Fréttablaðið - 20.01.2006, Síða 25
Við breytum !
Vegna breytinga er verslun Útilífs Kringlunni lokuð fram í mars.
Brettahornið flyst í Útilíf Smáralind og við minnum á glæsilega skíðadeild
í Glæsibæ.
P.S. nægur snjór í fjöllunum
Kauphöllin í Tókýó lokaði 20 mín-
útum of snemma í fyrradag vegna
álags á tölvukerfi. Gefin var út til-
kynning um að næðu færslur fjór-
um milljónum yrði að loka til að
koma í veg fyrir hrun kerfisins.
Nðursveiflan og lokunin í Japan
höfðu þegar áhrif til lækkunar
á mörkuðum í Evrópu. Hér varð
rúmlega tveggja prósenta lækkun
á markaði í gær, en sérfræðing-
ar töldu þó hæpið að hægt væri
að rekja hana til atburða í Japan.
Frekar var talið að hér hefði verið
að eiga sér stað ákveðin leiðrétting
á verði hlutabréfa eftir uppgang.
Gunnar Halldórsson, sem er yfir
tæknimálum Kauphallar Íslands,
telur fráleitt að hér geti komið upp
svipuð staða og í Japan þar sem
tölvukerfi kauphallarinnar var að
hruni komið. „Kerfið er hannað
til að anna tvö þúsund viðskiptum
á sekúndu og tölvurnar sem við
keyrum á miða við að við getum
annað 700 færslum á sekúndu. Það
gerir um 2,5 milljónir færslna á
klukkutíma, eða um 20 milljónir á
dag. Miðað við tölurnar frá Japan
ætti það að þýða að við séum með
um fimmfalt öflugra kerfi en notað
er í Tókýó,“ segir Gunnar.
Japanski markaðurinn róaðist í
gær og fjárfestar tóku gleði sína á
ný þegar Nikkei vísitalan hækkaði
um 2,13 prósent. - óká
Kauphöllinni í Tókýó var lokað snemma vegna mikils álags:
Fimmfalt öflugra kerfi í
Kauphöll Íslands
ÍSLANDSBANKI Sérfræðingar Íslandsbanka
munu sjá áskrifendum fréttamiðlunar-
innar IntraFish fyrir fréttum af markaði
og greiningu. IntraFish er fréttaþjónusta í
sjávarútvegi.
Íslandsbanki hefur samið við
norsku fréttamiðlunina Intra-
Fish Media. IntraFish sérhæfir
sig í fréttum tengdum sjávarút-
vegi hvaðanæva að úr heiminum.
Samkvæmt samningnum munu
sérfræðingar Íslandsbanka sjá
áskrifendum IntraFish fyrir frétt-
um af markaði og greiningu.
„Við höfum einbeitt okkur að
sjávarútvegi og sérfræðingar
okkar hafa gefið út efni sem hefur
nýst sjávarútvegsfyrirtækjum
víðs vegar að. Við teljum okkur
hafa náð samkomulagi við þann
besta á sviði frétta af sjávarútvegi
og erum hæstánægð,“ sagði Magn-
ús Bjarnason, framkvæmdastjóri
Íslandsbanka í Ameríku og Asíu.
- jsk
Semur við
fréttamiðlun
HUGSA BARA UM EIGIN HAG Stjórnendur
norskra fyrirtækja eru sakaðir um að hugsa
fremur um eigin hagsmuni en hag hluthafa
og samfélagsins.
Stjórnendur Norska ríkislífeyr-
issjóðsins kvarta yfir siðferðis-
bresti í norsku viðskiptalífi. „Á
undanförnum árum höfum við séð
dæmi um að lítið hafi verið gert til
að verja réttindi og fjárhagslega
hagsmuni almennra hluthafa,“
segir Norski seðlabankinn, sem
stýrir sjóðnum, í bréfi til fjár-
málaráðuneytisins. „Þetta bendir
klárlega til þess að stjórnendur
fyrirtækja hafi skammtímahags-
muni að leiðarljósi þegar þeir taka
sínar ákvarðanir. Annað einkenni
er skortur á grundvallarsiðferði.“
Einnig segir í bréfinu að lög
og reglur hafi verið brotnar og
einstaklingum veitt tækifæri að
hugsa aðeins um eigin hagsmuni en
ekki hag hluthafa og almennings.
Sjóðurinn, sem var fram til
síðustu áramóta kallaður olíusjóð-
urinn, er einn stærsti lífeyrissjóð-
ur heims með heildareignir upp
á tæpa þrettán þúsund milljarða
króna. - eþa
Hugsa bara
um sig
MIÐLARAR Í KAUPHÖLLINNI Í TÓKÝÓ
RÆÐAST VIÐ Næststærsti markaður heims,
Kauphöllin í Tókýó, þurfti að loka snemma
í gær vegna álags á tölvukerfi. Mikil lækkun
hefur átt sér stað á markaðnum og allir
vildu selja í einu.
FÖSTUDAGUR 20. janúar 2006 25