Fréttablaðið - 02.02.2006, Síða 12
12 2. febrúar 2006 FIMMTUDAGUR
SRÍ LANKA, AP Tamíl-tígrarnir,
aðskilnaðarhreyfing tamíla á Srí
Lanka, hótuðu því á þriðjudag að
taka ekki þátt í friðarviðræðum
í febrúar nema ríkisstjórn Srí
Lanka veiti tamílum betri vernd
fyrir mannránum. Tígrarnir
segja skæruliða hafa rænt fimm
tamílum á mánudag.
Fyrir tilstuðlan norska sátta-
semjarans Eriks Solheim sam-
þykktu tamíl-tígrarnir og rík-
isstjórn Srí Lanka nýverið að
hefja friðarviðræður í febrúar.
Opinberlega hefur vopnahlé ríkt
í landinu frá 2002, en friðurinn
hefur verið óstöðugur. Um 65.000
manns hafa látist í stríðinu. - smk
Friðarviðræður á Srí Lanka:
Tamíl-tígrar
biðja um vernd
SRÍ LANKA Stjórnarhermenn ganga eftir
götu í Kólombó, höfuðborg Srí Lanka.
NORDICPHOTOS/AFP
LÖGREGLA Tvö umferðaróhöpp
urðu rétt við Galtarholt skammt
frá Borgarnesi í fyrradag. Tveir
bílar lentu utan vegar og ultu í
mikilli hálku.
Í fyrra óhappinu slasaðist
ökumaður bílsins á hálsi og herð-
um en meiðsli hans eru þó ekki
talin alvarleg. Ökumaður bíls-
ins í seinna óhappinu, sem varð
nokkrum mínútum síðar, slasað-
ist óverulega. Báðir bílarnir eru
mikið skemmdir. - mh
Umferðarslys við Borgarnes:
Ultu í hálku
SVEITARSTJÓRNARMÁL Baldvin H.
Sigurðsson, sigurvegari í forvali
VG á Akureyri vegna komandi
sveitarstjórnarkosninga, segist
stefna svellkaldur á stól bæjar-
stjóra að loknum kosningum. „Til
þess þarf ég að vísu að fá góða
kosningu en ég vona að bæjarbúar
tryggi það,“ segir Baldvin.
Baldvin sigraði Valgerði H.
Bjarnadóttur, eina bæjarfilltrúa
VG á Akureyri, með miklum mun
í forvali flokksins um síðastliðna
helgi. Valgerður hafnaði í öðru
sæti. Á fundi með flokkssystkin-
um sínum síðastliðið mánudags-
kvöld tilkynnti Valgerður að hún
myndi ekki þiggja annað sætið en
hygðist taka þátt í starfi flokksins
fram að kosningum.
Baldvin á ekki von á frekari eftir-
málum vegna forvalsins og segir
sáttatón hafa svifið yfir fundin-
um. „Nú þarf það fólk sem leitt
hefur starf VG á Akureyri bara að
venjast því að það er kominn nýr
maður í brúna, en samhent getum
við unnið vel að mörgum góðum
málum fyrir bæinn okkar,“ segir
Baldvin. - kk
Sigurvegari í forvali vinstri grænna á Akureyri:
Stefnir á bæjarstjórastólinn
BALDVIN H. SIGURÐSSON Það kemur
Baldvin óvart að Valgerður H. Bjarnadóttir
skyldi hafna öðru sæti á framboðslistanum
að teknu tilliti til niðurstöðu forvalsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/KK
UPPREISNARAFMÆLI FAGNAÐ Kona af
Karen-ættflokknum í Búrma reykir pípu
við hátíðahöld í tilefni af 57 ára uppreisn-
arafmæli Karena í búðum þeirra nærri
Nýja Manerplaw í Búrma á þriðjudag.
Uppreisn Karena gegn stjórninni í Rangún
(Yangon) er ein lífseigasta uppreisn sem
um getur. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÚTIVIST Annar febrúar 2006. Allir
helstu vegir landsins greiðfærir.
Fimm til tíu stiga hiti um landið
allt og framundan meira af því
sama. Samkvæmt gögnum Veður-
stofu Íslands verður besta veðrið
fyrir norðan á laugardaginn en
spár gera ráð fyrir að á sunnudag-
inn kólni og hitastig um land allt
falli niður í frostmark.
Suðlægar áttir ráða ríkjum
fram að helginni og er það ávísun
á allt að tíu stiga hita fyrir norðan
allt fram á sunnudag. Vindáttir
breytast aðfaranótt sunnudags og
kólnar í veðri um land allt. Má þá
búast við éljagangi fyrir norðan
og hitastigið lækkar til muna. Höf-
uðborgarbúar og nærsveitamenn
ættu þó ekki að örvænta. Hitastig
suðvestanlands ætti að ná fjórum
til átta stigum út vikuna en gert
er ráð fyrir að talsvert rigni sunn-
an og suðvestanlands.
Sigurður Þór Ragnarsson, veð-
urfræðingur á Nýju fréttastöðinni,
varar við að fólk fyllist of mikilli
bjartsýni og tali um að vorið sé
komið enda hafi veðurfar undan-
farinna daga ekki verið einstakt að
neinu leyti nema hvað varðar fáar
sólskinsstundir í mánuðinum.
„Besta veðrið til útivistar er
norðaustanlands um helgina.
Hafa verður í huga að land er
víða blautt og þeir sem ætla sér
í göngutúr vaða drullu víðast
hvar en hvað varðar hitastig og
vind þá verður best að vera fyrir
norðaustan. Ekkert lát er á áfram-
haldandi hitum í kortunum sé litið
lengra fram í tímann.“
Hálendisvegir landsins eru að
mestu ófærir og jeppaeigendur
ættu að fara varlega í að keyra
þar um enda land allt sérlega við-
kvæmt vegna hlýnunar undanfar-
inna daga. Skíða- og brettafólk
verður að leita út fyrir landstein-
anna til kaldari landa í Evrópu.
Öll skíðasvæði landins eru lokuð
að mestu leyti nema gönguskíða-
brautir eru opnar á Seljalandsdal.
Meðan ekki kólnar verulega á
landinu verður engin breyting þar
á. Eina undantekningin eru Kerl-
ingarfjöll þar sem alltaf er nægur
snjór en að sögn staðarhaldara er
færð afar erfið og þangað verður
aðeins komist með jeppum.
Ekki þarf að fara lengra aftur
en um eitt ár til að finna sam-
bærilegar hitatölur síðustu vik-
una í janúar. Þá kom hlýindakafli
og leysti snjó á láglendi um land
allt eins og raunin er nú. Hæsta
hitastig þá mældist átján stig.
Vik nýliðins janúarmánaðar í
Reykjavík frá sólarhringsmeðal-
hita meðaltals áranna frá 1961 til
1990 eru 2,4 gráður en 2,9 gráður
sé miðað við Akureyri.
albert@frettabladid.is
KERLINGARFJÖLL Fátt jafnast á við útiveru í góðu veðri en í Kerlingarfjöllum er snjór nægur fyrir gönguskíða- og vélsleðafólk og margt
jeppafólkið skemmtir sér á ísnum. Þangað er hins vegar torfært þessa dagana og ekki á færi annarra en jeppamanna að keyra þangað.
Áframhaldandi blíðviðri og
gott ferðaveður víðast hvar
Suðlægar áttir og hlýindi verða ríkjandi fram á sunnudag en þá taka norðlægar áttir við og kólnar
í veðri. Sigurður Þór Ragnarsson veðurfræðingur segir að vorið sé ekki komið þrátt fyrir þetta.
ÞÝSKALAND Johannes Rau, sem var
forseti Þýskalands á tímabilinu
1999 til 2004, andaðist á heim-
ili sínu í Berlín þann 27. janúar
síðastliðinn. Rau kom í opinbera
heimsókn til Íslands sumarið 2003,
ásamt eiginkonu sinni og fylgdar-
liði.
Þýska sendiráðið vill koma því
á framfæri að þeir sem vilja votta
samúð sína vegna fráfalls Rau
geta komið í sendiráðið, Laufás-
vegi 31, í dag, fimmtudaginn 2.
febrúar, á milli klukkan níu og
tólf fyrir hádegi og tvö og fjögur
eftir hádegi. Þar liggur frammi
bók sem fólk getur skráð nafn sitt
í af þessu tilefni. - aa
Fráfall Johannesar Rau:
Vottuð virðing
í sendiráðinu