Tíminn - 28.11.1976, Blaðsíða 35
Sunnudagur 28. nóvember 1976
35
Kirkjudagur í Seltjarnarnessókn
Velflestir vita trúlega núoröið,
hvaö fyrirsögn þessara oröa
merkir svo algengt gerist þaö, aö
söfnuöirnir velji sér einhvern dag
til sérstakra hátiöabrigba og f jár-
öflunar. Ekki sizt gegna slikir
dagar rikulegu hlutverki, þar
sem um nýstofnaöar sóknir er aö
ræöa, vanbúnar aö flestu i ytri
efnum. A Seltjarnarnesi er fyrir
nokkru hafiö sjálfstætt safnaöar-
starf og má sjá þess nokkurn staö
alla sunnudagsmorgna, en þá eru
ætlö barnasamkomur eöa aörar
guðsþjónustur i félagsheimilinu.
Ekki verður málum hrundiö fram
til heilla I bættum búnaöi og
gróskumeiri verkum, nema að
hönd tengist hendi I lifandi áhuga
og fjöldinn láti sig þessi efni
varða. Og sem betur fer, þá má
greinilega merkja það i aðsókn-
inni aö barnasamkomunum, bæöi
á Seltjarnarnesi, sem viöar,
hversu foreldrar vilja kjósa börn-
um sinum veg og leiðsögn til þess
staðar, þar sem Guös orö er haft
um hönd og boðað.
1 trausti á þennan fúsleika fólks
til aö hlúa aö þvi, sem þessu verki
heyrir og leiða á til blessunar og
mótunarfyrirunga sem aldna, þá
er á sunnudaginn kemur efnt til
fjölbreyttra samfunda kristnilifi
til eflingar. Sóknarnefnd ásamt
nánustu velunnurum hafa ósleiti-
lega unnið aö undirbúningi á ó-
sérhlifinn máta, og má vænta
þess að uppskeran skili sér i al-
mennri þátttöku og glöðu liösinni
bæjarbúa við aö gera daginn
minnilegan. Árlega skal þá fyrsti
sunnudagur i aöventu veröa
kirkjudagur á Seltjarnarnesi, þar
sem metiö veröur af þeim sam-
hug sem sýndur er, hvernig til-
tókst i þvi sem aö baki er, og i
annan staö horft fram og hvatt til
átaka við þaö sem þarf aö verða
og gerast i lifi safnaðar. öll dag-
skráratriöi á sunnudaginn fara
fram i félagsheimili Seltjarnar-
ness og veröa sem hér segir:
Guösþjónusta kl. n árdegis.
Einsöngur: Þórunn ólafsdóttir.
Basar kl. 15 (kl. 3) Þar má festa
kaup á kökum og laufabrauöi til
jólanna, marineraöri sild, aö-
ventukrönsum og fl. Kórsöngur.
Stjórn: Siguróli Geirsson. Aö-
ventukvöldvaka kl. 8.30 siðdegis:
Einsöngur og kórsöngur i umsjá
Rut L. Magnússon og talað orð
flytja Jónas Gislason lektor og
Sigurður Pálsson skrif.st.stj.
Veitingar.
Seltirningar, hefjið aöventuna
meö þvi að sameinast til stuön-
ings viö þann boðskap sem krist-
in kirkja flytur. Fyrir hennar at-
beina megum viö enn horfa fram
til hátiðar og heyra þau tiöindi,
,,að kóngur dýröar kemur hér —
og kýs að eiga vist með þér”.
Guömundur Óskar ólafsson.
Punktur punktur komma strik
fyrsta skáldsaga Péturs
Gunnarssonar sem út kom fyrir
þrem vikum er á þrotum
og önnur prentun hafin
„Hún (sagan) er bráðskemmtilegt verk, fulit af lífi
. . . húmorinn (er) ríkt einkenni á sógunr% . . Lesi
menn hana sjálfa!... Myndir Gylfa Gíslasonar eru
vel gerðar og eiga sinn þátt í ferskleika verksins."
Gunnar Stefánsson, Tíminn.
.,. . . fyrir alla m‘uni lesið'Pétur Gunnarsson. Það'
er ósvikinn rithöfundur, sem skrifar svona ... Gylfi
Gíslason hefur teiknað snjallar myndir i bók-
ina . . .“
Jóhann Hjálmarsson, Morgunblaðið.
„Húmor er leið'arljós í frásagnargerð Pétur Gunn-
arssonar . . . Það er oft hrein unun að lesa þenn-
an texta . . . hrífandi skemmtileg og umfiugsunar-
verð . . . dýrleg lesning."
Árni Þórarinsson, Visir.
Ný bók eítir Guúrim Helgatióttur höfwiú
bókaima m Jón Uðúog Jón Bjarna
í afahúsi
Þetta er sagan um Tótu litlu, átta ára óvenju-
lega bráðþroska telpu, og fólkið í afahúsi,
mömmu hennar og pabba, systkini, afa og
ömmu. Og á hinu leitinu er skólinn, þar sem
margt bertil tíðinda, og fólkið í götunni. Sagan
lýsir fjölþættu iðandi mannlífi, þar sem ekki
skortir skemmtileg atvik né hnyttin tilsvör frem-
ur en í fyrri bókum Guðrúnar.
Báðar bækurnar um Jón Odd og Jón Bjarna eru komnar út í nýjum útgáfum og fást nú aftur hjá bóksölum
Guórún Helgadóttir
í afahúsi