Fréttablaðið - 20.01.2006, Blaðsíða 39
Á hverju kvöldi sjáum við á sjón-
varpsskjám okkar myndir af átök-
um í Írak, fjöldamorðum í Súdan,
sprengjutilræðum hér og þar og
blóðsúthellingum á stöðum sem
við kunnum varla að nefna. „Heim-
ur versnandi fer“ er viðkvæði
margra þegar þeir lesa blóði drifn-
ar erlendu fréttasíðurnar í blöð-
unum. En hvað segja staðreyndir
málsins, fer heimur versnandi?
Reyndar ekki! Þær sýna allt
aðra niðurstöðu, nefnilega að
heimur batnandi fer. Í ítarlegri
rannsókn sem birt var seint á
síðasta ári, „Human Security
Report 2005,“ kemur fram að
árið 2004 voru skráð átök 40%
færri en í byrjun tíunda áratug-
arins. Aðskilnaðarsinnar áttu í
vopnuðum átökum á 25 stöðum
og er það lægsta tala slíkra átaka
frá árinu 1976. Samkvæmt sömu
skýrslu fækkaði fjöldamorðum
um 80% frá því í byrjun níunda
áratugarins. Að sama skapi fjölg-
ar þeim deilum sem leystar hafa
verið við samningaborðið í stað
vígvallarins.
Rekja mátti tvo þriðju hluta
stríða frá sjötta áratugnum til
þess níunda til loka nýlendustefn-
unnar sem nú hefur liðið undir
lok og lok kalda stríðsins þýða að
Bandaríkjamenn og Sovétmenn
beita ekki lengur stríðandi fylk-
ingum gegn hvorum öðrum auk
þess sem fjöldi herskárra einræð-
isstjórna féllu þegar þær misstu
kaldastríðsstuðninginn.
Gareth Evans, forseti Inter-
national Crisis Group og fyrrver-
andi utanríkisráðherra Ástralíu,
segir bestu skýringuna þó vera
aðra í grein sem hann skrifaði í
Los Angeles Times ekki alls fyrir
löngu: mikil aukning alþjóðlegr-
ar viðleitni til að hindra, stýra og
leysa ágreining. Evans orðar það
svo að bestu fréttirnar séu þær
sem komist ekki í kvöldfréttirnar,
sögur um hunda sem ekki gelta.
Eða hvenær má sjá fyrirsögnina:
„Stríð braust ekki út,“ á síðum
dagblaðanna?
Evans telur að alþjóðasamfé-
lagið hafi lært af óförunum í Bosn-
íu, Rúanda og Sómalíu í byrjun
tíunda áratugarins. Tölur styðja
þennan rökstuðning. Frá 1990 til
2002 fjölgaði diplómatískum inn-
gripum Sameinuðu þjóðanna, sem
ætlað var að kæfa stríð í fæðingu,
sexfalt, samkvæmt Human Secu-
rity Report. Og frá 1998 til 2004
tvöfaldaðist fjöldi friðargæslu-
verkefna Sameinuðu þjóðanna. Þá
hafa staðbundin samtök í Evrópu,
Ameríku og Afríku átt sinn þátt
í að hindra að staðbundin átök
breiðist út.
Grettistaki þarf að lyfta á stöð-
um eins og Írak, Súdan og Kongó
en miklu meiru hefur verið áorkað
en virðist við fyrstu sýn og millj-
ónir manna lifa við meira öryggi
en fyrir áratug síðan.
Höfundur er upplýsingafulltrúi
hjá Sameinuðu þjóðunum.
Heimur versnandi fer? Annað segja staðreyndir
UMRÆÐAN
HEIMSÁSTAND
ÁRNI SNÆVARR
Samkvæmt sömu skýrslu fækk-
aði fjöldamorðum um 80% frá
því í byrjun níunda áratugar-
ins. Að sama skapi fjölgar
þeim deilum sem leystar hafa
verið við samningaborðið í
stað vígvallarins.
FÖSTUDAGUR 20. janúar 2006 27
SENDIÐ OKKUR LÍNU
Við hvetjum lesendur til að senda okk-
ur línu og leggja orð í belg um málefni
líðandi stundar. Greinar og bréf skulu
vera stutt og gagnorð. Eingöngu er
tekið á móti efni sem sent er frá Skoð-
anasíðunni á visir.is. Þar eru nánari
leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður hvort
efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í
báðum miðlunum að hluta eða í heild.
Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til
að stytta efni.
VIÐ VITUM
ÝMISLEGT UM TENNUR
eftir 60 ára reynslu
Þér er boðið í ókeypis tannskoðun á opnu húsi tannlæknadeildar Háskóla Íslands
Deildin fagnar 60 ára afmæli laugardaginn 21. janúar
Sérfræðingar á öllum sviðum tannlækninga veita góða ráð
Hollar veitingar á boðstólum
Kynning á tannheilsuvörum
Skoðunarferð um húsnæði deildarinnar
Gestir spreyta sig á að bora í plasttennur
Kynning á rannsóknum og kennslu
Tanntækninemar leiðbeina um tannhirðu og hollar matarvenjur
Nemendur Tannsmíðaskóla Íslands sýna vinnu sína
Opið hús í Læknagarði við
Hringbraut kl. 13 – 15
Allir velkomnir!
60 fyrstu gestirnir eiga kost
á ókeypis tannskoðunNFS ER Á VISIR.IS
Bein útsending á VefTV og
upptökur þegar þér hentar