Fréttablaðið - 02.02.2006, Side 27
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
3
02
61
11
/2
00
5
Kynntu þér kostina við fasteignalán Landsbankans.
Fáðu ráðgjöf hjá sérfræðingum okkar og veldu leiðina
sem hentar þér best. Með faglegri ráðgjöf og
fjölbreyttum fasteignalánum hjálpum við þér að
eignast þitt draumaheimili. Hafðu samband í síma
410 4000 eða á fasteignathjonusta@landsbanki.is
410 4000 | landsbanki.is
Fasteignalán
Við hjálpum þér
að eignast
draumaheimilið
Flauel var afar áberandi á karl-
mannstískudögum í Mílanó fyrir
stuttu. Flauelsjakkar voru afar
vinsælir fyrir örfáum misserum
en síðan virtust allir fá leiða á
þeim en þeir virðast vera aftur
komnir á vinsældalistann.
Tannverndarvika stendur nú yfir
og því er ekki úr vegi að huga
sérstaklega vel að tannhirðu.
Foreldrar eru líka hvattir sérstak-
lega til þess að vera börnum
sínum góð fyrirmynd.
Málverkauppboð á vegum
Öryrkjabandalags Íslands fer
fram nú á laugardaginn, klukkan
15 í húsi Orkuveitu Reykjavíkur.
Verða þar meðal annars boðin
upp verk eftir Tolla, Jón Arnar,
Gunnar Dal og fleiri. Allur ágóði
rennur til Öryrkjabandalagsins
og þannig er hægt að styrkja
göfugt málefni.
ALLT HITT
[HEILSA, TÍSKA OG HEIMILI]
Ardís Ólöf Víkingsdóttir heldur mikið upp á
lopapeysu frá ömmu sinni.
,,Mér þykir rosalega vænt um lopapeysuna
mína,“ segir söngkonan Ardís Ólöf Víkingsdóttir.
,,Amma mín prjónaði hana og gaf mér núna í
jólagjöf. Ég er búin að nota hana ofboðslega
mikið, bæði úti og inni. Hún er svo hlý og góð og
bara svo flott!“
Spurð hvort hún prjóni sjálf svarar hún: ,,Nei
ég kann bara eiginlega ekkert að prjóna, maður
lærir það kannski einhvern tímann. Amma er
rosalega góð prjónakona og mjög handlagin.
Hún prjónaði náttúrulega meira þegar vioð
vorum litlar systurnar. Það er svo gaman að eiga
eitthvað svona persónulegt. Ég á tvær systur og
við erum allar í eins peysu frá ömmu, reyndar
með mismunandi munstri.“
Ardís kveðst fremur velja sér föt eftir því
hvað henni finnst flott og sé þægilegt heldur
en hvað sé í tísku í dag. ,,Ég er ekkert rosalega
mikið að eltast við tískuna. Ég er svolítið mikil
kjólamanneskja og ef ég ætla að finna eitthvað
fínt þá finnst mér rosalega gaman að fara í
Karen Millen. Svo fer ég oft í Sautján ef mig
vantar einhverja boli eða gallabuxur.“
Ardís hefur í nógu að snúast þessa dagana.
Fyrir utan að vera á áttunda stigi í söng þá er
hún að fínpússa atriði sitt fyrir Eurovision. ,,Það
verður spennandi að taka þátt í lokakvöldinu
18. febrúar. Svo er ég líka að æfa Litlu
hryllingsbúðina hjá Leikfélagi Akureyrar sem
verður frumsýnd 24. mars. Það er reyndar
leikhlé núna en við byrjum aftur á fullu 20.
febrúar,“ segir söngkonan að lokum.
mariathora@frettabladid.is
Svolítil kjólamanneskja í sér
Ardís Ólöf Víkingsdóttir í peysunni frá ömmu sinni. FRÉTTABLAÐIÐ / STEFÁN
GÓÐAN DAG!
Í dag er fimmtudagurinn
2. febrúar, 33. dagur
ársins 2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 10.05 13.41 17.19
Akureyri 10.02 13.26 16.51
KLASSÍSKIR KÍNASKÓR
Kínaskórnir ganga reglulega í endurnýjun
lífdaga. Í sumar eru þessir ódýru
skór nauðsynlegir við pilsin
og hnébuxurnar.
TÍSKA 7
LAMPINN MAYDAY
Lampinn er eitt þekktasta verk
hönnuðarins Konstantins Grcic.
Hann þykir flottur, einfaldur og
frumlegur.
HEIMILI 8