Fréttablaðið - 20.01.2006, Blaðsíða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
www.toyota.is
Nýr Yaris. Hann er risaSMÁR
Verð frá 1.359.000 kr.
risaSMÁR
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
30
99
6
01
/2
00
6
Toyota
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota Akureyri
Baldursnesi 1
Akureyri
Sími: 460-4300
Toyotasalurinn
Njarðarbraut 19
Reykjanesbær
Sími: 421-4888
Toyotasalurinn
Fossnesi 14
Selfoss
Sími: 480-8000
Það er gott að vera lítill. Það er gott að vera stór.
En risaSMÁR er snilld.
risaSMÁR er nýtt orð í orðabókinni. Það lýsir því sem er í raun lítið en hefur
eiginleika þess sem er stórt, sérstaklega í tilfinningu, byggingu, eiginleikum
eða útliti. Eða öllu þessu.
Mús er ekki stór. Hún er lítil, loðin og sæt. Hún er ekki hættuleg. Samt vekur
hún alltaf athygli og viðbrögð fólks. Mús er risaSMÁ.
Nýr Yaris er risaSMÁR. Yaris hefur eiginleika stórs bíls í litlum bíl, tilfinninguna
fyrir stórum bíl í litlum bíl, rými stórs bíls í litlum bíl.
Það er gott að vera lítill. Það er gott að vera stór.
En risaSMÁR er snilld.
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA
����������
���������������������
Hefur engum dottið í hug að rannsaka valdavírusinn?
Plágu sem ræðst á mjög fáa og
á þann hátt að þeir verða hýslar
sem smita fjöldann sem tekur
afleiðingunum. Einu sýnilegu ein-
kenni hýslanna eru hortugheit.
ÞEGAR vakin er athygli á því að
matarverð hér sé hátt í fimmtíu
prósent hærra en í löndunum í
kringum okkur, kenna hýslarnir
fákeppni á matvælamarkaði um.
Landbúnaðarstefnan sé góð. Hún
blívi. Þegar bent er á að öreig-
ar á Íslandi eigi armari daga en
evrópskir öreigar og heilbrigðis-
kerfið hér sé dýrast í Evrópu,
eru rannsakendur málsins sagðir
áróðursmeistarar stjórnarand-
stöðunnar. Ekkert að í landbún-
aðar-, heilbrigðis- og félagsmála-
ráðuneytunum, þeim indælis
framsóknarsjoppum, eins og við
vitum. Þegar bent er á aukningu
skattbyrði, segir áhaldari ríkis-
kassans fræðimenn brellumeist-
ara. Svo kemur biskupinn og
segir að jólasveinarnir séu ekki
til.
HVAÐAN koma þær verur sem
gogga sér leið til valdsins í þessu
landi? Úr hvaða efni eru þær?
Þess sér hvergi merki að þær
deili veruleika með þeirri þjóð
sem hér reynir að draga fram
lífið á yndislegasta landi allra
landa. Þjóð sem finnur á eigin
pyngju hvort lífsbaráttan hækk-
ar eða lækkar í verði; þjóð sem er
læs og sér á eigin efnahagsreikn-
ingum að allt hefur hækkað og
hækkað seinasta áratug, matur,
húsnæði, heilbrigðisþjónusta - en
er svarað útúr af hýslunum með
auðskiljanlegustu vísitölum sem
eru eins óskiljanlegar og reiki-
stjörnurnar.
ÞAÐ er auðvitað alrangt hjá
herra biskupinum að jólasvein-
arnir séu ekki til þótt þeir sæust
ekki koma til byggða í desember.
Þeir hafa bara aldrei hengslast
aftur heim til sín í fjöllin frá
því hér um árið. Þeir settust að í
byggð, gerðu sig að stjórnvaldi og
hafa smám saman verið að taka
stærri skerf af ketinu, bjúgunum
og skyrinu frá fólkinu, narrað af
því ljósið, skellt hurðum í fésið á
því þegar það kveinkar sér, legið
á gluggum í skjóli upplýsinga-
tækninnar og sídælt fersku blóði
í þann gaur sem grefur stöðugt
dýpra og breiðara gil á milli ríkra
og fátækra. Er ekki hægt að fara
að smala þessum lýð aftur til
fjalla? ■
Vírus og
vísitölur
NFS ER Á VISIR.IS
Bein útsending á VefTV og
upptökur þegar þér hentar