Fréttablaðið - 20.01.2006, Side 33
FÖSTUDAGUR 20. janúar 2006
Til að njóta góðra vína er
nauðsynlegt að þekkja eilítið
eðli þeirra. Endingartími vína
er misjafn eftir gerð þeirra og
eftir að flaskan er opnuð eru
vínunnendur oft komnir í kapp
við tímann.
Almennt er betra að geyma opnar
flöskur í KÆLI, en flest SÉRRÍ og
tunnuþroskuð PORTVÍN þurfa ekki á
kælingu að halda.
SÉRRÍ geymist mjög vel eftir að
flaskan hefur verið opnuð og geym-
ist jafnvel árum saman í opinni
flösku. Undantekning frá þessu er
FINO SÉRRÍ sem á að drekka ferskt
og innan fárra daga.
PORTVÍN geymast misjafnlega lengi.
TUNNUÞROSKUÐ, tawny, geta stað-
ið lengi í opnum flöskum. RAUÐ
PORTVÍN og ÁRGANGSPORTVÍN eru
látin þroskast í flöskunum í súr-
efnissnauðu umhverfi, ólíkt tawny
vínunum, og er því upp á sitt besta
eftir að flaskan er opnuð og vínið
fær að anda. RAUÐU PORTVÍNIN
smakkast oft vel dögum og jafnvel
vikum eftir að þau eru opnuð vegna
hversu harðgerð þau eru.
RJÓMALÍKJÖRAR súrna og kekkjast
séu þeir látnir geymast lengi. Mælt
er með að þeir séu drukknir innan
þriggja mánaða frá því að flaskan er
opnuð og ekki geymd á heitum stað.
FREYÐIVÍNIÐ lútir sömu reglum og
flest annað léttvín. Ekki er mælt
með því að geyma slík vín í opnum
flöskum. Vínin geta oxast aðeins og
misst ferskleika sinn. Freyðivínin
þola hins vegar geymslu í opnum
flöskum betur vegna mikils sýru-
innihalds og sætleika sem hjálpar
vínunum að haldast fersk og lifandi,
jafnvel í nokkra daga.
Á VEF ÁTVR má finna merkingar
sem eru vísbendingar um GEYMSLU-
ÞOLSTÍMA LÉTTVÍNA.
Vínin eru merkt með X, Y eða Z og
vísar það til geymsluþolstíma vín-
anna. Lista yfir öll vín og merk-
ingar þeirra má nálgast í verslun-
um ÁTVR.
X Vín sem er TILBÚIÐ TIL NEYSLU
og þarf ekki geymslu. Oft óhætt að
geyma í eitt til þrjú ár.
Y Vín sem ÞOLIR VEL GEYMSLU í að
minnsta kosti þrjú ár og oft miklu
lengur.
Z Vín sem á eftir að BATNA VIÐ
GEYMSLU, oft tannískt eða sýru-
ríkt. Þolir að minnsta kosti fimm
ár eða lengur.
Hvernig geyma á
opnar vínflöskur
Ýmsar reglur gilda um geymslu á áfengi.