Fréttablaðið - 19.01.2006, Síða 19
FIMMTUDAGUR 19. janúar 2006 19
efnahagslegra og félagslegra
markmiða ESB og sjálfstæði aðild-
arríkjanna gagnvart ESB þegar
kemur að félagslegum markmið-
um og skipulagi vinnumarkað-
arins. Jafnframt snýst málið um
það hvort fyrirtæki “sem eru
innblásin af láglaunasamkeppni
nýfrjálshyggjunnar og njóta mik-
ils frelsis um starfsemi sína á
Evrópska efnahagssvæðinu,“ eins
og verkalýðshreyfingin orðar það
í tilkynningu, geti beitt félagsleg-
um undirboðum á vinnumarkaði.
Íslenska verkalýðshreyfingin
hefur rekið þá stefnu að íslensk-
ir kjarasamningar gildi á Íslandi
og „við viljum ekki láta sniðganga
þá en Lettarnir telja að íslensku
og sænsku reglurnar brjóti gegn
reglum ESB,“ segir Skúli.
Frestur til 26. janúar
Atvinnuástand er bágborið í
Eystrasaltsríkjunum og atvinnu-
leysi er upp undir 40 prósent
þannig að launþegar þar hafa til-
hneigingu til að taka hvaða vinnu
sem er á hvaða kjörum sem er.
Aðeins lítill hluti launafólks er
í verkalýðsfélögum. Verkalýðs-
hreyfingin í Eystrasaltsríkjunum
hafði litla tiltrú almennings meðan
Sovétríkin voru við lýði og henni
hefur lítið vaxið ásmegin eftir að
ríkin urðu frjáls. Norræna verka-
lýðshreyfingin er þó að aðstoða
við uppbyggingu hennar.
Norræna sendinefndin hefur
óskað eftir því að íslensk stjórnvöld
sendi Evrópudómstólnum erindi
þar sem hefðum á íslenskum vinnu-
markaði er lýst. Sam Hägglund,
framkvæmdastjóri Norræna bygg-
ingamannasambandsins, sagði að
þeirri málaleitan hafi verið vel
tekið. Íslensk stjórnvöld hafa frest
til 26. janúar til að senda athuga-
semdir til Evrópudómstólsins.
Svíarnir reyna að afla stuðn-
ings sem flestra ríkja og þó að
íslensk stjórnvöld hafi ekki gefið
út afstöðu sína stefnir allt í að nor-
ræn samstaða náist í málinu. Þá
er talið að Frakkar og Þjóðverjar
muni styðja Svíana.
Traust og trú fyrir bí
Guðmundur Gunnarsson, formað-
ur Rafiðnaðarsambandsins, rifjar
upp orð Jacques Chirac Frakk-
landsforseta sem hefur sagt að
falli dómur ekki Svíunum í vil
muni evrópskur vinnumarkaður
taka hraðlest í átt til lægstu kjara
á ESB-svæðinu, samkeppnisstaða
myndi skekkjast og norræna vel-
ferðar- og vinnumarkaðsmódel-
ið væri í hættu. Hägglund telur
að þar með væri traust fyrir bí á
vinnumarkaðnum og menn missi
trú á Evrópusambandinu.
Norræna verkalýðshreyfingin
er bjartsýn á jákvæða niðurstöðu
fyrir Evrópudómstólnum en telur
þó ekkert víst í þessu efni og er
því að reyna að afla málflutningi
sínum fylgis.
Niðurstaða fæst ekki í málið
fyrr en eftir eitt til tvö ár. Nið-
urstaðan er talin hafa fordæm-
isgildi um alla Evrópu og skipta
höfuðmáli hvað varðar þróun
vinnumarkaðarins. Ef dómur
fellur lettneska fyrirtækinu í vil
þá geta fyrirtæki, bæði innlend
og erlend, flutt vinnuafl hingað
til lands á öðrum kjörum en hér
gilda. Leikreglum á vinnumarkaði
og í atvinnulífi væri þar með koll-
varpað. Annars heldur norræna
vinnumarkaðsmódelið eins og það
hefur verið.
FRÉTTASKÝRING
GUÐRÚN HELGA SIGURÐARD
ghs@frettabladid.is
Til stóð að Geimferðastofnun
Bandaríkjanna, NASA, myndi
skjóta mannlausa geimfarinu Nýr
sjóndeildarhringur á loft í gær, en
miklir vindar í Flórída seinkuðu
geimskotinu fram á þriðjudag.
Geimfarinu, sem er á stærð við
meðalpíanó, er ætlað að fljúga til
Plútó, síðustu plánetu sólkerfisins
sem enn hefur ekki verið rann-
sökuð. Jafnframt er því ætlað að
kanna svæðið í kringum frostköldu
plánetuna Kuiperbeltið, sem liggur
við útjaðar sólkerfisins, en í því eru
ókunnir frosnir hlutir á sveimi.
Vísindamenn NASA telja að það
taki geimfarið níu ár að komast til
Plútó. Ferðin er síðasti liðurinn í
fyrstu rannsókn NASA á sólkerf-
inu, en hún hófst á sjöunda áratugn-
um þegar mannlaus geimför voru
send til Mars, Merkúrus og Venus.
Plútó, sem er að finna í Kuiper-
beltinu svokallaða, var uppgötvuð
árið 1930. Vísindamenn deila um
hvort Plútó sé í raun og veru plá-
neta, því ísaður massi hennar er
svo ólíkur grjótinu sem finnst á
öðrum plánetum sólkerfisins.
Í Kuiperbeltinu er að finna fjöl-
marga hálfgerðar plánetur sem
virðast hafa hætt að þróast af
ókunnum ástæðum og vonast vís-
indamenn NASA til þess að frekari
upplýsingar um þær auki skilning
manna á tilurð plánetanna.
Geimfarinu var ætlað að ferð-
ast á nærri 58 þúsund km/klst
hraða frá jörðinni og ná tunglinu
á eingöngu níu tímum. Gert er ráð
fyrir að það nái Júpíter eftir 13
mánuði. - smk
Hraðskreiðasta geimfarinu skotið á loft til að rannsaka Plútó:
Mun ná síðustu plánetu sólkerfisins eftir níu ár
NORRÆN OG ÍSLENSK VERKALÝÐSFORYSTA Magnús Norðdahl, yfirlögfræðingur ASÍ, Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsam-
bandsins, Sam Hägglund, framkvæmdastjóri Norræna byggingamannasambandsins, Skúli Thoroddsen, framkvæmdastjóri Starfsgreina-
sambandsins, og Finnbjörn Hermannsson, formaður Samiðnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SAM HÄGGLUND
Sam Hägglund,
framkvæmdastjóri
Norræna bygginga-
mannasambands-
ins, telur að falli
dómur Lettunum
í vil missi menn
almennt trú á Evr-
ópusambandinu og
traust verði fyrir bí á
vinnumarkaði.
SKÚLI THOR-
ODDSEN Sænsk
sendinefnd er
komin hingað til
lands til að afla
stuðnings stjórn-
valda við mál fyrir
Evrópudómstóln-
um. Málið getur
haft fordæmisgildi
varðandi það hvort
kjarasamningar
gistilands eða
heimalands gilda á
vinnumarkaði.
Alla
r úlp
ur
-40%
Nú fer hver að verða síðastur til að gera góð kaup.
Risaútsölunni lýkur laugardaginn 21. janúar!
Opið fimmtudag 19. janúar kl. 8–18
– föstudag 20. janúar kl. 8–18
– laugardag 21. janúar kl. 10–16
Fjalla
reiðh
jól
Áður
16.9
00 k
r.
Nú 6.9
00kr.
Barn
abíls
æti
Áður
2.47
0 kr.
Nú 1.8
53kr.
Char
-Broi
l
CB 50
00
7.900
kr.
Húfu
r
199kr
. Skíð
ahan
skar
295kr
. V
aðstí
gvél
1.995
kr.G
öngu
skór
frá 3.3
18kr.
Dian
a Pa
ulo
Herr
a-, dö
mu-
og
barn
aflísp
eysu
r
-40%
Grandagarði 2, sími 580 8500
Útsöl lok25–80%
afslá
ttur