Frjáls verslun - 01.05.1982, Side 55
Valdimarsdóttir. Kváðu að-
stöðuna alla vera gjörbreytta til
batnaðar frá því sem áöur var.
Okkur leikur forvitni á að vita
hvort aldrei gerist þröngt um
alla þá pappíra sem fylgja bók-
haldi í svo stóru fyrirtæki. ,,Nei,
það er ekki hægt að kvarta
undan því. Við höfum hérna
ágætis skápa og hillur og þeg-
ar vantar í viðbót, er það bara
keypt umyrðalaust."
Varla hægt að hafa það
betra
Næstur verður á vegi okkar
Jakob Bjarnason í launadeild.
Hann hefur nú starfað hjá Haf-
skip í tæp 19 ár. Hjá honum er
að öllu jöfnu mikill umgangur,
enda sér hann um launaút-
reikninga fyrir allar deildir fyr-
irtækisins og á launaskrá eru
hátt í 240 manns.
,,Ég er mjög ánægður með
mína aðstöðu hér. Það er varla
hægt að hafa það öllu betra,“
sagði hann.
,,Mióað við þetta starf er ég
mjög ánægð með mína aö-
stöðu," segir Siv E. Sæmunds-
dóttir sem starfar í tölvudeild
fyrirtækisins. ,,Það vill þó verða
hávaðasamt íkringum prentar-
ann, jafnvel þó hann sé lokaður
af. En við því er sennilega lítið
aö gera. Það eru ýmsir ann-
markar á því að vinna við tölv-
ur. Til dæmis þreytist maður
mjög í augunum, en það er lítið
sem fyrirtækið getur gert til að
bæta úr því. Það er mikið gert
fyrir fólkið hér og við þessar
tvær sem vinnum við tölvurnar,
erum mjög ánægðar.“
Frjálslegra að hafa þetta
opið
Og þá færum viö okkur yfri í
eldri hlutann. Þar verður fyrst á
vegi okkar Sigfríð Þorvalds-
dóttir, sem vinnur við vélritun.
Vinnuaðstaða hennar er lokuð
af að hluta með léttum skil-
rúmum, en þó ekki meira en
svo að hún getur sem best
fylgst með öllu því sem um-
hverfis hana gerist. Er það ekki
ónæðissamt oft á tíðum?
,,Nei, mér finnst mun fjráls-
legra aó hafa svona opið.
Maður lokast síður af gagnvart
samstarfsfólkinu," segir hún
og kveðst mjög ánægð með sitt
hlutskipti.
Guðmundur Atlason sem
vinnur í tjónadeild er Jokaður
af í glerbúri,“ ef svo má að orði
komast. ,,Þetta er mjög gott
hér. Auðvitað þarf maður að
venjast ýmsu við nýjar aö-
stæður, til dæmis hávaðanum
frá telexinu hérna fyrir framan.
En það gengur fljótt og vel. Ég
er alveg hættur að heyra þetta
núna.“
Frammi á telexinu situr Inga
Kristín Guðmundsdóttir. Hún
kveðst eins og hinir mjög
ánægð með sinn bás hjá fyrir-
tækinu.
Aldrei haft það eins gott
Við Ijúkum þessari hringferð
okkar um skrifstofuna með því
að heimsækja Magnús A.
Magnússon, deildarstjóra
markaðsdeildar sem hefur sér-
skrifstofu innst í eldri hlutan-
um.
,,Ég hef bara aldrei haft það
betra en hér,“ segir Magnús,
sem þó hefur komið víða viö.
„Stóllinn sem ég sit í stendur
C3
HJÁ OKKUR GETUR ÞÚ ÞVEGIÐ, BÓNAÐ
OG GERT VIÐ BÍLINN SJÁLFUR.
VIÐ TÖKUM EINNIG AÐ OKKUR AÐ ÞVO
OG BÓNA BÍLINN FYRIR ÞIG.
OPIÐ KL. 9-22.- LAUGARDAGA KL. 9-20.
SUNNUDAGA KL. 10-18.
VERTU VELKOMINN.
BÍLAÞJÓNUSTAN
LAUGAVEGI 168
SÍMI 25125
INNAKSTUR FRÁ BRAUTARHOLTI
55