Frjáls verslun - 01.05.1982, Side 57
Texti: Jóhanna Birgisdóttir
vinnustaður og umhverfi
Þegar verið er að innrétta hús-
næði fyrir verslanir, skrifstofuhald
eða annan atvinnurekstur, er oft
mikill íburður lagður í húsgögn,
tæki og búnað ýmiss konar. Minni
áhersla er lögð á að lýsingu sé
þannig fyrir komið að af henni
verði sem mest og best not. Það er
heilmikil kúnst að setja upp lýs-
ingu sem sinnt geti þörfum þeirra
sem við hana eiga að vinna. Kröf-
urnar eru ákaflega misjafnar
eftir því í hverju störfin eru fólgin.
Flúrósent-ljós hafa reynst mörg-
um einföld lausn á þeim vanda
sem lýsing er, en þó þau séu
góðra gjalda verð, eru þau ekki
algóð. Að minnsta kosti er ekki
sama hvernig þau eru sett upp.
Við leituðum til Eyjólfs Jóhann-
essonar, framkvæmdastjóra
Ljóstæknifélags íslands um fróð-
för með sér ýmis vandamál, hvað
varðar lýsingu. Óskýrt letur á
tölvuútskriftum kallar á meiri birtu.
Aðalvandamálið eru þó tölvu-
skjárnir. Augu þeirra sem
við þá vinna, þurfa ýmist
ist að laga sig að Ijósu handritinu
eða dökkum skjánum. Reynt er að
bæta læsileika texta á sjálfum
skjánum meö því að nota mis-
munandi liti. Oft eru notaðir gulir
stafir á grænum grunni, þar sem
augun eru næmust á þessa liti.
Annað atriði sem veldur augn-
þreytu við skjávinnu er hinar mis-
munandi sjónfjarlægðir, það er
þegar augað þarf stöðugt að vera
að skipta á milli handrits, lykla-
borðs og skjáar. Það er því æski-
legt að koma þessum hlutum
þannig fyrir, að mismunur milli
Eyjólfur Jóhannesson, framkvæmdastjóri
Ljóstæknifélags fslandS.
Góð lýsing dregur úr
þreytu og eykur afköst
leik varðandi lýsingu á vinnu-
stöðum og þá sérstaklega með
skrifstofuhúsnæði í huga.
í mörg horn að líta
,,Það er því miður alltof algengt
að lýsing sé sett upp án þess að
tillit sé tekið til innréttinga og ann-
ars fyrirkomulags, bæði á vinnu-
stöðum og í heimahúsum. Oft er
bara skellt upp lömpum með
„hæfilegu" millibili og það látið
gott heita.“
„Þegar lýsingarkerfi eru hönn-
uð er of algengt aö aðeins sé
hugsað um að ná nægri birtu og
lúxafjölda. Það er auðvitað áríð-
andi að birtan sé næg og kröfur til
hennar fara að sjálfsögðu eftir því
við hvað er verið að vinna á við-
komandi stað. Sum störf þurfa
ekki svo ýkja mikllar birtu við, en í
öðrum tilvikum, þar sem stöðug
vinna er við erfið verkefni, verður
lýsing að vera meiri."
En það eru fleiri kröfur, en næg
birta, sem lýsingarkerfið verðurað
uppfylla til að það geti talist gott.
Það má ekki valda ofbirtu, hvorki
beinni né óbeinni. Skuggamyndun
verður að vera hæfileg, þannig að
við skynjum þægilega dýpt í um-
hverfinu og lit og lendurgjöf
Ijóssins verður að ákvarða í hverju
tilviki í samræmi við eóli vinnunnar
á viðkomandi stað. Lýsing skiptir
mjög miklu máli fyrir vellíðan fólks
og hefur áhrif á afköst þess við
vinnu. Það getur því verið fljótt að
borga sig að leggja eilítið meira til
hennar en oft er gert og fá sér-
fróða menn til aðstoðar."
Tölvuskjárnir erfiðir
,,Aukin notkun tölva hefur haft í
þessara fjarlægð verði sem
minnstur.
Speglun í tölvuskjánum er þó
líklega það sem mestum óþæg-
indum veldur. Alvarlegast er þegar
lampar, gluggar eða aðrir mjög
Ijósir fletir speglast í skjánum, en
það getur valdiö því að útilokað er
að lesa á hann, nema að teygja sig
á ýmsa vegu.
Það verður því að nota vandlega
skermaða lampa og staðsetja þá
þannig að þeir speglist ekki í
skjánum. Bakgrunnurinn má ekki
vera of bjartur, því þá laga augun
sig að þeirri birtu og skjárinn virð-
ist mjög dökkur og ólæsilegur."
Lýsi það sem horft er á
„Speglun er víðar vandamál. Til
dæmis eru skrifborð með dökkum
gljáandi plötum oft erfið, þau gefa
57