Fréttablaðið - 02.02.2006, Qupperneq 32
2. febrúar 2006 FIMMTUDAGUR6
Kílóið: Kjóll, pils, vesti, undirkjóll, húfa,
blússa og leggings. FRÉTTABLAÐIÐ / VILHELM
Tígursamfestingur, 300 g.
FRÉTTABLAÐIÐ / VILHELM
Kílómarkaður er hafinn í Spútn-
ik-verslununum. Þar er hægt að
finna flíkur í öllum regnbogans
litum.
Það lifnaði óvenju snemma yfir
Spútnik-verslununum í gærmorg-
unn því klukkan átta var opnað-
ur hinn árlegi kílómarkaður sem
engin tískuspíra getur látið fram
hjá sér fara.
Þótt árla væri var biðröð á Klapp-
arstígnum þegar búðin var opnuð,
því milli klukkan átta og tíu var
kílóið falt á 2000 krónur íslenskar,
sem annars kostar 3500 krónur á
venjulegum opnunartíma.
Það er óhætt að segja að úrvalið
sé mikið í búðunum tveim og allar
vörur er hægt að versla í kílóavís
nema skóna, skartið og pelsana,
sem þó eru á vel niðursettu verði.
Litagleðin og fjölbreytnin ræður
ríkjum í Spútnik og það er ótrú-
legt hvað er hægt að næla sér í á
þessu frábæra verði.
Kjólarnir eru margvíslegir, dopp-
óttir, röndóttir, gulir og rauðir og
ef vel er valið er til dæmis hægt
að verða sér úti um fimm flotta
kjóla á aðeins 3500 krónur. Ekki
ónýtt að byrja daginn á slíkum
kostakaupum.
Kílómarkaðurinn í Spútnik
Sjal, 300 g.
FRÉTTABLAÐIÐ / VILHELM
Rauður kjóll, 200 g.
FRÉTTABLAÐIÐ / VILHELM
Helena og Hafdís
í sitthvorum 200
gramma kjólnum.
FRÉTTABLAÐIÐ / VILHELM
Ofurfyrirsætan Kate Moss
var yfirheyrð hjá lögreglunni í
London í fyrradag. Hún verður
líklega ekki ákærð fyrir meinta
fíkniefnanotkun.
Kate Moss sneri aftur til Lond-
on í fyrradag. Þá voru liðnir 143
dagar frá því að myndir af henni
birtust í slúðurblöðunum þar sem
hún sniffaði kókaín með þáverandi
kærasta, Pete Doherty. Myndbirt-
ingin leiddi til þess að hún fór í
meðferð vegna fíkniefnaneyslu,
samningi hennar við Hennes og
Mauritz var rift og hún ákvað að
flytja frá Bretlandi.
Kate fór með lögfræðingi sínum
á lögreglustöð nálægt Bucking-
ham-höllinni í fyrradag. Hún var
klædd beislituðum jakka, með
breitt hárband og stór, svört sól-
gleraugu. Hjá lögreglunni var hún
yfirheyrð í 80 mínútur og síðan
keyrð á heimili sitt í Oxfordshire.
Hin 32 ára gamla ofurfyrirsæta
er talin hafa aðstoðað lögregluna
við veigamikla fíkniefnarannsókn.
Hún mun líklega ekki verða ákærð
þrátt fyrir að hafa orðið uppvís að
kókaínneyslu.
Aðstoðaði við
fíkniefnarannsókn
Sólgleraugu Kate Moss vöktu athygli og
talið er að eftirlíkingar verði fljótlega komn-
ar í helstu búðir. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
TÍSKUHÖNNUÐURINN PAUL SMITH
VAR UNDIR ÁHRIFUM FRÁ VILLTA
VESTRINU Á TÍSKUSÝNINGU Í PARÍS
FYRIR STUTTU.
Nú stendur yfir tískuvika í París þar
sem nýjustu tískustraumar fyrir herra
eru kynntir. Rokk og ról hefur verið
nokkuð áberandi en á sýningu Pauls
Smith komu fram sterk einkenni
kúrekastíls. Paul Smith er
breskur og hefur oft þótt
mjög þjóðlegur í
hönnun sinni
og því kom
það mörgum
á óvart að
Smith skyldi
leita til villta
vestursins.
Hann bland-
aði stórum
beltasylgjum
við venjulegar,
teinóttar jakka-
fatabuxur. Vesti
voru einnig
mjög áberandi.
kúrekatíska }
Villta vestrið
NFS ER Á VISIR.IS
NFS í beinni á VefTV og upptökur þegar þér hentar
Visir.is er stærsta fréttalind landsins. Þar miðla Fréttablaðið og Nýja
fréttastofan fréttum allan sólarhringinn og nú er NFS í beinni á VefTV
frá morgni til kvölds. Þú færð fréttirnar beint í æð í vinnunni eða heima
og upptökur af fréttum dagsins tryggja að þú missir ekki af neinu.
NFS ER Á VISIR.IS
NFS í beinni á VefTV og upptökur þegar þér hentar
Visir.is er stærsta fréttalind landsins. Þar miðla Fréttablaðið og Nýja
fréttastofan fréttum allan sólarhringinn og nú er NFS í beinni á VefTV
frá morgni til kvölds. Þú færð fréttirnar beint í æð í vinnunni eða heima
og upptökur af fréttum dagsins tryggja að ú missir ekki af einu.