Frjáls verslun - 01.05.1982, Blaðsíða 84
Texti: Jóhanna Birgisdóttir
f f
1FRETT U IU IVI
Oddrún Kristjánsdóttir:
LEGGJUM TIL
LIÐSAUKA
Felstir stjórnendur fyrirtækja kannast við þær
kiringumstæður sem skapast, þegar einn eða fleiri
starfsmenn eru frá vegna veikinda eða af öðrum
ástæðum, einmitt þegar hvað mest álag er í fyrirtæk-
inu. Nú eða þær sveiflur sem valda því að oft á tíðum
veitti ekki af tveimur til þremur starfskröftum til við-
bótar í fyrirtækið, sem að öllu jöfnu eru annars óþarfir.
Liðsauki heitir nýtt fyrirtæki sem
hóf stórf hér í Reykjavík síðastliðið
vor. Þetta fyrirtæki er einmitt sett á
laggirnar til að ráða fram úr
vandamálum eins og þeim sem að
ofan greinir. Þar er nokkurs konar
neyðarþjónusta sem útvegar hæfa
starfskrafta með stuttum fyrirvara.
Starfssemin er í raun þríþætt og
byggð á erlendum fyrirmyndum. í
fyrsta lagi að útvega afleysingafólk
til hinna ýmsu starfa og þá með
mjög skömmum fyrirvara. í öðru
lagi er á skrá hjá fyrirtækinu fjöldi
fólks sem gjarnan vill taka að sér
heimavinnu og þá einkum á sviði
bókhalds og vélritunar. Þriðji lið-
urinn er svo almenn ráðningar-
þjónusta, það er útvegun starfs-
fólks til langframa.
,,Þetta fór rólega af stað hjá
okkur, en hefur mælst mjög vel
fyrir," sagði Oddrún Kristjánsdótt-
ir, framkvæmdastjóri Liðsauka í
samtali við Frjálsa verslun. ,,Við
tókum það ráð að kynna okkur
með dreifibréfi, frekar en að aug-
lýsa í blöðunum, töldum það væn-
legra til árangurs. Mest er sótst
eftir fólki í alls kyns ritarastörf og
þá venjulega í forfallaafleysingar.
Þó höfum við útvegað fólk til sölu-
starfa, útkeyrslu, lagervinnu og í
mötuneyti, svo eitthvað sé nefnt."
Liðsauki er nokkurs konar verk-
takafyrirtæki, það selur vinnu
starfsmannsins til fyrirtækjanna.
Inni í gjaldinu eru því innifalin laun
og öll launategund gjöld, auk
þóknunnar. Sem dæmi um verð
má nefna að hæsti taxti í gjald-
skránni er kr. 148 á tímann. Sé hin
vegar um varanlega ráðningu að
ræða, er aðeins tekin þóknun fyrir
milligönguna.
,,Við erum með hátt á fjórða
hundrað manns á skrá hjá okkur,
aðallega námsmenn og húsmæð-
ur, en einnig fólk sem vinnur hálf-
an daginn eða vaktavinnu og vill
gjarnan bæta á sig, án þess að
binda sig á einum ákveðnum stað.
Margt af þessu fólki er mjög hæft
og sérstaklega er athyglisvert
hversu margar konur sem verið
hafa bundnar yfir heimili og fjöl-
skyldu árum saman, vilja prófa sig
áfram á þennan hátt. Þær eru yfir-
leitt vantrúaðar á sjálfa sig í upp-
hafi, en reynast mjög færar þegar
til kemur.
Að sögn Oddrúnar hefur reynsl-
an orðið sú að mest er sóst eftir
fólki til afleysinga í skrifstofustörf,
jafnt hjá einkafyrirtækjum sem op-
inberum aðilum. Eru sumar ósk-
irnar mjög sérhæfðar og oft erfitt
að uppfylla þær með suttum fyrir-
vara, en fyrirtækin hafa yfirleitt
verið mjög ánægð með þessa
þjónustu.
Ýmsar hugmyndir eru uppi um
frekari útvíkkun starfsseminnar.
Til dæmis að útvega fólk til starfa á
ráöstefnum og einnig að koma
upp ritvinnsluþjónustu. Hvort
tveggja er þó enn aðeins hug-
myndir, sem athugaðar verða
nánar á næstunni.
Auk Oddrúnar eru fjórir aðrir
eigendur að Liðsauka hf., þaó eru
Guðjón Guðmundsson, viðskipta-
fræðingur, Erna Bryndís Halldórs-
dóttir, lögg. endurskoðandi, Ella
Stefánsdóttir, innanhússarkitekt
og Leifur Magnússon, verkfræð-
ingur. Er fyrirtækið til húsa á
Hverfisgötu 16a og opið þar alla
virka daga frá kl. 9-15.
84