Frjáls verslun - 01.05.1982, Side 69
Texti: Pétur J. Eiríksson
Ásetningsyfirlýsing — gagnlegt
hjálpartæki í viðskiptum
Margir sem eiga í erlendum
viðskiptum hafa vafalaust ver-
ið einhverntíma beðnir að
undirrita ásetningsyfirlýsingu
(Letter of intent). Á sama hátt
er líklegt að íslensk fyrir tæki
hafi reynt að fá fram einhvers
konar skuldbindingu. Gerð
ásetningsyfirlýsinga er mjög
algeng í viðskiptum erlendis,
en er sjaldgæf hér heima. Hér
er hins vegar um að ræða
gagnlegt hjálpartæki, sem ís-
lensk fyrirtæki ættu að nota
mun meira en raun er á. Hér á
eftir skulum við líta á hvað felst
í ásetningsyfirlýsingu og hvað
ekki.
Ásetningsyfirlýsing ætti alfarið
að þióna sálræiwfin tUgangi. Rétt
gerð yfirlýsing ætti ekki að vera
lagalega bindandi fyrir annan eða
báða samningsaðila, heldur ætti
að sýna góðan ásetning beggja að
enda samningaumleitanir með
samningi. í henni má telja upp þau
almennu atriði, sem aðilar eru
sammála um ásamt þeim atriðum,
sem stefnt er að ná samkomulagi
um.
Ásetningsyfirlýsingar eru not-
aðar í flestum greinum viðskipta.
Það má hugsa sér að bygginga-
meistari biðji verslunarfyrirtæki,
sem sækist eftir húsnæði í versl-
unarmiðstöð á byggingarstigi, að
undirrita ásetningsyfirlýsingu.
Byggingameistarinn getur síðan
notað yfirlýsinguna til að ýta á eftir
öðrum væntanlegum kaupendum
eða leigutökum að festa ráð sitt. Á
sama hátt gæti framleiðslufyrir-
tæki, s.em vantar fjármagn til að
framleiða upp í stóra pöntun, ósk-
að eftir ásetningsyfirlýsingu frá
kaupanda til að sýna bankastjór-
anum.
En margs þarf aö gæta. Hættur
geta falist í undirritun ásetningsyf-
irlýsingar ef ekki er gætilega að
farið. Það gæti verið gott fyrir
annan aðilann að hafa yfirlýsing-
una eins nákvæma og mögulegt er
en hinn þarf þá að vara sig á því að
hann sé aðeins að undirrita
ásetningsyfirlýsingu en ekki
samning.
Samningur er í rauninni skipti á
loforðum. Ef samningur er brotinn
Lagalegt gildi ásetningsyfirlýs-
inga er mjög mismunandi eftir
löndum og er það sérstaklega í
Bandaríkjunum, sem litið er á það
sem alvöruplagg. Bandarískir
dómstólar og líklega sumir ev-
rópskir myndu líta svo á að ef
ásetningsyfirlýsing inniheldur
meginatriði samnings, sé hún
bindandi fyrir báða aðila, jafnvel
þótt formlegur samningur hafi ekki
Hvað á að standa í ásetningsyfirlýsingu?
Aðgera uppkast að ásetningsyfirlýsingu geturverið meiri list
en lögfræði. Nokkur meignatriði mættu þó vera nánast öllum
ásetningsyfirlýsingum:
1. Aðalatriði þess sem samningsaðilar hafa sameig-
inlegan skilning á.
*&2'. Þáú ráffioi,-sem ekki heftip-verið samið endanlega
um (verð, afhendingartíma, greiðslufresti o.s.frv.).
3. Skilyrði, sem fullnægja þarf (t.d. að efniskostnaður
far ekki uppfyrir ákveðið hámark).
4. Hvenær stefnt sé að Ijúka samningsgerðinni.
5. Yfirlýsingu um að ekki sé ætlunin að gangast undir
skuldbindingar fyrr en formlegur samningur hefur
verið undirritaður.
er annar aðilinn venjulega skaða-
'bótaskildúr vegna vanefndra lof-
orða. Dómstóll getur gert honum
að greiða peninga eða standa við
gefin loforð. Þar sem ágreiningur
um ásetningsbréf hefur komið til
úrskurðar dómstóla í Bandaríkj-
unum hafa þeir yfirleitt litið svo á
að það sem menn lýsi sig sammála
um á frumstigum samninga feli
ekki í sér samning, og samkomu-
lag um aö gera samning hafi enga
þýðingu nema öll atriði og skilyrði
samningsins hafi veriö sáiiiþýRkt
af báðum aðilum og að ekki sé
tekið fram aó um einhver atriði sé
enn ósamið.
verið undirritaður. Sé hins vegar
skýrt tekið fram í yfirlýsingunni að
samningur hafi ekki verið undirrlt-
aður munu dómstólar líta svo á að
yfrilýsing bindi ekki samningsað-
ila.
Ásetningsyfirlýsing getur þjón-
að mikilvægum tilgangi. Hins veg-
ar er rétt fyrir menn að bera sig
upp við lögfræðing hyggist þeir
gera slíka yfirlýsingu. Allavega
skulu menn láta það koma fram að
þeir fr.fi sig öllum skuldbindingum,
sem fælist í hugsanlegum samn-
ingi, með skýru orðalagi um aö
ekki sé um samning eða skuld-
bindingar aö ræða.
69