Frjáls verslun - 01.05.1982, Qupperneq 73
neinum náttúruauðlindum, aðeins
fólkinu, sem vinnur af iðni og ein-
beitni, og breskum stjórnendum,
sem kunna á því lagið að stjórna
og skipuleggja niður í hörgul.
Þegar gengið er um götur Hong
Kong eða Kowloon, virðist manni
næsta ótrúlegt að ekki fjölmennra
þjóðfélag, sem auk þess er fátækt
að stærstum hluta til, geti nokkru
sinni keypt öll arbandsúrin, skart-
gripina, demanta og gull, mynda-
vélar, segulbandstæki, útvarps-
tæki, fatnað. Hér koma mjög til
sögunnar erlendir ferðamenn,
tvær og hálf milljón á ári, en þeir
kaupa hér meira en nokkur venju-
legur íbúi Hong Kong. Hér er
stærsta fríhöfn veraldar, — tollar
og aðflutningsgjöld þekkjast ekki
nema á áfengi og tóbaki. Þess
vegna er það ekki óalgeng sjón að
sjá Japana kaupa sér japanska
myndavél í Hong Kong, eða Sviss-
lending að prútta niður verð á
Omega-úri.
Þegar fiskiðnaður brást
kom léttur iðnaður í
staðinn
Vefjar og fataiðnaðurinn er lang
fyrirferðamesti iðnaðurinn í Hong
Kong og vinna um 40% vinnufærs
fólks við hann og framleiða um,
42% af því sem flutt er út. Annar
fyrirferðarmikill léttur iðnaður er
rafeindaiðnaðurinn, plastfram-
leiðsla, leikföng, úr og klukkur.
Þessi iðnaður allur framleiðir 72%
af því sem flutt er út frá Hong
Kong. Rafeindatæki frá Hong
Kong eru nú að ná mjög góðri
festu víða um lönd og er nær
helmingur tækjanna seldur utan
neytendamarkaðar, þ.e. til fyrir-
tækja og stofnana víða um lönd.
Framleiðsla á tölvum og öðrum
rafeindabúnaði af stærra taginu
hefur vaxið svo mjög að þörf er á
nýjum verksmiðjubyggingum, því
verksmiöjusalirnir í skýjakljúfum
Hong Kong menn eru fljótir að grípa
hugmyndir á lofti. i þessari postulíns
verksmlðju var farið að framleiða Yoda,
eina persónuna í kvikmyndinni Star
Wars. Hér er framleiðslunni pakkað
fyrir Bandaríkjamarkað.
borgarinnar henta engan veginn
undir framleiðslu. Ekki er hægt að
tala um ,,nægt landrými,“ þó fyrir-
finnst það og segja má að hver
skiki sé nýttur. Borgirnar þekja um
tíunda hluta landsins, en hluti þess
er hálendur og a.m.k. illbyggileg-
ur. í Tai Po í New Territories eru
verksmiðjuhús af lægra taginu að
rísa, tölvuverksmiðjur, ölverk-
smiðja Carlsbergs, og íbúðar-
hverfi, þar sem hús eru aðeins á
þrem hæðum. í þessu þorpi var
fiskurinn aðaltekjulindin um 600
ára tímabil, eða þar til fiskiðnað-
urinn fór að bera sig illa. Varð það
til þess að léttur iðnaður gróf um
sig þar eins og annars staðar í
Hong Kong.
En lítum aðeins nánar á þetta
viðskiptaundur sem er stærsti út-
flytjandi vefnaðarvöru ásamt Ítalíu,
►