Fréttablaðið - 20.01.2006, Síða 57
FÖSTUDAGUR 20. janúar 2006
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Vinningar verða afhentir
hjá BT Smáralind. Kópavogi.
Með því að taka þátt ertu kominn
í SMS klúbb. 99 kr/skeytið
aukavinn
ingurKlikkað
ir
Sendu SMS skeytið
BT VAS
á númerið
1900
og þú gætir unnið.
Við sendum þér
spurningu.
Þú svarar með því
að senda SMS skeyti
ð
BT A, B eða C
á númerið 1900.
Aðalvinningur*
*Aðalvinningur verður dreginn út úr öllum innsendum SMS skeytum
40” MEDION LCD Sjónvarp
+ PANASONIC heimabíó + 10 DVD myndir
Taktu þátt
í útsöluleik BT
5
FÓTBOLTI Framherjarnir Þórarinn
Brynjar Kristjánsson og Magnús
Sverrir Þorsteinsson skrifuðu í gær
formlega undir þriggja ára samn-
ing við Keflavík en viðræður þess
efnis höfðu staðið yfir í nokkurn
tíma. Þeir voru stærstu nöfnin í 15
manna hópi, sem samanstendur af
9 körlum og 6 konum, sem skrifaði
undir nýja samninga við Keflavík
í gær.
Kristján Guðmundsson, þjálf-
ari karlaliðsins, var að vonum
sáttur með hinn nýja liðsstyrk en
hann hefur nú yfir að ráða fjórum
öflugum framherjum sem myndu
á góðum degi líklega gera tilkall
til sætis í hvaða úrvalsdeildarliði
sem er hér á landi. Þá er að sjálf-
sögðu átt við Þórarin og Magnús
auk þeirra Harðar Sveinssonar
og Guðmundar Steinarssonar. „Ég
mun reyna að spila þeim öllum
en hvernig það mun ganga er svo
annað mál,“ sagði Kristján og
glotti þegar Fréttablaðið ræddi við
hann í gær.
„En það er ekkert útséð hvort
þessir framherjar verða hjá okkur
út allt næsta tímabil. Það hefur
verið áhugi á nokkrum þeirra
erlendis og það er aldrei að vita
hvað gerist í þeim efnum. Leik-
mannamarkaðurinn í Skandinavíu
er opinn fram í apríl og svo er
aldrei að vita hvað gerist á miðju
sumri ef einhver af þeim stendur
sig vel,“ sagði Kristján jafnframt.
Yfirlýst markmið karlaliðs
Keflavíkur fyrir næsta sumar er
að gera betur en á síðustu leiktíð,
en þá hafnaði liðið í 4. sæti Lands-
bankadeildarinnar. Kristján segir
að til að það gerist þurfi liðið á liðs-
styrk að halda og er ljóst að liðið
mun fá frekari mannskap áður en
næsta tímabil hefst. „Við þurfum
að styrkja varnarleikinn og það er
alveg öruggt að við munum bæta
við hópinn. „Við höfum farið út
fyrir landsteinana að líta í kring-
um okkur og við munum líklega
fá fleiri en einn ef vel ber í veiði,“
segir Kristán.
Athygli vakti að framherjinn
Hörður Sveinsson var einn þeirra
sem skrifuðu undir nýjan þriggja
ára samning í gær, en hann hefur
verið undir smásjá erlendra liða.
„Hann veit alveg að ef eitthvað
kemur upp hjá honum erlendis þá
mun Keflavík ekki standa í vegi
fyrir honum,“ segir Kristján. - vig
Knattspyrnudeild Keflavíkur samdi við 15 leikmenn í gær:
Mun reyna að spila með þá alla
LIÐSSTYRKUR Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, með nýjustu lærisveina sína, þá
Þórarinn Kristjánsson og Magnús Þorsteinsson. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
KÖRFUBOLTI Þegar Antonio Davis,
leikmaður New York Knicks, stökk
upp í stúku í leikhléi í framleng-
ingu gegn Chicago Bulls óttuðust
margir að önnur stúkuslagsmál
væru fram undan.
Sem betur fór var ekkert slíkt
í gangi en ástæða þessarar furðu-
ferðar Davis var sú að hann óttað-
ist um eiginkonu sína.
„Ég sá mann, sem ég frétti
síðar að hefði verið drukkinn,
vera að djöflast í konunni minni
og ég brást bara við aðstæðum,“
sagði Davis. „Ég sá hann snerta
hana. Ég veit þetta eru kannski
ekki réttu viðbrögðin en þetta
gerðist hratt og ekki neinn tími
til þess að kalla á öryggisverði.“
Davis varð að hlaupa upp tíu raðir
en sem betur fór kom ekki til
neinna handalögmála. - hbg
Körfuboltamaðurinn Antonio Davis fylgist vel með konunni:
Stökk upp í stúku til konunnar
HVAÐ ERTU AÐ GERA MAÐUR? Davis sést
hér í stúkunni í Madison Square Garden.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES