Fréttablaðið - 02.02.2006, Blaðsíða 22
2. febrúar 2006 FIMMTUDAGUR22
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 6.317 +0,72% Fjöldi viðskipta: 641
Velta: 5.573 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 53,80 -0,90% ... Atorka
6,20 -0,80% ... Bakkavör 54,50 -0,90% ... Dagsbrún 5,60 -0,20%
... FL Group 21,90 -0,90% ... Flaga 3,89 -3,00% ... Íslandsbanki
19,40 +0,00% ... KB banki 910,00 +2,30% ... Kögun 63,10
+0,00% ... Landsbankinn 27,40 +0,00% ... Marel 69,90 +0,10% ...
Mosaic Fashions 17,70 +0,00% ... SÍF 4,00 +0,50% ... Straumur-
Burðarás 19,70 +0,50% ... Össur 105,00 +0,00%
MESTA HÆKKUN
KB banki +2,25%
Atlantic Petroleum +0,99%
Straumur-Burðarás +0,51%
MESTA LÆKKUN
Flaga -2,99%
Actavis -0,92%
Bakkavör -0,91%
N
ám
sl
ín
a
Forysta til framfara 7. feb. kl. 9.00 - 13.00
Liðsheildin - TMS 3. mars kl. 9.00 - 13.00
Samningatækni 15. og 17. mars kl. 9.00 - 13.00
Skilvirk samskipti 30. og 31. mars kl. 9.00 - 13.00
Að laða fram það besta 27. og 28. apríl kl. 9.00 - 14.00
Horft til framtíðar 11. og 12. maí kl. 9.00 - 13.00
Dags. Tími
Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Helga Hamar
Verkefnastjóri
Sími: 599 6404
gudrunhelga@ru.is
Ofanleiti 2, 3. hæð
103 Reykjavík
Sími: 599 6200
Fax: 599 6201
www.stjornendaskoli.is
Skráning er hafin!
Hægt er að skrá sig í einstaka hluta námslínu á vef Stjórnendaskólans.
Allar upplýsingar eru á www.stjornendaskoli.is
LEIÐTOGAAKADEMÍA
STJÓRNENDASKÓLA HR
F
A
B
R
IK
A
N
”Rannsóknir staðfesta að
leiðtogi sem leysir úr læðingi
kraft, frumkvæði og
starfsgleði samstarfsmanna
nær meiri árangri. Í
Leiðtogaakademíunni leggjum
við áherslu á fræðilegan
grunn og hagnýta beitingu
hans í daglegum störfum
þátttakenda.”
Fyrir alla stjórnendur sem vilja rækta með sér leiðtogahæfileika, efla
færni í ákvarðanatöku og leiða starfsfólk til framúrskarandi árangurs.
Leiðbeinendur:
Lilja D. Halldórsdóttir
Þórhallur Gunnarsson
Guðrún Högnadóttir
Aðalsteinn Leifsson
Finnur Oddsson
Óvænta gengistapið
Þrátt fyrir að Íslandsbanki hafi hagnast um 19
milljarða á síðasta ári var uppgjörið undir vænt-
ingum. Kom mörgum á óvart að sjá gengistap af
fjármálastarfsemi á fjórða ársfjórðungi þegar
hlutabréfamarkaðurinn hér heima rauk upp
úr öllu valdi. Búist hafði verið við tapi af
skuldabréfaeign bankans en ekki hlutabréf-
um. Reyndar var Íslandsbanki lítt áberandi
á íslenskum markaði á þessu tímabili.
Sennilegasta skýringin fyrir hinu óvænta
tapi er sú að hlutabréfaeign Íslands-
banka í norskum félögum lækk-
aði á fjórðungnum. Getgátur
eru uppi um að Íslandsbanki
sé meðal hluthafa í
Storebrand, sem lækkaði
á síðasta ársfjórðungi,
en íslenskir aðilar eiga
nú yfir fimm prósent
í bankanum, þar af er
Arion verðbréfavarsla skráð fyrir 4,6 prósentum.
Ný tekjulind
Það kemur einnig á óvart við uppgjör Íslands-
banka að tekið sé út af afskriftarreikningi
en ekki lagt inn. Þessi nýja tekjulind
hlýtur að vera einsdæmi í blóðugri
útlánatapsögu íslenska bankakerfisins
og hangir saman við nýjar reiknings-
skilavenjur. Með þeim er frelsi banka
til að leggja inn varúðarfærslur á
afskriftareikninga ekki eins rúmt og
áður og sagði Bjarni Ármannsson,
forstjóri Íslandsbanka, að þetta hefði
verið það eina í stöðunni. Reglurnar
hefðu ekki leyft innlögn! Þetta sama
mátti einnig sjá í uppgjöri danska
FIH-bankans sem er í eigu KB banka.
Kæmi ekki á óvart að hinir bankarnir
fylgi í kjölfarið á þessu ári ef stöðug-
leikinn helst.
Peningaskápurinn
Öllu starfsfólki sölufyrirtækisins Ice-
landic Germany, alls 22 starfsmönn-
um, hefur verið sagt upp störfum og
var skrifstofu félagsins í Hamborg
lokað nú um mánaðamótin. Fyrirtæk-
ið var hluti af Icelandic Group.
Icelandic Group segir lokunina
til komna vegna hagræðingar og
endurskipulagningar, en áfram muni
sinnt öflugu sölu- og markaðsstarfi
í Þýskalandi. „Með þessu móti næst
fram hagræðing í rekstri Icelandic
Group,“ segir félagið, en gert er ráð
fyrir að árlegur sparnaður vegna
þessa nemi um 2,2 til 2,5 milljónum
evra, meðan kostnaður er áætlaður
1,5 til 2,0 milljónir evra. Sparnaður
Icelandic Group gæti því hlaupið á
bilinu 15 til 76 milljónir króna.
Icelandic Group þakkar í tilkynn-
ingu Sturlaugi Daðasyni, sem var
framkvæmdastjóri Icelandic Germ-
any, vel unnin störf. Hann lætur nú
af störfum eftir að hafa unnið hjá
fyrirtækinu frá árinu 1974.
Um mánaðamótin var einnig
gengið endanlega frá kaupum Ice-
landic Group á Pickenpack að lokinni
áreiðanleikakönnun og að fengnu
samþykki samkeppnisyfirvalda í
Þýskalandi. Áætluð velta Picken-
pack í ár nemur tæpum 200 millj-
ónum evra, eða um 15,2 milljörðum
íslenskra króna. - óká
Spara með lokun
GUNNLAUGUR SÆVAR GUNNLAUGSSON
Gunnlaugur Sævar er starfandi stjórnarfor-
maður Icelandic Group.
MARKAÐSPUNKTAR
Kristín Pétursdóttir hefur verið ráðin
aðstoðarforstjóri Singer & Friedlander,
eins stærsta dótturfélags Kaupþings
banka hf. Kristín hefur starfað hjá
Kaupþingi banka frá árinu 1997.
Seðlabanki Bandaríkjanna hækkaði
stýrivexti um 25 punkta á síðasta fundi
Alans Greenspan. Þetta er fjórtánda
skiptið í röð sem bankinn hækkar vexti
og standa þeir nú í 4,5%, en hækkunin
var í takt við væntingar markaðarins.
Krónan veiktist um 0,85 prósent í gær
en gengisvísitala krónunnar var við
opnun markaða 105,8 stig, en lokagildi
vísitölunnar var 106,7 stig.
SEÐLABANKINN Von er á skýrslu Seðlabanka Íslands þar sem staða fjármálafyrirtækja
hér er greind í byrjun maí, en í úttektum tveggja erlendra greiningarfyrirtækja er mat á
lánshæfi stóru bankanna þriggja dregið í efa. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Tvö erlend greiningar-
fyrirtæki gagnrýna
lánshæfismat íslensku
bankanna í nýjum
skýrslum og telja hana
eiga að vera skör lægri.
Gengishagnaður er sagð-
ur gera það að verkum
að staða þeirra sé veikari
en uppgjör þeirra benda
til. Bankarnir segja
afkomuna góða þótt
gengishagnaður sé ekki
talinn með.
Greiningarfyrirtækin Barclays
Capital Research og Credit Sights
hafa nýverið gefið út skýrslur þar
sem farið er yfir stöðu Landsbank-
ans, Íslandsbanka og KB banka og
því haldið fram að matsfyrirtæk-
in Moody’s og Fitch meti lánshæfi
þeirra of hátt. Gagnrýnd eru náin
eignatengsl fjárfesta og fyrirtækja
hér sem geri bankana viðkvæmari
fyrir niðursveiflu í efnahagslíf-
inu en ella væri. Þá er bent á að
bankarnir reiði sig mjög á erlent
lánsfé og sé það ákveðinn veik-
leiki því aðgengi að fjármagni hafi
ekki verið í takt við lánshæfisein-
kunn Moody’s og Fitch og því hafi
þeir þurft að leita fjármagns utan
Evrópu, bæði í Bandaríkjunum og
Asíu.
Jónas Sigurgeirsson, fram-
kvæmdastjóri samskiptasviðs í
KB banka, segir bankann aldrei
hafa verið í sterkari stöðu en nú.
Hann telur einkennilega gagnrýni
að benda á að arðsemi eigin fjár
bankans falli úr 39 prósentum í
21 prósent sé gengishagnaður
dreginn frá. „Hvaða banki sem er
getur verið stoltur af því að sýna
21 prósenta arðsemi. Yfirlýst arð-
semismarkmið okkar er að vera
yfir 15 prósentum.“ Jónas árétt-
ar einnig að álag á skuldabréfum
bankans hafi verið að lækka eins
og búist hafi verið við, þótt vissu-
lega hefði bankinn viljað sjá það
gerast hraðar.
Ingvar H. Ragnarsson for-
stöðumaður Alþjóðlegrar fjár-
mögnunar Íslandsbanka, segir
ljóst að bankarnir þurfi að auka
upplýsingagjöf á erlenda markaði,
því þótt lánshæfiseinkunn banka
sé góð hjá matsfyrirtækjum á
borð við Moody‘s og Fitch þá geti
skrif greiningarfyrirtækja á borð
við Credit Sights og Barcleys haft
áhrif á fjárfesta og þar með á kjör
á skuldabréfum. „Og þetta er verk-
efni bankanna allra,“ segir hann
og bætir við að tónninn í þessum
nýju skýrslum Credit Sights og
Barcleys sér svipaður og verið hafi
í fyrri skrifum erlendra greining-
arfyrirtækja. „En með auknum
umsvifum bankanna erlendis hafa
fleiri farið að fylgjast með þeim og
greina þá.“
Tryggvi Pálsson, framkvæmda-
stjóri fjármálasviðs Seðlabanka
Íslands, segir bankann ekki munu
tjá sig sérstaklega um álit þess-
ara greiningarfyrirtækja á stöðu
íslensku bankanna heldur gera
grein fyrir eigin áliti á stöðugleika
fjármálakerfisins í árvissri skýrslu
sinni. „Næsta skýrsla kemur út
4. maí. Þá verður farið yfir bæði
þjóðhagslegt umhverfi og rekstr-
arlegar forsendur bankakerfisins
og okkar mat á því hvernig fjár-
málakerfið stendur varðandi stöð-
ugleika,“ segir hann en bætir þó
við að skrif um fjármálamarkað-
inn hér séu alltaf áhugaverð, hvort
sem þau séu innlend eða erlend.
„Ljóst er að yfir línuna séð er lögð
vinna í þessar greiningar, en þær
hafa oft mismunandi tilgang, til
dæmis ráðgjöf við fjárfesta og eru
þá ekki sambærilegar við stöðug-
leikagreiningar seðlabanka, né
álit matsfyrirtækja sem hafa jú
miklu meiri aðgang að trúnaðar-
upplýsingum hjá bönkunum sem
þeir meta.“
Gylfi Magnússon, deildarfor-
seti viðskipta- og hagfræðideildar
Háskóla Íslands, segir greining-
arfyrirtæki leggja fram rökstudd
álit eftir að hafa skoðað aðstæður
og geti komist að ólíkum niðurstöð-
um. Hann telur þó ekki sérstakt
tilefni til að draga lánshæfismat
fyrirtækja á borð við Moody‘s og
Fitch á bönkunum í efa. „Þessi fyr-
irtæki leggja orðspor sitt að veði
og eru þekkt fyrir að hafa oftar
rétt fyrir sér en ekki.“
olikr@frettabladid.is
Bankar veikari en
uppgjör benda til