Tíminn - 28.11.1976, Blaðsíða 31

Tíminn - 28.11.1976, Blaðsíða 31
Sunnudagur 28. nóvember 1976 31 The Best Of New Riders And The Purple Sage Columbia PC 34367 — FACO HeUu <Á goMQA dStU' eS ÍSk»&kuM\ chjÁum ? A6 undanförnu hefur veriö uppi orörómur um þaö, aö fjármáiaráöuneytiö og toll- stjóraembættiö væru i þann veginn aö setja mikla auka- tolla á islenzkar hljómplötur. Héldu menn, aö þessir tollar gengu svo langt, aö islenzk hljómplötuframleiösia væri dauöadæmd. En þannig er ekki i pottinn búiö. Samkvæmt upplýsingum, sem Nú-timinn hefur aflaö sé'r hjá fjármála- ráöuneytinu eru þessir ,,nýju tollar” fólgnir i þvf, aö harö- ara en áöur veröur gengiö eft- ir þvi aö hljómplötuútgefend- ur gefi upp alla kostnaöarliöi viö gerö piatna erlendis, enda er allur eriendur kostnaöur tollskyidur. Þaö munu hafa veriö nokkur brögö aö þvi hjá hljómplötuút- gefendum, aö þeir hafi ekki gefið upp alla kostnaöarliði, sem á plötuna hafa komið er- lendis, en samkvæmt reglum, sem gilt hafa i mörg ár, er | skylt aö greiða toll af erlend- um kostnaði. Hér er þvi aöeins um að ræöa aukiö eftirlit meö þessum reglum — og aö eftir þeim sé fariö — en ekki neinar nýjar tollálögur. 1 raun er hér verið aö styöja við bakiö á islenzkum plötu- iönaöi, ef grannt er skoöaö. Þaö er veriö aö beina þeim til- mælum til hljómplötuútgef- enda — óbeint — aö þeir vinni plöturnar sem mest hér heima. Pressun og skurö á plötum, veröur aö visu aö vinna erlendis, en aöra þætti viö gerö platna er hægt aö vinna hér heima — og af þeirri vinnu greiðast engir tollar. Þaö eru nokkur dæmi þess, aö plötur hafa að hluta til ver- iö teknar upp erlendis, og þá er skylt aö greiöa tolla af vinnulaunum hljóöfæraleik- ara og upptökukostnaði. — En slikt er bara óþarfi. Hér hefur risið upp mjög gott stúdió, Hljóöriti, sem erlendir kunnáttumenn hæla á hvert reipi — og þvi ætti aö vera ónauðsynlegt aö fara til út- landa og taka þar upp plötu. Þá er annaö stúdió hér, Tón- tækni, sem þykir ágætt. Tal um, að tollskylda ætti kaffikostnaö I islenzku stúdiói, meðanupptaka færi fram (DB á miðvikudaginn) er þvi þvættingur. Engir tollar greiðast af islenzkri vinnu. Varekki einhveraö tala um, að efla ætti islenzkan iönað? Nú-timinn fær ekki betur séð en þetta sé viðleitni i þá átt. ★ ★ ★ ★ Bandariska Cosmic country rokk hljómsveitin New Rid- ers Of The Purple Sage var stofnuö áriö 1970 af John „Marmaduke” Dawson í sam- ráöi viö Jerry Garcia, leiötoga Grateful Dead. Auk Dowson, sem spilar og syngur, voru þeir David Nelson, rafmagns- gítar, og Dave Torbert, bassi, i hljómsveitinni og Garcia, sem lék á stálgitar (fetii gitar). Hljómsveitin byrjaöi sinn feril sem upphitunarhljóm- sveit á hljómleikum hjá Grateful Dead, enda varla annað hægt, þar sem Garcia var í báðum hljómsveitunum. Einnig voru þeir trommu- leikaralausir og lék þvi trommari Dead meö, ef svo bar undir. New Riders gefa svo út sina fyrstu plötu 1971, sem heitir einfaldlega N.R.P.S. A umslaginu er hljómsveitin gefin upp sem trió, Dowsons, Nelsons, og Torberts, en Gar- cia aöeins minnzt sem aö- stoöarmanns, ásamt þeim Mickey Hart, trommuleikara Greateful Dead og Spencer Dryden trommuleikara Jefferson Airplane, sem nokkru seinna gekk i New Rid- ers ásamt Buddy Cage (fetil gitar), og uröu þeir þar meö fimm og fullgild hljómsveit, sem gat fariö sinar eigin leiöir og þurfti ekki lengur aö treysta á G. Dead. Tónlistin á þessari fyrstu plötu var mjög i anda tónlistar Grateful Dead á plötunni American Beauty, ásamt tölu- veröum Byrdsáhrifum. Platan vakti nokkra athygli, enda mjög góð og vel gerð og varö það efalaust hvatning fyrir Dowson aö stofna alvöru New Riders. önnur plata N.R. (Meö fullu húsi manna) Powerglide, kom út vorið 1972. A henni eru þeir farnir að spila sitt eigiö country rokk, eöa cosmic country rokk, eins og þaö er kallaö i útlandinu. Siðan koma plöturnar með nokkuð jöfnu m illibili. Gypsy Cowlo I desember ’72, Adventures of Panama Red i nóvember ’73, Home, Home On The Road um vorið ’74. Eftir þá plötu hættir Dave Torbert og Skip Battin, fyrrum bassaleikari The Byrds kemur inn. Siöan kem- urplatan Brujo veturinn 74 og Oh What A Mighty Time voriö ’75. Þá skipta þeir um plötu- fyrirtæki og gefa út siöastliöiö sumar plötu, sem heitir, eins og sú fyrsta, N.R.P.S. Þetta er i stuttu máli ferill hljómsveitarinnar fram á þennan dag, eöa aö plötunni The Best Of New Riders, sem eins og nafniö ber meö sér, á aö innihalda beztu lög þeirra. Takið eftir, aö ég sagöi á aö innihalda beztu lög þeirra, en það er einmitt það, sem hún gerir ekki. Þó svo að ölllögin séu mjög góö og skemmtileg, eru til mörg önnur miklu bétri, sem eiga frekarheima hér. Af þeim tiu lögum, sem eru á plötunni mættu sex þeirra al- veg missa sig, fyrir önnur. Af fyrstu plötunni eru f jögur lög, af annarri eitt lag, af þriðju . ekkert, (mættu vera 2-3), af fjóröu tvö, (allt of litið), af fimmtu eitt, af sjöttu eitt, sjö- undu ekkert, enda frekar lé- leg, og af þeirri áttundu ekk- ert, enda hún gefin út á öðru merki. Þessi upptalning gefur til kynna, aö enga heildarmynd er hægt aö fá af tónlist þeirra gegnum árin. Ég mæli þvi ein- dregiö meö þvi, að þeir, sem vilja kynnast New Riders, fái sér fjórar fyrstu plöturnar þvi þaö veröur enginn svikinn af þeim. Best Of er gjörsamlega mis- heppnuö sem slik, þó svo aö hún sé mjög góö, en hún er einfaldlega ekki Best Of. Beztu lög: Panama Red I Don’t Know You Henry Kick In The Head. G.G. Lífeyrissjóður Verkalýðsféiaganna ó Suðurlandi auglýsir eftir umsóknum um lán úr sjóðn- um. Umsóknarfrestur er til 10. desember n.k. Nánari upplýsingar veita formenn félag- anna og skrifstofa sjóðsins, Eyrarvegi 15, Selfossi. Stjórnin SAMBAND ÍSLENZKRA SANIVINNUFÉLAGA Iðnaðardeild • Akureyri Tæknifræðingur óskum eftir að ráða tæknifræðing sem fyrst. Reynsla i sambandi viö hagræöingarstarfsemi æskileg. Húsnæöi til staöar. Fariö veröur meö umsóknir sem trúnaöarmál. Glerárgata 28 Pósthólf 606 Simi (96)21900

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.