Frjáls verslun - 01.05.1982, Síða 71
erlent
Önnum kafnar kínverskar saumakonur
í kjólaverksmiðju sem saumar kjóla
handa brúðum, sem að sjálfsögðu eru
einnig framleiddar í Hong Kong og fluttar
til landa um allan heim.
Eylandið Hong Kong ásamt
fastalandinu, Kowloon og New
Territories, eru naumast
stærra svæði en 1% af íslandi,
eða liðlega 1000 ferkílómetrar.
Þetta svæði er álíka stórt og
svæðið frá Gróttu að Selvogi,
þaðan austur undir Ölfusá og
norður á Þingvallaveg á Mos-
fellsheiði. Þéttbýli Hong Kong
er eitthvert hið mesta í veröld-
inni, 5,1 milljónir manna búa í
þessu breska vendarríki, sem
Kínverjar virðast líta velviljuð-
um augum. I' Hong Kong og
nágrannabyggðum eru 4760
manns á hvern kílómetra
lands. Þetta segir þó ekki alla
söguna. Þéttbýlið í borgum og
bæjum er mun meira en þessi
tala segir um og á þéttbýlasta
ferkílómetranum í Sham Shui
Po reyndust búa 165.445
manns eða meira en 70% ís-
lensku þjóðarinnar þegar
manntal var gert í fyrra.
Alþjóðaflugvöllur
í miðju verslanahverfi
Greinarhöfundur kom til Hong
Kong um miöjan júlímánuö. Eftir
17 tíma flug frá London er loks lent
á flugvellinum, sem reynist vera í
miðri Kowloon bókstaflega talað.
Frá flugvellinum er nokkurra
mínútna akstur meöfram flug-
brautinni, síðan er beygt til hægri
”Made in Hong Kong”
— þaö merki þótti ekki boða gott í eina tíð, en nú er orðin breyting á og kínverskar
hugmyndir og vestræn stjórnun virðist eiga góða samleið
71