Frjáls verslun - 01.05.1982, Side 72
~hi
Hér gefur að líta fullkomna aðstöðu fyrir gámasklp í höfnlnnl í Hong Kong, en
þar er einnig hægt að nota að roll-on — roll-of aðferðina við losun og lestun. Hong
Kong er þirðja stærsta vöruflutningahöfn veraldar á eftir Rotterdam og New York.
og þá er maður lentur í sjálfu að-
alviðskiptahverfi Hong Kong.
Flugbrautinni hefur verið unninn
staður í hjarta viðskiptalífsins, fyllt
hefur veriö upp út í sjóinn og þessi
eina stóra flugbraut nægir enn, og
nýtingin í besta máta, því um völl-
inn fóru 3,5 milljónir farþegar á
síðasta ári auk 290 þúsund tonna
af vörum og varningi.
Frá Kai Tak-flugvelli er komið
niður í verslanahverfin í Kowloon.
Þar er iðandi líf og fyrstu áhrifin
eru þau að hér þrífist verslun og
viðskipti af meira kappi en í nokkru
landi öðru. Göturnar eru þéttsetn-
ar af bílum og ótæpilega virðist
flautan notuð. Skilti verslana og
fyrirtækja bókstaflega týnast í
þessari miklu örtröð fólks og far-
artækja.
Eftir að hafa komið sér fyrir á
hinu al-ameríska hóteli Holiday Inn
á Gullnu Mílunni, sem er helsta
verslunargatan, er haldið út í lífið
þennan laugardagseftirmiðdag,
enda þótt svefninn sé farinn að
sækja á eftir langt flug. Allar versl-
anir virðast opnar í ,,draumalandi
Friedmans" og annarra fylgjenda
fríhyggju í viðskiptum. Og versl-
unin virðist mun ákveðnari en
Vesturlandamenn þekkja. Klæð-
skerar, gullsmiðir, myndavéla-
kaupmenn og aðrir, standa gjarn-
an út í dyrum verslana sinna og
freista þess að næla sér í við-
skiptavin á gangstéttinni. Það eru
gylliboð sem saklausir vegfarend-
ur fá, og sýni þeir engan áhuga,
lækkar boðið enn. Hér er prúttið
við lýði, og sá sem býður á móti
kaupmanni, má búast við að innan
stundar lækki verðið ótrúlega.
Skartgripasali vildi t.d. selja mér
gullfesti á 800 Hong Kong dollara.
„Gjafverð, bara af því að þú ert
fyrsti viðskiptavinur minn á
sunnudagsmorgni," sagði hann.
Ég sýndi lítinn áhuga, en boðið
lækkaði stöðug og var hann loks
kominn niður í 250 dollara, eöa um
500 krónur fslenskar, án þess þó
að krækja í viðskiptavin.
Klæðskerar virtust margir og
harðskeyttir. Buðu þeir klæöa-
skerasaumuð föt úr enskum ullar-
efnum á 500 krónur íslenskar.
Verð sem varla er hægt að fúlsa
við, enda kaupa ferðamenn
ósköpin öll af fötum í Hong Kong.
,,Einn ameríkani keypti af mér 22
alklæðnaði," sagði Sammy klæð-
skeri í Stitch-Upp við mig. ,,Og það
voru vasar fyrir byssu á öllum vös-
unum," bætti hann við. „Hann var
nefnilega Mafíósó, — stórskrítin
náungi, reyndar."
En hvernig skyldi þetta verðlag
fást staðist? Hvað gerir Hong Kong
að því risaveldi, sem það er í iðnaði
og verslun. Tiltölulega fámenn
þjóð á örlitlum bleöli lands virðist
fá heilu verslunarbandalögin til að
nötra. Hvað er hér á seyði? Hvern-
ig fær það staðist að Hong Kong
eykur þjóðarframleiðsluna ár eftir
ár um ca. 10% meðan kreppan
dynur á iðnríkjum vestræna
heimsins?
Leyndarmálið bak við
hinn mikla árangur
„Sú staðreynd að við erum
númer sextán í röðinni í heims-
versluninni og þriðja stærsta pen-
ingamiðstöðin er ekkert nútíma
kraftaverk," sagði Gordon Jenk-
ins, breskur blaðamaður í Hong
Kong.
„Leyndarmálið bak við þann
stórkostlega árangur, sem hér
hefur náðst, byggist fyrst og
fremst á hinu skrítna þjóðar-
munstri Hong Kong, innfluttum
hygmyndum, hugsjónum og
tækniþekkingu frá austri og vestri.
Einnig á manngildi og lyndiseink-
unn fólksins sem hér býr," segir
Jenkins. Hann bendir einnig á þá
staöreynd að landið býr ekki yfir
72