Fréttablaðið - 02.02.2006, Page 4
4 2. febrúar 2006 FIMMTUDAGUR
BANDARÍKIN, AP Í árlegri stefnu-
ræðu sinni, sem George W. Bush
Bandaríkjaforseti flutti í fyrrinótt
að íslenskum tíma, útmálaði hann
demókrata sem uppgjafarsinna
vegna gagnýni þeirra á herförina
í Írak og sakaði þá jafnframt um
að vera einangrunarsinna fyrir að
gagnrýna nýja viðskiptasamninga
og skattalækkunaráform.
Bush varaði við því að Banda-
ríkin yrðu að rjúfa „fíkn“ sína í
olíu. Þjóðin væri of háð innfluttri
olíu, oft frá „óstöðugum“ löndum,
og nauðsyn bæri til að finna nýja
valkosti.
Málefni Miðausturlanda vógu
þungt í ræðunni. Hann varaði við
„hættu og afturför“ ef Banda-
ríkjamenn stæðu sig ekki í að
mæta af fullri hörku ógnum sem
að þeim steðjuðu utan úr heimi.
Öryggis og efnahagsmál voru
annars aðalmálefnin sem Bush
vék að í ræðunni, sem er flutt á
viðkvæmum tíma þar sem á þessu
ári verður kosið til flestra þing-
sætanna í fulltrúadeildinni og 36
ríkisstjóraembætta.
Demókratar, sem eru í minni-
hluta á þingi, reyna nú að láta kné
fylgja kviði er Bush á á brattann
að sækja í skoðanakönnunum og
ýmsir þingmenn repúblikana eru
flæktir í umtöluð spillingarmál. Í
takt við þetta sögðu þingleiðtogar
demókrata stefnuræðuna einkenn-
ast af ótrúverðugri óskhyggju.
Bush hefur um alllanga hríð
sætt gagnrýni fyrir að bjartsýn-
ar yfirlýsingar hans síðustu árin
rími engan veginn við þær áhyggj-
ur sem bandarískur almenningur
ber í brjósti, svo sem varðandi
ískyggilega hækkun eldsneytis-
verðs og síaukins kostnaðar við
heilbrigðisþjónustu. Hið óvin-
sæla og kostnaðarsama Íraks-
stríð og stöðug hætta á nýjum
hryðjuverkum bætir heldur ekki
stemmninguna. Forsetinn sagðist
þrátt fyrir þetta vera bjartsýnn á
framtíðina.
Í efnahagsmálum bauð Bush
annars upp á hófstillta stefnu-
mörkun, á tímum þegar fjárlaga-
halli Bandaríkjanna hefur náð
nýjum hæðum. Hann lýsti því yfir
að Bandaríkin yrðu að slíta sig
laus frá því að vera háð olíu frá
Miðausturlöndum. Hann hafnaði
áskorunum um að kalla herlið-
ið heim frá Írak. „Það er enginn
friður unninn með undanhaldi,“
sagði hann. audunn@frettabladid.is
STEFNAN BRÝND FYRIR BANDARÍKJAMÖNNUM Bush forseti í ræðustól á Bandaríkjaþingi.
Stefnuræðunni var að vanda sjónvarpað beint á besta útsendingartíma. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Þjóðin venji sig af olíufíkn
Bush Bandaríkjaforseti sagði í stefnuræðu sinni í fyrrinótt að Bandaríkjamenn yrðu að taka sér tak til að
hætta að vera háðir olíu frá hinum óstöðugu Miðausturlöndum. Demókratar gagnrýndu forsetann fyrir
ótrúverðuga óskhyggju. Bush sakaði demókrata um að vera einangrunar- og uppgjafarsinna.
Cindy Sheehan, móðir hermanns sem
féll í Írak, var varpað á dyr af örygg-
isvörðum bandaríska þinghússins í
Washington er George W. Bush for-
seti flutti stefnuræðu sína þar í fyrra-
kvöld. Sheehan var sögð hafa brotið
reglur með því að vera í áberandi bol
með slagorðum gegn stríðinu.
Hún var hins vegar ekki sú eina
sem vísað var á dyr við sama tæki-
færi. Beverly Young, eiginkona Bills
Young, þingmanns úr Repúblikana-
flokknum, var ekki látin komast upp
með að vera í bol með áletruninni
„Styðjið hermennina sem verja frelsi
okkar“. Hún sagðist á bloggsíðu sinni
í gær ætla að leggja fram kæru vegna
brots á tjáningarfrelsi.
Sheehan, sem varð fræg fyrir að
tjalda við búgarð Bush í Texas og
mótmæla Íraksstríðinu þar mánuðum
saman, ætlar hugsanlega í þingfram-
boð sjálf í heimaríki sínu, Kaliforníu.
Tjáningarfrelsið takmarkað:
Konum í bolum
varpað á dyr
SHEEHAN TEKIN Öryggisverðir
Banaríkjaþings vísa Cindy Sheehan af
þingpöllum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 1.2.2006
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 62,66 62,96
Sterlingspund 111,33 111,87
Evra 75,9 76,32
Dönsk króna 10,166 10,226
Norsk króna 9,427 9,483
Sænsk króna 8,216 8,264
Japanskt jen 0,5323 0,5355
SDR 90,72 91,26
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
106,3029
HESTAMENNSKA Landssamband
hestamannafélaga ætlar að skrifa
Adolf Inga Erlingssyni, íþrótta-
fréttamanni á RÚV, bréf og krefja
hann skýringa á ummælum sem
hann lét falla í nýjasta tölublaði
Eiðfaxa, að sögn Jóns Alberts Sig-
urbjörnssonar, formanns LH.
Mikill hiti er í hestamönn-
um um land allt vegna ummæla
Adolfs Inga. Í Eiðfaxa er haft
eftir honum: „Í hugum margra
eru hestamenn yfirleitt rallhálf-
ir, hangandi á bikkjunum sínum.
Auðvitað eru þetta vissir fordóm-
ar en þannig er þetta nú samt. Þó
að hestamennska sé með mikinn
fjölda iðkenda þá er 99 prósent af
þeim bara dundarar.“ Og síðar:
„Knaparnir eru í flestum til-
fellum hrossaprangarar á sama
tíma og því eru ekki greinileg
skil á milli íþróttamanna og sölu-
manna.“
Adolf Ingi segir að ummælin
séu tekin allverulega úr sam-
hengi. Hann kveðst hafa sagt að
sem betur fer hafi þessi umrædda
ímynd hestamanna breyst veru-
lega á síðustu árum. Varðandi
það sem haft hafi verið eftir sér
um „hrossaprangara“ segir Adolf
Ingi að þar hafi honum verið lögð
„algjörlega orð í munn“.
„Ég sagði blaðamanninum að
það stæði íþróttinni jafnvel svo-
lítið fyrir þrifum að menn væru
jafnframt því að keppa á hestum
að braska með þá og það blönduð-
ust inn í þetta peningar. Það er því
stundum erfitt að greina á milli
hvar íþróttirnar liggja í þessu og
hvar „bisnessinn“ tekur við.“ - jss
Mikill hiti í hestamönnum um land allt vegna ummæla í Eiðfaxa:
Adolf Ingi krafinn skýringa
MOSKVA, AP Rússar þurfa að byggja
40 kjarnakljúfa fyrir árið 2030,
og auka þar með notkun Rússa
á rafmagni unnu úr kjarnorku
úr 16 prósentum í 25 prósent, að
sögn yfirmanns kjarnorkumála
þar í landi. Nýju kljúfarnir munu
tengja net kjarnorkuvera við sex
kjarnakljúfa í nágrannaríkjum
Rússlands, en þeir voru byggð-
ir á tímum Sovétríkjanna, sagði
Sergei Kirijenko í gær.
Til að ná þessu takmarki verða
Rússar að byggja tvo kjarnakljúfa
á hverju ári, og hefja bygginguna
ekki síðar en 2011.
Rússar starfrækja nú 31
kjarnakljúf. - smk
Orkuvandi Rússa:
Byggja fjörutíu
kjarnakljúfa
ADOLF INGI
Kveðst hafa talað
sem einstakling-
ur en ekki fyrir
RÚV eða Samtök
íþróttafrétta-
manna.
ALDRAÐIR 38 einstaklingar, sem
eiga maka inni á öldrunarstofnun-
um, bíða eftir vistun. Þar af eru
níu pör eða hjón sem ekki fá vist-
un á sama stað. Þetta kom fram
í svari Jóns Kristjánssonar heil-
brigðisráðherra við fyrirspurn
Ástu R. Jóhannesdóttur á Alþingi
í gær.
Ásta spurði ráðherra hvort
honum þætti boðlegt að skilja að
öldruð hjón með þessum hætti. Jón
svaraði að viljinn væri einlægur
til þess að ráða bót á þessu að fullu.
Þau tilvik þar sem út af bæri væru
á höfuðborgarsvæðinu og stöfuðu
af skorti í vistunarrými. - jh
Brestur í vistun aldraðra:
Hjón ekki allt-
af á sama stað
TÖLVUMÁL Tölvuormurinn W32/
Kapser.A@mm mun á morgun
eyða fjölmörgum skrám í tölvum
þar sem vírusinn er að finna. Orm-
urinn mun síðan eyða enn fleiri
skrám þriðja dag hvers mánaðar
þar til honum hefur verið eytt.
Ormurinn ræðst á Word, Excel,
PowerPoint, Adobe PDF og Adobe
Photoshop skjölum, úr sýktum
tölvum.
Í fréttatilkynningu frá Friðriki
Skúlasyni tölvufræðingi segir að
ormurinn sé frábrugðinn flestum
þeim ormum sem komið hafa fram
á sjónarsviðið síðustu ár.
Ormurinn berst með tölvupósti
sem viðhengi. - mh
Tölvuormur fer á kreik:
Ræðst á skjöl
og eyðir þeim
HEIMILSTÖLVA Í NOTKUN Öll helstu vírus-
varnarforrit eru sögð finna orminn.