Fréttablaðið - 20.01.2006, Page 28

Fréttablaðið - 20.01.2006, Page 28
[ ] Súkkulaðið sem fæst í safnbúð Þjóðminjasafnsins er í nýjum þjóðlegum búningi. „Við erum með klassískt Nóa Sír- íus rjómasúkkulaði, sem hefur verið pakkað inn í okkar eigin umbúðir,“ segir Unnur Valdís Kristjánsdóttir, verslunarstjóri safnbúðar Þjóðminjasafnsins. Til eru fimm tegundir af umbúðum utan um súkkulaðið, og eru margar þeirra afar skemmti- legar. Til dæmis sést í álpappír- inn, og myndirnar á umbúðunum eru gamlar og skemmtilegar. Auk þess eru seldir taupokar með fallegum gömlum áþrykktum myndum, og í þeim er Nóa Síríus Bismark brjóstsykur. Sælgætið í þessum umbúðum er eingöngu selt í verslun Þjóðminja- safnsins og kostar súkkulaðið 490 krónur stykkið og brjóstsyk- urspokarnir 990 krónur. „Þetta er okkar leið til að búa til skemmtilega minjagripi, og við setjum þjóðlegan fróðleik með,“ segir Unnur Valdís. Myndirnar eru allar úr ljós- myndasafni safnsins, nema á einu súkkulaðinu er áþrykkt gamalt málverk af biskupshjónum. „Upp- lýsingarnar um myndirnar er svo að finna á umbúðunum sjálfum,“ segir Unnur Valdís. Á þorranum er mest borðað af hrútspungum og sultum en feit- ur matur svo sem bringukollur og lundabaggar er frekar á undanhaldi. „Vinsældir þorramats fara ekki dvínandi heldur eru frekar að aukast,“ segir Sólmundur Odds- son, innkaupastjóri Kaupáss. Í dag hófst þorramánuður og þessi sér-íslenski matur kominn í flestar búðir. ,,Súrmatur var geymsluað- ferð hér áður fyrr, menn geymdu mat við þessar ákveðnu aðstæður. Nú er maturinn orðinn að sölu- vöru sem hentar á þessu tímabili, þorranum, sem nær alveg fram í góuna.“ Verkunaraðferðir segir Sól- mundur að mestu leyti svipaðar og áður. ,,Fyrir utan að tíminn sem maturinn liggur í súr er mun styttri en var. Í dag snýst þetta ekki um geymslu á mat heldur að gera hann passlega súran til að neyta hans á þessum rúmu fjóru vikum.“ Viss þróun hefur orðið á þor- ramatnum. ,,Neyslan er að færast meira yfir í hrútspungana og nýjar og súrar sviða- og svínasultur. Minna er hins vegar selt af bringu- kollum og lundaböggum.“ Fyrir þá sem lítið vita um mat forfeðra okkar eru bringukollur bein og brjóskhluti framarlega á lambaframparti en lundabaggar aftur á móti uppvafin slög. Þessi matur er frekar feitur og segir Sól- mundur að dregið hafi úr vinsæld- um hans. Í dæmigerðum þorrabakka er sambland af ýmsum mat. ,,Þar er tekið það vinsælasta, pungarnir og sulturnar. Síðan eru náttúr- lega hliðarvörur sem fylgja með svo sem rófustappa, harðfiskur, kartöflumús og salöt.“ Slátur er eitt af því sem enn er mikið borðað af, jafnt á þorranum sem aðra daga. Sömu sögu er ekki að segja af súru slátri. ,,Súr blóð- mör og lifrarpilsa eru frekar á undanhaldi þó að það sé samt alltaf sígilt.“ Verkun á matnum sem nú fer í maga sannra Íslendinga hefur tekið um fjóra mánuði. ,,Súrsun og niðursuða og slíkt er ferli sem hefst í september,“ segir Sólmund- ur um íslenska matinn okkar sem aðallega er borðaður á næstu fjór- um vikum. ,,Síðan fara menn yfir í annað þegar fer að vora,“ segir Sólmundur að lokum. mariathora@frettabladid.is Kaffihús: Laugavegi 24 Smáralind Verslanir: Kringlunni Smáralind Laugavegi 27 Suðurveri Kenya kaffi er næstum allt ræktað í 1500 - 2100 m hæð. Kaffiiðnaðurinn í Kenya er tekinn mjög alvarlega og bannað er með lögum að eyðileggja kaffitré. Ein allra besta kaffitegundin í Kenya er AA Extra Fancy. Það hefur einstaklega gott jafnvægi, mjög góða fyllingu og er sérlega ilmríkt og líflegt með hreint víntónað ávaxtabragð og súkku- laðkryddað eftirbragð. Njótið vel ! Kenya AA Extra Fancy Kaffi mánaðarins Janúar - 2006 Nú á 10% kynningarafslætti í verslunum Te og kaffi. ������������ ����������������� ����� ����������������������� ������� � ������������������������������ ������� � ����������� �� ��������� ������������������������������ Jói Fel F A B R IK A N Vínþrúgur mánaðarins 20% afsláttur Skeifunni 11d 108 Reykjavík Sími 533 1020 Reykjavíkurvegi 64 220 Hafnarfirði Sími 533 3070 www.aman.is Þorramaturinn er kominn í verslanir. Nú er um að gera að vera þjóðlegur og fá sér magál, lundabagga og hrútspunga. Faxe býður upp á tvo bjóra sem virka vel með þorramatnum. Annars vegar Faxe 10% sem hefur komið mörgum á óvart fyrir það hversu óvenju mildur hann er miðað við styrkleika. Engu að síður má finna að hér er á ferðinni kraftakarl sem kallar ekki allt ömmu sína og þaðan af síður þorramatinn. Má segja að hér sé á ferðinni bjór sem er allt í senn, bjór og snafs í einum teig. Hinn bjórinn er Faxe Festbock 7,7%. Dökkur lager en bragðmikill og fer því vel með sterkum og lyktandi mat, bjór sem deyr ekki í munni þrátt fyrir þann feita mat sem þorrafæðið er. Faxe Festbock á að drekka við kjallarakulda, rétt ofan við frostmark til að ná fram bestu bragðeinkennum þessa mikla mjaðar. Verð í Vínbúðum í 50 cl dósum: Faxe 10% 399 kr. og Faxe Fest- bock 299 kr. FAXE: Tveir kraftakarlar á Þorra Hvalkjöt. FRÉTTABLAÐIÐ / GVA Þorramatur aldrei vinsælli Sviðakjammar og hangikjöt. FRÉTTABLAÐIÐ / GVA Sólmundur Oddsson segir feitan þorramat vera á undanhaldi. FRÉTTABLAÐIÐ / VILHELM Súkkulaði í þjóðlegum búningi frá Þjóð- minjasafninu. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Þjóðlegt nammi í Þjóðminjasafni Brjóstsykurinn frá Nóa Síríus er seldur í fallegum taupokum í safnbúð Þjóðminja- safnsins. FRÉTTABLAÐIÐ/AÐSEND MYND

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.