Fréttablaðið - 02.02.2006, Page 35

Fréttablaðið - 02.02.2006, Page 35
FIMMTUDAGUR 2. febrúar 2006 9 Verið velkomin að Dalvegi 18. Gallerí Húsgögn Sími 554 5333 Lokadagar útsölunnar Allt að 70% afslátturútsala út sa la útsala útsa la útsa la Fallegir snagar geta lífgað upp á heimilið. Stundum þarf ekki að gera stórar breytingar til að lífga upp á heimil- ið og gefa því nýjan blæ. Fallegir snagar, nýtísku- legir eða antík, hafa bæði notagildi og eru skemmti- legir fyrir augað. Á heimasíðunni www. anthropologie.com má finna mikið úrval af skemmtilegum snögum. Snagarnir nýtast bæði undir föt en einnig má fá snaga sem hægt er að geyma lykla á. Heimasíðan er aðgengileg og auð- velt að skoða vöruna frá öllum sjónarhornum. Þegar smellt er á snaga sem heillar kemur upp stærri mynd af honum og um leið koma hugmyndir að öðrum vörum, vegg- fóðri, myndarömm- um og þess háttar, sem gæti farið vel með snaganum. Kannski er óþarfi að kaupa inn sófa eða ljósakrónur sem passa með einum snaga, en margar hugmyndir geta komið út frá smáum hlut- um. ■ Nytsamlegt augnakonfekt Blómalaga snagi með antíkáferð. Silkiblómaverslunin Soldis hefur flutt sig af Laugavegin- um inn í Blómaval í Skútu- vogi. Blómaval hefur keypt rekstur verslunarinnar Soldisar sem sérhæfir sig í sölu á silkiblóm- um og silkitrjám auk ýmiss konar gjafavöru. Nú er hún orðin að sérstakri deild í Blómavali í Skútuvogi. Blómaval hefur alltaf haft gerviplöntur til sölu en ekki lagt mikla áherslu á þær fyrr en nú. Plönturnar í Soldis eru gerð- ar úr ekta trjástofni og vönd- uðum silkiblöðum og í boði eru stærðir sem henta í hvers konar rými, svo sem skrifstofur, hótel og sýningarsali að ógleymdum heimilum. Fyrirtækið Soldis var stofnað árið 1998 með opnun verslunar að Kirkjutorgi 4 en í júní árið 1999 flutti hún sig um set upp á Laugaveg 63 (við Vita- stíg). Með flutningi verslunar- innar í Blómaval telja eigendur sig enn betur geta þjónað við- skiptavinum sínum. ■ Soldis-deild í Blómavali Hægt er að fá afskorin blóm, pottaplöntur og tré. Silkiblómin í Soldis eru með ekta trjá- stofnum. ÝMISLEGT FALLEGT FÆST Í VERSLUNINNI SERICA, MEÐAL ANNARS TEIKNIBÓLUR MEÐ BLÓMUM. Skandinavískar skrautvörur eru aðall verslunarinnar Sericu sem er staðsett í Hlíðarsmára 11 í Kópavogi. Meðal nýjunga þar eru margs konar blóm á teiknibólum til að skreyta kerti með. „Blómateiknibólurnar eru vinsælar í veislur og við ýmis tækifæri og auðvitað líka til að punta upp á heimilið hversdags. Fínlegt skraut á kerti Blómabólurnar geta myndað allskonar mynstur. Upplagt er að skreyta kertin eftir tilefnum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.