Tíminn - 28.11.1976, Blaðsíða 39
Sunnudagur 28. nóvember 1976
39
flokksstarfið
Skipulags-
mál
Reykjavíkur
Fulltrúaráö Framsóknarfélaganna I Reykjavfk, gengst fyrir
fundi um skipulagsmál Reykjavfkur, aö Hótel Esju, miöviku-
daginn 1. des. kl. 20.30: Framsögumenn Helgi Hjálmarsson og
Guðmundur G. Þórarinsson. Allir velkomnir.
Borgfirðingar
Framsóknarfélag Borgarfjaröarsýsiu heldur
fund i Brún i Bæjasveit föstudagskvöldiö 3.
des. kl. 9 Dagskrá: Aöalfundarstörf. Halldór
E. Sigurðsson ráöherra flytur ávarp og svar-
ar fyrirspurnum. — Stjórnin.
vimmn
veggstrigu' náttúrulegum litum
90 sm breidd
PIOXlíliR
korkveggklœöning i veggfóffursformi
90 sm breidd
KÓPAVOGS SF
NÝBViAVEGI 8 SÍMt:41000
| Auglýsið í Tímanum |
© Vík í Mýrdal
Alvarlegt ástand
i rafmagnsmálum
Mjög alvarlegt ástand er i raf-
magnsmálum i Vik, vegna þess
ab aðflutningslinur að þorpinu
geta ekki flutt næga orku. Þetta
hefur orðið til þess, að ekki er
hægt að fá rafmagn til húshitun-
ar, og ný iðnfyrirtæki er ekki
hægt að setja upp, vegna skorts á
raforku. Mikill hugur er þó i
mönnum að gera atvinnulifið fjöl-
breyttara, en nú er, en forsenda
þess, að það sé hægt, er að fá
meiri orku.
Hreppsnefndin hefur tekið þessi
mál tilmeðferðar og sent áskorun
til stórnar Rafmagnsveitna rikis-
ins, þingmanna Suðurlands og
fjárveitinganefndar Alþingis þess
efnis, að þegar verði hafizt handa
um að bæta þetta alvarlega á-
stand.
Leggur hreppsnefndin áherzlu
á, að raflinan frá Hvolsvelli til
Vikur verði endurbyggð hið
fyrsta. Verst er ástandið á raflin-
unni frá Markarfljóti að Skógum
og vill hreppsnefndin þvi leggja
sérstaka áherzlu á að sú lina
verði endurbyggð, en aðrir kaflar
teknir að þeirri framkvæmd lok-
inni.
Þá óskar hreppsnefndin mjög
eindregið eftir þvi, að til þess að
firra vandræðum i vetur, verði
sett upp 500 kw diselrafstöð í Vik.
Vilja jarðstöð i Vik
Nú mun verða ákveðið, að
lóranstöðin á Reynisfjalli verði
lögð niður um áramótin 1977-1978.
Þetta hefur það i för með sér, að
10 heimilisfeður i Vik missa at-
vinn u sina, en á þessum heimilum
eru samtals 58 manns. Verði ekki
önnur atvinna fyrir hendi handa
þessum mönnum, er hætt við aö
þetta fólk alltflytji burt, en hér er
um 16% af ibúum þorpsins að
ræða.
Sr. Ingimar sagði, að hrepps-
nefndin hefði sent frá sér áskorun
til stjórnvalda um, að ef tækni-
lega væri unnt, yrði jarðstöðinni,
sem nú er talað um að reisa hér á
landi, valinn staður i nágrenni við
Vik. Benti hann á, að til þess að
reka svona stöð, þyrfti um 15-18
manna starfslið og einmitt menn
með sömu tækniþekkingu og þeir,
sem starfa i lóranstöðinni hafa.
Ibúðir fyrir þetta starfslið eru
fyrir hendi við lóranstöðina, og
vel er hugsanlegt, að eitthvað af
þeim byggingum, sem þar eru nú
þegar, mætti nýta i þágu jarð-
stöðvar.
Vantar meiri fjölbreytni
i atvinnulifiö
Sr. Ingimar sagði að ibúar i Vik
hefðu mikinn áhuga á að auka
fjölbreytni atvinnulifsins á staðn-
um. Stöðugt væri unnið að þvi að
leita nýrra fyrirtækja, sem hent-
að gætu, og ekki mætti samdrátt-
ur verða i neinni þeirri starfsemi,
sem fyrir væri. Kvaðst Ingimar
vona, að rikisvaldið styddi við
bakið á þeim, sem efla vildu at-
vinnulifiðí Vik, og bentiá, að ekki
hefði rikið þurft að leggja fram fé
vegna skuttogarakaupa i Vik,
eins og viða annars staðar.
Ingimar nefndi sem þarft og
vaxandi fyrirtæki i Vik Prjóna-
stofuna Kötlu. Þar ganga prjóna-
vélarnar dag og nótt og márgar
konur vinna við að sauma úr
prjónlesinu. Alls starfa 25-30
manns hjá fyrirtækinu.
Nú er verið að sauma 4000
barnapeysur i Vik, en það er hluti
af stórum samningi, sem Sam-
band Islenzkra samvinnufélaga
hefur gert um sölu á barnapeys-
um til Rússlands.
Þá nefndi sr. Ingimar sem mik-
ið hagsmunamál þeirra, sem i
Vestur-Skaftafellssýslu búa, að
vegaframkvæmdir verði sem
mestar og bundið slitlag verði
lagt á veginn alla leið þangab
austur. Miklir flutningar eru um
þann veg, m.a. allir þungavöru-
flutningar, meðan ekki verður
gerð höfn við Dyrhólaey.
Tíminn er
• peningar j
j AuglýsícT :
| i Tímanum I
: n
Nýtt rit um iðnaðarmól
FRJÁLST framtak hf. hefur nú
hafið útgáfu á nýju blaði — Iðnað-
arblaðinu. Eins og nafn blaðsins
bendir til, er hér um að ræða sér-
rit um iðnaðarmál, og er þvi ætl-
að að f jalla um iðnaðinn á breið-
ustum grundvelli, þ.e. bæði inn-
lendan og erlendan iðnað, tækni-
nýjungar i iðnaöi, markaðsmál,
fræðslumál, og félagsmál svo
nokkur dæmi séu nefnd, segir i
frétt frá útgáfunni. Fyrsta tölu-
blað Iðnaöarblaðsins er 100 bls.
að stærð.
Ritstjórar Iðnaöarblaðsins eri
Jóhann Briem og Reynir Huga-
son. Auglýsingastjóri er Hákon
Hákonarson, ljósmyndarar eru
Kristinn Benediktsson og Jóhann-
es Long og útlitsteikningu annast
Ami J. Gunnarsson.
Iðnaðarblaðiðer þriðja sérritið
um islenzka atvinnuvegi, sem
Frjálst framtak hf. gefur út. Hin
blöðin eru Frjáls verzlun og
Sjávarfrettir. Auk nefndra blaöa
gefur fyrirtækið einnig út íþrótta-
blaðið i samvinnu við ÍSI.
RÍKISSPÍTALARNIR
lausarstöður
LANDSPÍTALINN
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR eða
UÓSMÓÐIR óskast á kvenlækn-
ingadeild spitalans, D-5, nú þegar.
Nánari upplýsingar veitir hjúkrun-
arforstjóri spitalans, simi 24160
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR og
SJÚKRALIÐAR óskast á hjúkrun-
ardeild spitalans við Hátún nú þeg-
ar eða eftir samkomulagi. Vinna
hluta úr fullu starfi eða einstakar
vaktir kemur til greina. Upplýs-
ingar veitir hjúkrunarforstjóri
spitalans, simi 24160
AÐSTOÐARMAÐUR óskast til
starfa við sjúkraflutninga á
röntgendeild spitalans nú þegar
eða eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir verk-
stjori flutningadeildar og yfir-
hjúkrunarfræðingur á röntgen-
deild.
KLEPPSSPÍTALINN
AÐSTOÐARMAÐUR óskast til
starfa hjá félagsráðgjafa nú þegar
eða eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir yfirfé-
lagsráðgjafinn.
DEILDARHJÚKRUNARFRÆÐ-
INGUR óskast til starfa á spitalan-
um nú þegar eða eftir samkomu-
lagi.
Nánari-upplýsingar veitir hjúkrun-
arforstjórinn simi: 38160
KENNSLUSTJÓRI. Hjúkrunar-
fræðingur rneð sérgrein i geðhjúkr-
unarfræði óskast til starfa sem
kennslustjóri á spitalann frá 1.
janúar n.k.
Nánari upplýsingar veitir hjúkrun-
arforstjórinn. Umsóknir er greini
aldur menntun og fyrri störf ber að
senda Skrifstofu rikisspitalanna
fyrir 12. desember n.k.
HJÚ KRUNARFRÆÐIN GAR ósk-
ast á næturvaktir á spitalanum nú
þegar eða eftir samkomulagi.
Vinna hluta úr fullu starfi kemur til
greina svo og einstaka vaktir.
Nánari upplýsingar veitir hjúkrun-
arforstjórinn simi: 38160.
Reykjavik, 26. nóvember 1976
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5, SÍM111765