Tíminn - 28.11.1976, Blaðsíða 32

Tíminn - 28.11.1976, Blaðsíða 32
32 Sunnudagur 28. nóvember 1976 Anton Mohr: Árni og Berit Ævintýraför um Asíu 9. Þegar systkinin loks komust til Bagdad, sáu þau með eigin augum, hve allt var fátæklegt og niðurnitt. Var þetta hin fræga borg kalífanna? Svona leit hún þá út ævintýraborgin úr „Þúsund og einni nótt”. Var það hér, eða i hinni enn verr útlitandi Babý- lon skammt frá, sem Nebukadnesar byggði skrautgarða á súlum, — „hangandi skemmti- garða?” Þess sáust eng- in merki. Hér sáust að- eins óhrein, hrörleg hús, þröngar, rykugar götur og fátæklegar sölubúðir. Hér var ekkert að sjá, sem minnti á skraut og velsæld liðins tima. Það eina, sem ekki hafði breytzt, var hitinn. Hann varð alltaf meiri og meiri, eftir þvi sem sunnar dró. Hér sváfu menn uppi á húsaþökum á nóttunni, þvi að enginn þoldi við inni i húsunum fyrir hita. Og þetta var siðustu dagana i april. Hvernig ætli hitinn verði, þegar þau kæmu suður undir Persaflóa i mai? Berit þorði varla að hugsa til þess. Það, sem mesta at- hygli vakti i Bagdad, var umferðin á fljótinu. Þar var iðandi lif og fjör. Allstór gufuskip geta siglt upp eftir fljót- inu Tigris, alla leið til Bagdad. Þama var lika fjöldi seglskipa og niergð af smábátum (couffahs), gerðir úr sefjurtum og þéttir með stálbiki og tjöm. Segja má, að Bagdad sé eins konar „landshöfn”, ekki einun^is fyrir Meso- potamiu (írak), heldur einnig fyrir Persiu (Iran). Tveir þriðju hlutar .af inn- og útflutn- ingi Persiu fer um Bag- dad og þaðan með járn- brautum áleiðis út um landið. í borginni Bag- dad býr þvi margt af Persum. Berit sýndist þeir vera óvenjulega fallegir menn, — friðir og föngulegir. Um kvöldið, er þau systkinin sátu fyrir utan dyr gistihússins, og nutu nætursvalans, kom þar aðvifandistórbifreið. Út úr bifreiðinni steig ung og glæsileg kona og með henni herbergisþema og þjónn. 1 gestabókina skrifaði hún nafn sitt, frú Anna Curgon — gift Ralph Curgon, háttsett- um embættismanni i stjórn Indlands. Strax og ofurstinn sá þetta nafn, vissi hann hver maðurinn var. Seinna um kvöldið hittu þau frúna við kvöldmatinn. Þau settust öll við sama borð, kynntu sig og hófu samtal. Frúin sagði, að hún hefði verið stödd i Kon- stantinopel, er hún fékk simskeyti um það, að maður hennar hefði særzt i uppþoti i norð- vestur Indlandi. Eftir skeytinu að dæma var sárið ekki mjög hættu- legt, en þrátt fyrir það hefði hún afráðið að taka sér ferð á hendur til hans. Hún hafði valið þessa leið, af þvi að hún var stytzt. Nú sagðist hún vera farin að sjá eft- ir þvi, en of seint væri úr þessu að snúa við. Hún lýsti ánægju sinni yfir þvi, að hafa hitt hér ofurstann og frændsystkini hans, og sagðist vona, að hún fengi að slást i förina með þeim, svo langt sem þau ættu samleið. Á meðan frú Curgon lét dæluna ganga, sat Berit þögul og horfði á frúna. ,,En hvað hún er yndisleg”, hugsaði Berit með sjálfri sér, „en þó veit ég ekki, hvort hún fellur mér i geð. Ég verð að kynnast henni betur til að geta sagt um það. Fögur er hún, — það er alveg vist — bara að nef- ið væri ekki svona hátt og þunnt”. Hún var sannur Eng- lendingur, — há, grann- vaxin, vöðvaber. Hún gat áreiðanlega þolað allar þrautir ferðalags- ins. Hún var örugg i fasi barnatiminn og glæsileg. Röddin lág, þægileg og aðlaðandi. Næsta morgun lögðu þau öll af stað i bifreið frúarinnar. Hún var rúmgóð fyrir fjóra. Farangurinn, her- bergisþernan og þjónn- inn, komu á eftir i öðrum bil. Bifreiðarnar bar hratt yfir suðursléttuna, þótt þar væri enginn upphleyptur vegur. Að lokum komu þau til Babýlon. í fyrstu urðu systkinin fyrir ennþá meiri vonbrigðum, er þau litu á þessa forn- frægu borg. Þau höfðu búizt við að sjá þarna einhverjar minjar fornrar frægðar, en við augum blasti auðn og ógrónar rústir. Þessar rústir breyttust þó i aug- um þeirra, er þau höfðu gengið um stund um þessa fornfrægu borg, með þýzkan fomfræðing sem leiðsögumann. Þá var sem þessar ömur- legu rústir fengju lif og liti að nýju. Hann sýndi þeim tigulsteinahrúgur úr frægum byggingum með dýramyndum og letri. Þar sem Babels- tuminn hafði staðið, var geysileg grjótdyngja. Á einum stað sýndi hann þeim hallarrústir, sem verið var að grafa upp og hreinsa. Nokkuð af hallarveggjunum stóð enn. Þetta sagði hann, að væri rústir af hátiðarsal Nebúkadnes- ar og i þessum sal hefði hin bleika hönd ritað á vegginn spádómsorðin: „Mene tekel ufarsin”. Jú, vissulega voru þetta sögulegar minjar, en þó gat Berit aldrei orðið reglulega hrifin. Ef til vill var það hitanum að kenna, og ef til vill var hún ekki nógu fróð i þessum fornu fræðum, til þess að hafa fulla gleði af að skoða þessar ömurlegu rústir. Ferðafólkið tók sér gistingu i Babýlon. Þýzkir fornleifafræðing- ar voru hér margir við sögulegar rannsóknir og þeir höfðu gestaherbergi i húsum sinum, til að geta tekið á móti visindamönnum, sem heimsæktu þá. Þessi herbergi fékk ferðafólk- ið til umráða. Um sólarlagið dró ofurlitið úr mesta hitan- um., ,Ég fer út að fá mér friskt loft”, sagði Berit. Hún var um stund ein á gangi um borgarrústirn- ar, en þá kom ofurstinn til hennar. „Veiztu það, Berit”, sagði hann, „að nú ert þú stödd á þeim stað, sem aðeins er hægt að koma til i ævintýrum?” „Hvernig getur það verið?” spurði Berit. Henni fannst ekkert ævintýralegt innan um þessar grjóthrúgur. „Jú, littu i kringum þig”, svaraði ofurstinn. „Sólin er nú einmitt að siga i vesturátt, og þá ert þú austan sólar, en tunglið er að koma upp i austurátt og þá ert þú vestan mána, og jafn- framt ert þú bak við Babýlonsturna. Hafðir þú ekki tekið eftir þessu?” Nei, hún hafði ekki at- hugað þetta. Það varð hún að viðurkenna. II. Heitasti i staður jarðar- innar — Elphinestone Inlet I. Frá Babýlon var ferð- inni haldið áfram suður eftir Mesopotamiu,þar til fljótin Eufrat og Tigris runnu saman. Þar lá bátur sem beið þar eftir ofurstanum og með hon- um bar þau með miklum hraða niður fljótið út til hafsins.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.