Frjáls verslun - 01.05.1982, Qupperneq 53
lit og á skilrúmum eru demp-
aður rauður litur. Loft eru hvít,
en listar og bitar í dökkum við-
arlit.
Nýrri hlutinn var tekinn í
nokun fyrir um einu og hálfu ári
síðan. Var það Hlöðver Vil-
hjálmsson sem sá um innrétt-
ingu hans, en húsnæóið var
áður lager fyrir Tollpóststof-
una. Þar eru litir léttir og Ijósir.
Plötur í loftinu eru hvítar,
veggir klæddir með Ijósrönd-
óttum striga og þarna eru fær-
anleg skilrúm í hávegum höfð.
Húsgögn og aðrir innan-
stokksmunir eru flest í dökkum
viö til að vega upp á móti björt-
um flötum salarins. Þarna hafa
einnig verið innréttaðar uppi á
palli, fimm litlar skrifstofur, all-
ar klæddar meö Ijósum við.
Það einkennir allar skrifstof-
ur Hafskips að þar er hlýlegt
um aö litast. Blóm eiga þar ekki
minnstan þátt í, en þeim er ör-
látlega dreift um húsnæöið og
veggina prýðir fjöldi úrvals
myndverka. Víóa má sjá lítil af-
drep með léttum reyrhúsgögn-
um þar sem viðskiptavinir og
einnig starfsfólk getur tyllt sér
niður yfir kaffibolla. Hinar ýmsu
deildir eru mjög vel merktar,
nokkuö sem víöa er mjög
ábótavant.
Að sögn Ragnheiðar er hús-
næðió samtals um 608 fer-
metrar og þarna starfa tæplega
40 manns. Við tókum nokkra
starfsmenn tali og spurðum
hvernig þeim líkaði aðstaðan
og umhverfið.
Hugsað vel um starfs-
fólkið
,,Hér er hugsað mjög vel um
starfsfólkið," sagði Páll Bragi
Kristjánsson, fjármálaf ulltrúi.
,,Maður finnur glöggt hversu
miklu máli umhverfi á vinnu-
staónum skiptir og þá er ekki
síst mikilvægt að starfsfólkið
herbergi.
fái að eiga þar hlut að máli.
Stjórnendur fyrirtækisins eru
mjög sérstakir í þessu sam-
bandi og láta sig miklu máli
skiþta hvernig fólkinu líður.“
Páll hefur aðsetur sitt í einni
af þeim fimm skrifstofum sem
innréttaðar voru út frá nýja
salnum. Þegar inn í hann kem-
ur er inn-og útflutningsdeildir
fremst. Þar sitja þær Hjördís
Ólafsdóttir og Erla Sigríður
Guðjónsdóttir sem sjá um inn-
og útflutningspappíra. ,,Okkur
líkar þetta sérlega vel, það er
undan engu að kvarta,“ segja
þær og Erla bætir við, aó hún
hafi aldrei unnið við svo góðar
aðstæður áður.
í farmskránni vinna þær
Hólmfríður Gunnarsdóttir og
Birna Ragnarsdóttir. Birna
hefur unnið hjá Hafskip í 5 ár
og hefur því samanburð af aö-
stæöum fyrr og nú. ,,Þetta er
orðið mjög gott núna, vinnu-
aðstaðan er öll eins og best
verður á kosiö. Það var svolítið
vandamál með loftræstingu
hérna fyrst, því gluggar eru fá-
ir. Því var þó kippt í liðinn með
því að setja upp loftræsti og
rakakerfi fyrir allan salinn.
Blómin gefa svo umhverfinu
mjög hlýlegan og heimilislegan
blæ.“
Undir þessi orð tóku þær
Lára Ingólfsdóttir og Kristjana
Ragnheiður Ágústsdóttir, skrifstofustjórí.
hjá Hafskip.
Blóm prýða hennar skrífstofu, eins og aðrar
53