Frjáls verslun - 01.05.1982, Síða 82
endurfrumsýning á Camelot. Hin nýja útgáfa er skrifuð af sama
hópi og gerði „My Fair Lady.“ Richard Harris hefur fengið mjög
góða dóma fyrir hlutverk sitt. Vilji maður verja kvöldinu við leik-
hússkemmtan má mæla með hinum bráðskemmtilega og obbu-
lítið djarfa gamanleik Steaming, sem sýndur er í Comedy Theatre.
Leikurinn gerist í kvennagufubaði. Verðið er 9.90 pund, sem
innifelur miða og mat á hinu þekkta Café Royal.
Erfiðast getur verið að ná í miða á söngleikinn Cats, en það
getur tekið meir en mánuð. Nema leitað sé á svarta markaóinn.
Þar fær maður miða á sýningu samdægurs, en borgar 20 pund í
stað 7 punda. En rétt er aö geta þess að í Bretlandi er þaó lögbrot
að selja og kaupa leikhússmiða á svörtum markaði. Cats er eftir
sama höfund og Evita og vekur dúndurfögnuð í London og á
Broadway í New York.
Mun einfaldara er að ná í miða á hina eilífu músagildru — The
Mousetrap. Hún hefur gengið í þrátíu ár í sama leikhúsi og slegið
öll met. Reyndarer hún orðin að stofnun í London líktog Madame
Tussauds. Við mælum þó frekar með 84 Charing Cross Road,
eftir Helen Hanff. Leikritið er lofsöngur til London meó léttum,
beittum New York húmor. Titill leikritsins er heimilisfang fornsölu,
sem Helen á í bréfaskriftum vió frá heimili sínu í New York.
Bréfaskrifin eru raunveruleg og hafa áður slegið í gegn í bókar-
formi, og eru nú orðin dálæti leikhúsgagnrýnenda.
Aðvörun. Ef maður kaupir leikhúsmiöa á hótelinu eða í gegnum
umboðsskrifstofu leggjast 15% á miðaverðið. Á Leicester Square
er hins vegar miðaturn, sem selur á sýningar samdægurs á hálf-
virði. Vel þess virði aö reyna.
Lúxus upp á gamla móðinn
Fyrir þá sem vilja gamalt og gott:
Hvaö um dagsferð með Austurlanda-
hraðlestinni? Með glæsilegasta Pull-
manvagni í heimi kemst maður í dags-
ferð til Kent. Hádegisverður, eldaður af
einum fremsta kokki Bretlands er
framborinn í lestinni. í Kent er farið í
Leeds Castle, sem er sögufrægur kast-
ali frá miðöldum, og síðan haldið aftur til
London þar sem rjúkandi, enskt after-
noon tea bíður. Slíkur dagur kostar 50
pund og hægt er að panta í síma
928-6969 eða í gegnum ferðaskrifstofu.
Lestin var tekin í notkun í vor eftir
margra ára vinni við endurbyggingu og
fer hún tvisvar í viku milli London og
Feneyja.
82