna um heimspeki fyrirlestur i Lögbergi, húsi lagadeildar Há- skóla Islands. Fyrirlesari er Magnús Kristjánsson, sálfræð- ingur, og ræðir hann um um- deilda grein Þorsteins Gylfason- ar, lektors, i Skirni 1975, sem nefnist „Ætti sálarfræöi að vera til”. Fyrirlesturinn hefst kl. 14.30 og er öllum opinn. Smíðajárnskertastjakar Jólin nálgast og ekki seinna vænna að ákveða hvað gefa skal vinum og vandamönnum (nú eða sjálfum sér) i jólagjöf. Handverk s.f. býður eftirtaldar gerðir af kertakrók- um, gólf- og veggstjökum á góðu verði — og án nokkurs aukakostnaðar. AHA. Gleymdist nú ekkert? Jú, auðvitað gjafaverðið en það er: 6000 kr. kosta L 1 og G 1 5000 kr. kosta L 2 4500 kr. kosta L 3 3500 kr. kosta L 5 3000 kr. kosta L 4, L 6 og V 9 2500 kr. kosta V 1 og V 8 2000 kr. kosta V 2, V 3 og V 4 1500 kr. kosta V 5, V 6 og V 7 Ef þér hafið áhuga, fyllið þá út seðilinn og við sendum pöntunina um hæl. r x Ég undirrit. Naf n-------- Heimili Sími Póststöð. óska eftir að mér verði send: ______stk------------gerð — Samtals kr.. HANDVERK S.F. Nýbýlavegi 98 — Kópavogi Sími (91) 4-33-37 (aðeins á kvöldin). stk-----------gerð — Samtals kr. X □ óskast sent heim (Stór-Reykjavíkursvæði eingöngu) □ óskast sent í póstkröfu. Krossið þar sem við á.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.