Fréttablaðið - 20.01.2006, Síða 46

Fréttablaðið - 20.01.2006, Síða 46
 20. janúar 2006 FÖSTUDAGUR34 menning@frettabladid.is ! Á morgun verður greint frá niðurstöðum árlegrar ljóða- samkeppni á vegum lista- og menningarráðs Kópavogs. Verðlaunaafhendingin fer fram í Salnum í Kópavogi og eru allir velkomnir á athöfn- ina. Á dagskrá er ljóðalestur og tónlistarflutningur, og formaður dómnefndar gerir síðan grein fyrir niðurstöðum nefndarinnar. Dagskránni lýkur með veitingum í boði lista- og menningarráðs Kópavogs í forrými Salarins. Árið 2005 var það ljóðskáldið Linda Vilhjálms- dóttir sem hreppti hnossið og hlaut þá bæði 1. og 2. verðlaun. Í nóvember síðastliðnum var auglýst eftir ljóðum í ljóðasamkeppnina „Ljóðstafur Jóns úr Vör“ og er það í fimmta sinn sem lista- og menningarráð Kópavogs stendur fyrir slíkri sam- keppni, en hugmyndin er komin frá félögum úr Ritlist- arhópi Kópavogs. Þátttak- endum er gert að skila inn verkum sínum undir dul- nefni og fær sigurvegarinn vegleg peningaverðlaun og verðlaunagripinn Ljóðstaf Jóns úr Vör áletraðan með nafni sínu til varðveislu í eitt ár. Alls bárust nú rúm- lega þrjú hundruð ljóð í keppnina frá skáldum af öllu landinu. Í dómnefnd eiga sitja Hjörtur Pálsson ljóðskáld og þýðandi, Soffía Auður Birgisdóttir bókmennta- fræðingur, og Sigurjón B. Sigurðsson (Sjón) rithöf- undur, sem jafnframt er formaður nefndarinnar. Sjón afhendir Ljóðstafinn Kl. 20.00 Einstakt tækifæri gefst til þess að heyra fjórhentan píanóleik í Salnum í kvöld. Tveir meistarar hljómborðs- ins, Bretarnir Allan Schiller og John Humphreys, leika verk eftir Vín- artónskáldin Mozart og Schubert. Þessa sömu efnisskrá leika þeir Schiller og Humphreys í hinum virta konsertsal Wigmore Hall í London þann 27. janúar, á fæðingardegi Mozarts. Málþing um meistarann verður haldið á morgun á Kjarvalsstöðum. Í ljósi málaferla sem nú eru í gangi um hver á Kjarval er mjög áhugavert að skoða hvaða sess þessi frægasti myndlistarmað- ur þjóðarinnar hefur í íslensku menningarlífi. Nú á laugardag stendur Listasafn Reykjavíkur fyrir málþingi um Kjarval sem ætti að veita greinargóða og skemmtilega innsýn í bæði lista- manninn og ímynd hans – og gildi hans fyrir íslendinga. Frummælendur eru þau Kristín Guðnadóttir listfræð- ingur, Eiríkur Þorláksson list- fræðingur, Einar Garibaldi Eiríksson, myndlistarmaður og prófessor við Listaháskóla Íslands, og Jón Karl Helgason bókmenntafræðingur. Veiga- mikil sýning á verkum Kjarvals stendur nú yfir á Kjarvalsstöð- um og einnig hefur verið gefin út stórkostleg bók um listamann- inn sem tilnefnd er til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. „Við viljum halda listamann- inum lifandi meðal þjóðarinnar. Kjarvalsstaðir eru auðvitað reistir utan um Kjarval honum til heiðurs og það er vert að vekja upp spurningar um stofnunina og tengsl hennar við listamanninn,“ segir Ólöf Kristín Sigurðardóttir stjórnandi málþingsins. „Málþingið verður tvískipt og fjallar fyrri hlutinn um listræn- an feril Kjarvals og áhrif hans á samtíma sinn. Þá opnar Kristín Guðnadóttir málþingið með erindi sem fjallar um listamanninn handan goðsagnarinnar. Kristín hefur unnið ítarlegar rannsókn- ir á ferli Kjarvals og er ásamt Eiríki Þorlákssyni sýningarstjóri sýningarinnar sem nú stendur á Kjarvalsstöðum. Þau eru einnig á meðal höfunda nýútkominnar bókar um Kjarval.“ Á síðari hluta málþingsins verður sjónum beint að áhrifum Kjarvals í nútímanum og þeirri ímynd sem sköpuð hefur verið um listamanninn og minningu hans. „Erindi Jóns Karls Helgason- ar ber yfirskriftina Maður með hatt,“ segir Ólöf, „og fjallar hann um listamanninn og þá táknmynd sem hann er í samtímanum. Hann veltir því til dæmis fyrir sér af hverju mynd af Kjarval er utan á tímaritinu Frjálsri Versl- un.“ Myndlistarmennirnir Einar Garibaldi og Erling Klingenberg hafa í verkum sínum báðir sótt í list Kjarvals og þá umgjörð sem sagan hefur búið honum. „Einar Garibaldi heldur erindi þar sem hann veltir því fyrir sér hvort fólk sé hætt að sjá list Kjarvals fyrir manninum.“ Málþingið er opið öllum á meðan húsrúm leyf- ir og stendur yfir frá klukkan 11- 14. annabjornsson@frettabladid.is JÓHANNES SVEINSSON KJARVAL Áhrif Kjarvals í nútímanum verða meðal annars til umræðu. Líf og list Kjarvals KRISTÍN GUÐNADÓTTIR, ÓLÖF KRISTÍN SIGURÐARDÓTTIR, EIRÍKUR ÞORLÁKSSON, EINAR GARIBALDI OG JÓN KARL HELGASON Þau ætla að fjalla um Jóhannes Kjarval frá ýmsum hliðum á málþinginu á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar (www.cia.is) opnar í dag nýtt og endurbætt veftímarit á ensku um íslenska myndlist. Markmið Kynningarmiðstöðv- arinnar og tímaritsins, sem hlot- ið hefur nafnið LIST - Icelandic Art News, er að „styðja við útrás íslenskra listamanna og miðla fréttum til þess sívaxandi hóps um allan heim sem fylgist af áhuga með menningarlífinu hér uppi á Íslandi,“ eins og segir í til- kynningu. Jón Proppé ritstýrir tímaritinu ásamt Dr. Christian Schoen, for- stöðumanni Kynningarmiðstöðv- arinnar. Ritið er að finna á www. artnews.is. JÓN PROPPÉ Ritstjóri veftímaritsins. Nýtt veftímarit á ensku Sýnt á NASA við Austurvöll Fimmtudagur 26 . janúar - Laus sæti Föstudagur 27 . janúar - Laus sæti Laugardagur 28 . janúar - Laus sæti Fimmtudagur 2 . febrúar - Laus sæti Föstudagur 3 . febrúar - Laus sæti Laugardagur 4 . febrúar - Laus sæti Fimmtudagur 9 . febrúar - Laus sæti Húsið opnar kl. 20:00 - Sýningar hefjast kl. 20:30 Miðasala í verslunum Skífunnar, www.midi.is og í síma: 575 1550 Blásaraoktettinn Hnúkaþeyr held- ur á sunnudaginn tónleika í Dóm- kirkjunni í Reykjavík undir yfir- skriftinni „Ísland - Austurríki“. Þar verður leikin tónlist eftir íslensku austurríkismennina Pál Pampichler Pálsson, Herbert Hriberschek Ágústsson og Íslandsvininn Werner Schulze. Einnig verður leikin tónlist eftir austurríska tónskáldið Johann Nepomuk Hummel, sem fæddur var í Bratislava þar sem í dag er Slóvak- ía, og svo tónlist eftir Ludvig van Beethoven og Malcolm Arnold. Hnúkaþey skipa þau Peter Tompkins og Eydís Franzdóttir á óbó, Ármann Helgason og Rúnar Óskarsson á klarinett, Emil Frið- finnsson og Anna Sigurbjörnsdóttir á horn, Darri Mikaelsson og Kristín Mjöll Jakobsdóttir á fagott. Á þess- um tónleikunum leikur með þeim Eiríkur Örn Pálsson á trompet. „Við byrjuðum árið 2003, höfum áður haldið tónleika í Dómkirkjunni og spilað víða um land,“ segir Krist- ín Mjöll, annar fagottleikaranna. „Það er ekki auðvelt að finna góðan stað fyrir blásara, en í Dóm- kirkjunni er hljómburðurinn fínn.“ Á þessum tónleikum ákváðu þau að leika allt efni sem til væri á íslensku fyrir blásaraoktett, en þurftu þá að bæta við sig tromp- etleikara. Einu verkin sem þeim er kunnugt um eru eftir „íslensku Austurríkismennina“, en Kristín Mjöll segir að þau vinni nú hörðum höndum að því að fá íslensk tónskáld til þess að semja fyrir sig verk. „Það er alltaf svolítið fjör í tón- list fyrir blásaraoktett, því á sínum tíma skrifuðu tónskáldin oftast skemmtitónlist þegar þau voru að skrifa fyrir blásara.“ Tónleikarnir í Dómkirkjunni hefjast klukkan 17 á sunnudag. Blásið í kirkjunni BLÁSARAOKTETTINN HNÚKAÞEYR Blæs af lífi og sál í Dómkirkjunni á sunnudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI > Ekki missa af ... ... Naglanum, nýju leikriti eftir Jón Gnarr, broslegum harmleik um karlmennskuna sem frum- fluttur verður á litla sviði Borgar- leikhússins annað kvöld. ... sýningunni Ný íslensk myndlist II, sem nú stendur yfir í Listasafni Íslands. Þar takast margir af helstu listamönnum yngri kynslóðarinnar á við rými listasafnsins. ... sýningum þeirra Kees Visser, Þórs Vigfússonar og Ívars Val- garðssonar í Nýlistasafninu.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.