Frjáls verslun - 01.05.1982, Síða 45
texti: Jóhanna Birgisdóttir
myndir: Jens Alexanderson
Það er ekki ýkja langt síðan að
kjúklingar sáust aðeins á borðum hér á
landi, þegar gera skyldi sér dagamun.
Var þá oftar en ekki að fuglarnir voru
hingað komnir röngu megin við lög og
rétt, það er þeim hafði verið smyglað
inn í landið.
Þetta er nú liðin tíð, sem betur fer og
fuglakjöt orðið algengur matur á borð-
um flestra íslendinga. Stærstan hlut í
þeirri þróun eiga þeir framtakssömu
einstaklingar, sem ráðist hafa í ali-
fuglarækt hér á landi, þrátt fyrir harða
samkeppni við niðurgreiddan landbún-
að. Hafa þeir sýnt svo um munar, að það
er neytandinn sem hefur síðasta orðið í
þeirri samkeppni, boð og bönn, reglur
eða höft hafa þar lítið um að segja.
Nú eru liðin um tólf ár síðan
þrír kornungir menn hófu um-
fangsmikinn hænsnabúskap
að Ásmundarstöðum í Ása-
hreppi, Rangárvallasýslu. Þar
var byrjað smátt, en draum-
arnir voru stórir í þá daga. Hafa
þeir rætst svo um munar og
gott betur, því engan þeirra
hefði sennilega órað fyrir því í
upphafi, að reksturinn yrði
jafn umfangsmikill og raun erá
orðin í dag.
Þetta eru þeir bræður Gunn-
ar, Jón og Garðar Jóhanns-
synir, fæddir og uppaldir í
Reykjavík. Við heimsóttum þá
bræöur og fyrirtæki þeirra
Holtabúiö fyrir skömmu og
fengum að heyra sögu fyrir-
tækisins, álit þeirra á landbún-
aöarmálum og atvinnumálum
jöts héðan álíka hag-
nurækt á Grænlandi
arðar á Holtabúinu heimsóttir
45