Fréttablaðið - 20.01.2006, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 20.01.2006, Blaðsíða 12
12 20. janúar 2006 FÖSTUDAGUR ÖRYGGISMÁL „Öryggismál eru í góðu lagi í Bláfjöllum,“ segir Grét- ar Þórisson, forstöðumaður skíða- svæðisins í Bláfjöllum, en í fyrra- kvöld urðu tvö slys þar með þeim afleiðingum að einn fótbrotnaði og tveir til viðbótar slösuðust lít- illega eftir að hafa lent í árekstri í brekkunni. Bæði slysin urðu eftir að myr- kva tók en fjöldi fólks var í brekk- unni þangað til skíðasvæðunum var lokað. Grétar segir slysum hafa fækkað mikið í Bláfjöllum á undanförnum árum en segir þó alltaf varasamt að skíða í myrkri. „Við höfum stórbætt lýsinguna í brekkunni á síðustu fjórum árum og hún er vel viðunandi núna. En okkur starfsmönnum hér á svæð- inu finnst svolítið hafa borið á því upp á síðkastið að skíðamenn séu orðnir einstaklega þreyttir þegar líða tekur að lokum. Þeir verða því að fara varlega í brekkunum, sérstaklega í myrkrinu.“ - mh Lýsing í skíðabrekkunum í Bláfjöllum hefur verið stórbætt á undanförnum árum: Skíðamenn slasast í myrkrinu SKÍÐAÐ Í MYRKRI Í BLÁ- FJÖLLUM Mikill fjöldi fólks hefur lagt leið sína í Bláfjöll síðustu misseri enda skíða- færi þar með eindæmum gott þessa dagana. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM MOSKVA, REUTERS Gríðarlegir kuldar herja nú á Rússland og er búist við því að frostið fari niður í 34 gráður í Moskvu í dag. Að minnsta kosti sjö manns urðu úti í gær og hlúð var að 25 öðrum á sjúkrahúsum, en alls hafa 116 manns látist úr kuldun- um síðan í október. Flestir eru þeir drykkjumenn sem sofna úti. Kuldakastið er hið mesta í 26 ár og liggur starfsemi í Moskvu niðri, skólar eru lokaðir og slökkt er á ljósaskiltum. Lögreglunni hefur verið skipað að reka útigöngufólk ekki úr neðanjarðarlestum og and- dyrum fyrr en kuldakastið er liðið hjá. Nokkrum Moskvubúum hefur tekist að þéna sér aukapening með því að leigja pirruðum ökumönn- um startkapla, en mörgum gengur illa að starta bílum sínum og spor- vagnar eru í lamasessi. Rússneskt dagblað sagði frá manni sem kól á fjórum fingrum því hann talaði of lengi í farsíma úti, og dýragarðs- starfsmaður gaf fíl fötu af vodka til að hlýja skepnunni, en drukkinn fíllinn rústaði í staðinn miðstöðv- arhitun garðsins. Veðrið hefur jafnframt hægt mjög á olíuframleiðslu landsins. Veðurfræðingar geta engu spáð um hversu lengi þetta ástand mun vara. - smk Kuldakast í Rússlandi og Moskvuborg í lamasessi: Rúmlega hundrað hafa dáið úr kulda FROSIN MOSKVUÁ Maður gengur framhjá litlum tjöldum fiskimanna á frosinni Moskvuá. Fjölmargir hafa látist úr kuldunum sem nú herja á Rússland þessa dagana. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VALHOPPAÐ Í MELBOURNE Menn í kengúrubúningum valhoppuðu í gær um svæðið þar sem opna ástralska meistara- mótið í tennis fer fram þessa dagana. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Mjótt á munum Könnun fyrir finnska dagblaðið Helsingin Sanomat sýnir að Tarja Halonen, forseti Finnlands, fengi 53 prósent atkvæða og Sauli Niinistö, fyrrverandi fjármálaráðherra, 47 prósent ef gengið yrði til kosninga nú. Kosið verður sunnudaginn 29. janúar. FINNLAND DÓMSMÁL Fyrirtækið Ingvar Helgason hf. var í gær sýknað af rúmlega fjögurra milljóna króna skaðabótakröfu vegna slyss sem starfsmaður fyrirtækisins varð fyrir við vinnu sína. Kona, sem starfaði við ræst- ingar hjá fyrirtækinu, var að bera rusl þegar hún rann í hálku fyrir utan hús fyrirtækisins og slasað- ist. Þetta gerðist í desember árið 2002. Konan meiddist á höfði og hlaut varanlega tíu prósent örorku vegna þessa. Dómurinn taldi ekki sannað að slysið hefði mátt rekja til óviðunandi eftirlits við fyrir- tækið, eins og konan vildi meina. - mh Rann í hálku og meiddist: Dómurinn hafnaði bótum PRESTAKÖLL Fimm umsækjendur sækja um embætti prests í hálfu starfi við Laugarnesprestakall en staðan var auglýst laus í síð- asta mánuði. Embættið er veitt frá 1. mars næstkomandi. Lögð er áhersla á að umsækjendur hafi reynslu til að sinna barna- og æskulýðs- starfi kirkjunnar auk hefðbund- inna prestsstarfa. - aöe Laugarnesprestakall: Fimm sækja um embætti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.