Fréttablaðið - 20.01.2006, Side 20
20. janúar 2006 FÖSTUDAGUR20
fréttir og fróðleikur
3 3
0
5
NFS Í BEINNI Á VISIR.IS
35.000 gestir vikulega
sem dvelja í u.þ.b. eina klst. hver.
Auglýsingasími
550 5000.
1. sæti Gunnar I. Birgisson, verkfræðingur og bæjarstjóri Kópavogs.
2. sæti Ármann Kr. Ólafsson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra og forseti
bæjarstjórnar.
Bragi Michaelsson, ráðgjafi og varabæjarfulltrúi.
Gunnsteinn Sigurðsson, skólastjóri og bæjarfulltrúi.
Jóhanna Thorsteinson, leikskólastjóri í Álfatúni.
3. sæti Gísli Rúnar Gíslason, lögfræðingur hjá Fiskistofu og formaður
Sjálfstæðisfélags Kópavogs
Margrét Björnsdóttir, varabæjarfulltrúi og formaður umhverfis-
ráðs.
Sigurrós Þorgrímsdóttir, alþingismaður og bæjarfulltrúi
4. sæti Ingimundur Kristinn Guðmundsson kerfisfræðingur.
4.-5. sæti Ásthildur Helgadóttir, verkfræðingur og knattspyrnumaður.
Ragnheiður Kr. Guðmundsdóttir, stjórnmálafræðingur og
markaðsstjóri hjá Stika ehf.
5. sæti Lovísa Ólafsdóttir, iðjuþjálfi hjá Liðsinni.
5.-6. sæti Gróa Ásgeirsdóttir, verkefnastjóri hjá Flugfélagi Íslands.
Hallgrímur Viðar Arnarson, sölumaður og múrari.
6. sæti Pétur Magnús Birgisson, tæknistjóri sundlauga Kópavogs.
FRAMBJÓÐENDUR Í PRÓFKJÖRI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Í KÓPAVOGI
> Úrslit sveitarstjórnarkosninga í Kópavogi 2002
Heimild: Hagstofa Íslands
Svona erum við
Gunnar I. Birgisson er núverandi bæjarstjóri í Kópavogi
og þingmaður Suðvesturkjördæmis. Hann tók við starfi
bæjarstjóra þann 1. júní í fyrra samkvæmt samkomulagi
Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks sem mynda núverandi
meirihluta í bæjarstjórn, en flokkarnir eru samtals með
átta bæjarfulltrúa af ellefu, sjálfstæðismenn með fimm
og framsóknarmenn með fjóra. Gunnar er einn í fram-
boði til efsta sætis á lista sjálfstæðismanna í prófkjörinu
á morgun og mun því leiða lista flokksins við sveitar-
stjórnarkosningarnar í vor.
Hann er bjartsýnn á gengi flokksins í kosningunum en
treystir sér ekki til að spá fyrir um hvaða málefni verði
mest í umræðunni. „Það eina sem ég get sagt er
að við sjálfstæðismenn munum halda áfram
á sömu braut og við höfum verið með upp-
byggingu bæjarfélagsins, fáum við stuðning
til þess. Við teljum okkur hafa unnið vel
fyrir Kópavog á þessu kjörtímabili og erum
því tiltölulega bjartsýnir,“ segir hann.
Gunnar stefnir ótrauður að því að sitja áfram sem bæjarstjóri að
kosningum loknum en segir ekki ljóst hvort hann muni segja af
sér þingmennsku fari svo, en sem stendur er hann í leyfi frá
þingstörfum. „Ég bíð með að ákveða það fram yfir kosning-
ar, en það er ljóst að ég verð ekki hvort tveggja þingmaður
og bæjarstjóri, það eru alveg hreinar línur,“ segir Gunnar.
Honum líður vel í bæjarstjórastarfinu að sögn og segir það
ekki ólíkt því að stýra stóru fyrirtæki en það gerði hann um
árabil. „Þetta er auðvitað stórt fyrirtæki, bæjarfélagið veltir
um það bil þrettán til fjórtán milljörðum króna á ári,“ segir
Gunnar.
Hann segist binda vonir við að konum
í prófkjörinu vegni vel því listi flokksins
verði að endurspegla samsetningu
samfélagsins. „Það eru auðvitað kjós-
endur sem ráða þessu þegar upp er
staðið en við sem byggjum þetta
samfélag erum helmingurinn karl-
ar og helmingurinn konur.“
FORINGINN: GUNNAR I. BIRGISSON
Verð ekki bæjarstjóri og þingmaður
Prófkjör sjálfstæðismanna í Kópavogi stendur frá kl. 9 til 18 á morgun í
félagsheimili flokksins í Kópavogi að Hlíðarsmára 19 og er opið öllum
flokksbundnum sjálfstæðismönnum í Kópavogi.
Samkvæmt reglum prófkjörsins skulu þátttakendur vera fullgildir félagar
í einhverju sjálfstæðisfélaga Kópavogs og búsettir í Kópavogi. Þátttaka er
öllum heimil sem náð hafa 16 ára aldri. Enn fremur er þátttaka í prófkjörinu
heimil þeim stuðningsmönnum Sjálfstæðisflokksins, sem eiga munu kosn-
ingarétt í kjördæminu við kosningarnar í maí og undirritað hafa inntöku-
beiðni í sjálfstæðisfélag í bænum fyrir lok kjörfundar.
Gert er ráð fyrir að fyrstu tölur í prófkjörinu verði birtar um það leyti sem
kjörfundi lýkur og síðan nýjar tölur á hálftíma fresti þar til úrslit liggja fyrir.
Samkvæmt prófkjörsreglum flokksins hlýtur sá maður efsta sæti í prófkjör-
inu sem flest atkvæði fær í það sæti. Annað sæti hlýtur sá sem ekki hefur
hlotið efsta sætið en hefur flest atkvæði þegar saman eru lögð atkvæði hans
í 1. og 2. sæti og síðan koll af kolli. Kosning telst bindandi í sæti hafi fram-
bjóðandi fengið meira en helming gildra atkvæða í prófkjörinu.
REGLUR PRÓFKJÖRSINS
Jóhanna Thorsteinson:
Vill frjálst val um grunnskóla
Jóhanna Thorsteinson leikskólastjóri
býður sig fram í annað sæti á lista
Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi en
hún var í tíunda sætinu í síðustu
kosningum. Hún leggur áherslu á
skóla- og leikskólamál og vill skapa
foreldrum og fjölskyldum raunhæfan
valkost þegar foreldraorlofi lýkur.
„Það er ekki til mannafli til að manna
stöður í leikskólanum, það eru ekki til leikskólapláss fyrir
öll börn og svo er erfitt að fá dagmæður í Kópavogi,“ segir
hún. Jóhanna vill að fjölskyldur hafi val um það í hvaða
grunnskóla börnin fara og bendir á að það sé ódýrara fyrir
Kópavogsbúa að senda börn í einkaskóla en hverfisskóla.
„Mér finnst afar mikilvægt að fólk hafi þennan valrétt og
velji það sem það telur barninu hollast. Sveitarfélagið á
ekkert að vera að skipta sér af því.“
Gunnsteinn Sigurðsson skólastjóri
skipaði þriðja sæti á lista Sjálfstæðis-
flokksins við síðustu kosningar og tók
sæti í bæjarstjórn að þeim loknum.
Hann sækist nú eftir öðru sæti listans
og leggur sérstaka áherslu á skipu-
lagsmál samhliða skóla- og leikskóla-
málum. „Ég legg áherslu á að komið
verði upp flýtileiðum til að greiða
fyrir umferð á höfuðborgarsvæðinu með því að koma á
samvinnu milli sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Ég
vil að ríkið komi að því máli með sveitarfélögunum,“ segir
Gunnsteinn. Hann vill gera átak í leikskólamálum og tryggja
rekstrargrundvöll leikskólanna með það að markmiði að
tryggja starfsmannamál. „Ég vil efla sjálfstæði leikskólanna,
gefa þeim aukið svigrúm og meira frelsi til að stýra fjármun-
um,“ segir hann.
Gunnsteinn Sigurðsson:
Vill efla sjálfstæði leikskóla
Engin átök verða um efsta sætið
í prófkjörinu því það er sjálfskip-
að oddvita flokksins og bæjar-
stjóranum Gunnari I. Birgissyni.
Meginátökin verða því um annað
og þriðja sætið en fjórir sækjast
eftir öðru sætinu og þrír eftir
þriðja sætinu. Um annað sætið
keppa þau Ármann Kr. Ólafs-
son forseti bæjarstjórnar, Bragi
Michaelsson varabæjarfulltrúi,
Gunnsteinn Sigurðsson bæjar-
fulltrúi og Jóhanna Thorsteinson
varabæjarfulltrúi. Sem sagt ein
kona og þrír karlar þannig að lík-
urnar á að sjálfstæðismenn tefli
fram konu í öðru sætinu eru óneit-
anlega minni en meiri.
Þó svo að aðalþunginn verði
greinilega í baráttunni um annað
sætið beinist athygli manna líka
að fjórða sætinu en meðal þeirra
sem sækjast eftir því er Ásthild-
ur Helgadóttir, fyrirliði íslenska
kvennalandsliðsins í knattspyrnu,
og verður fróðlegt að sjá hvern-
ig henni tekst að sækja fram á
hinum pólitíska leikvelli.
ssal@frettabladid.is
Spenna um annað sætið
KÓPAVOGUR Hart verður tekist á í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi á morgun.
Ármann Kr. Ólafsson, aðstoðarmaður
fjármálaráðherra, er núverandi forseti
bæjarstjórnar í Kópavogi og sækist
eftir öðru sæti á lista sjálfstæðis-
manna. Hann skipaði það sæti við
síðustu kosningar. „Þegar ég byrjaði
í bæjarmálunum fyrir átta árum var
það uppbyggingin í bænum sem
hreif mig og ég hef mikinn áhuga
á skipulags- og byggingamálum. Hins vegar hef ég lagt
áherslu á að víkka sjóndeildarhringinn með árunum og á
þessu kjörtímabili hef ég horft mikið á skólamálin. Jafnframt
hef ég lagt mig fram um að kynna mér málefni eldri borgara
sérstaklega,“ segir Ármann. Og hann er bjartsýnn á góðan
árangur í prófkjörinu. „Ég get ekki sagt annað en að ég finn
mjög góðan hljómgrunn fyrir framboði mínu og það er
mjög góður andi í mínum herbúðum,“ segir hann.
Ármann Kr. Ólafsson:
Er bjartsýnn á góðan árangur
Bragi Michaelsson:
Óhræddur við að taka slaginn
Bragi Michaelsson ráðgjafi hefur
verið varabæjarfulltrúi í Kópavogi
þetta kjörtímabil en var áður bæjar-
fulltrúi mörg kjörtímabil þar á undan.
„Ég hef alltaf verið óhræddur við að
taka slaginn,“ segir Bragi og segist
finna fyrir miklum stuðningi við fram-
boð sitt að þessu sinni. „Ég hef alltaf
kynnt mig sem mann sem ber hag
þeirra fyrir brjósti sem þurfa á þjónustu bæjarins að halda
hvort sem það er í leikskólum, grunnskólum eða í félags-
legri þjónustu.“ Hann segist líka hafa áhuga á umhverfis- og
skipulagsmálum og bendir á hættur sem hann telur því
samfara að þrengja um of að golfvellinum og reiðleiðum
hestamanna. „Þetta finnst mér ekki trúverðug stefna,“ segir
Bragi og kveðst áður hafa verið andsnúinn félögum sínum í
meirihluta bæjarstjórnar í einstökum málum.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi fer fram á
morgun og takast þar á fimmtán manns um sex sæti. Átta
karlar bjóða sig fram og sjö konur. Búist er við spennandi
kosningu og ljóst er að eftir hrakfarir kvenna í prófkjöri
flokksins í Garðabæ um síðustu helgi, munu augu manna
beinast sérstaklega að útkomu kvennanna í Kópavogi.
37
,7
%
28
,3
%
H
lu
tf
al
l g
ild
ra
a
tk
væ
ða
27
,9
%
B S VD
6,
1%